Fálkinn - 24.03.1950, Side 14
14
FÁLKINN
Lamberto Magyio-
rani sem Ricci og
Enzo Staiola sem
sonur hans, Bruno.
Bldfotffiliur verhdmdður vcrður leihsoppur Irœgðarinnar
Hann leikur aðalhlutverkið í „bestu mynd ársins‘
en á nú varla ofan í sig að borða.
1949,
Lífið er oft býsna skrýtið. Það er
skammt milli frægðar og gléymsku,
fátæktar og auðlegðar, góðrar heilsu
og vanheilsu, meðlætis og mótlætis.
Einn einasti dagur getur umturnað
lífi manna furðulega, — livað þá
heilt ár. Italski verkamaðurinn Lam-
berto Maggiorani hefir reynsluna af
þvi, að hann lifir á slíku „hverfanda
hveli,“ og skal nú sögð saga hans.
Það var í april 1948, að liin
linellna kona Maggioranis, Guisepp-
ina, fékk tækifæri til að lilusta á
útvarp og heyrði auglýsingu frá hin-
um fræga leikstjóra Vittorio de Sica,
þar sem hann óskaði eftir 9 ára
dreng í nýja kvikmynd. Hún hrá við
skjótt og hélt á skrifstofu de Sica
með mynd af syni síum, Enrico.
De Sica leist ekki á drenginn, en
hins vegar sagði hannn frú Maggi-
orani, að hann vildi gjarna liafa
tal af manninum hennar. Þannig var
nefnilega mál með vexti, að Lam-
berto Maggioriani var með Enrico á
myndinni, sem hún hafði meðferðis.
Lamherto var tregur til að fara
úr vinnunni í Breda-stálverksmiðj-
unum, þar sem hann hafði unnið í
16 ár, en Guiseppina stappaði í
hann stálinu, •— og loks hélt hann
á fund de Sica. Þar var hann leidd-
ur fyrir alls kyns menn eins og veð-
hlaupahestur, sem er til sölu, og
síðan valinn úr 20 manna hóp til
að fara með aðalhlutverkið í kvik-
myndinni ,,Reiðhjólsþjófurinn“. Með-
an á myndatökunni stóð, lifði hann
kóngalifi, einkabílstjóri sótti hann
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason
Framkv.stjóri. Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavik. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
Prentað í Herbertsprenti
á morgnana og skilaði honum af sér
á kvöldin, og þau hjónin gátu keypt
sér eitthvað af húsgögnum, sem þau
vanhagaði um. Með því móti gengu
launin fljótt til þurrðar, og þegar
myndin var fullgerð byrjaði verk-
smiðjustritið fyrir honum á ný, þvi
að hann liafði tryggt sér starfið þar,
þegar liann hefði lokið við að leika
í myndinni. Fleiri stórhlutverk stóðu
honum ekki til boða. ílann hafði
verið valinn i þetta eina hlutverk
vegna áhyggjufulls útlits. Hann þótti
dæmigerður fátækur og atvinnulitill
verkamaður að svipunm til.
Nú hefir Lamberto verið sagt upp
starfinu í Breda-verksmiðjunum. Það
þótti ekki réttmætt að láta „frægan
leikara“, sem hafði fengið rífleg
laun, sija fyrir vinnu, þegar harðn-
aði i ári og segja þurfti upp fólki.
Nú lifir Lamberto í sams konar
heimi og i myndinni „Reiðhjólsþjóf-
urinn“. Hann er snauður og snap-
andi eftir vinnu til þess að hafa
ofan í sig og fjölskylduna sina.
Hann hefir helst gengið að múr-
verki og unni ðeitthvað smávegis við
kvikmyndir.
Um áramótin 1949—4950 koniu
þær fréttir frá Bandaríkjunum, að
kvikmyndagagnrýnendur í New York
hefðu valið myndina „Reiðhjós-
þjófurinn“ sem bestu mynd ársins
1949. Einnig heyrist nú hvaðan-
æva úr heiminum, að myndin fái
sérstaklega góðar viðtökur, og þess
er getið, að leikur Lamberto Maggi-
orani sé með þvi besta, sem sést
hafi í kvikmyndum nýlega. Hinu má
heldur ekki gleyma, að myndin fær-
ir öðrutn nýjum leikara frægð og
horfur eru á, að hún verði varan-
legri. Enzo Staiola, II) ára gamall
ítalskur drengur, sem leikur son
Lambertos i myndinni, hefir fengið
þá dóma i Ameriku, að hann sýni
besta barnsleik, sem sést ltafi í
kvikmyndum frá upphafi. Jackie
Coógan er þó nefndur sem hliðstæða
hans i myndinni „The Kid“, þar sent
hann lék með Charlie Chaplin fyrir
30 árum. Staióla er nú hækkandi
stjarna í ítölskum kvikmyndum.
'Vittorio de Sica uppgötvaði Staiola
fyrir 3 árum. Hann er af bláfátæku
verkafólki kominn, en nú er fjöl-
skyldan komin í álnir og faðirinn
orðinn umboðsmaður sonar sins, því
að lians bíða miklir möguleikar.
NÝ ENSK LÚXUSSKIP.
Eimskipafélagið „Peninsular &
Orient“ hefir látið smíða tvö 28.000
smálesta skip, „Himalaya P“ og
„Himalaya 0“, sem verða hrað-
skreiðustu farþegaskipin i enska
kaupskipaflotanum. Þau fara leið-
ina frá Englandi til Bombay á 15
dögum, en áður tók sú ferð 20 daga.
og frá Englandi til Melbourne í
Astralíu styttist sjóferðin um tíu
daga. Þessi nýju skip rúnta 762 far-
þega á I. og 400 á II. farrýnti. Þau
kosta um 80 milljón ísl. kr. hvort.
KONUR í HEMPU.
Kirkjufélögin í Hessen og Nassau,
en þeirn stjórnar hinn víðkunni prest-
ur Martin Niemuller, liafa samjtykkt
að ógiftar konur geti tekið prests-
vígslu og gegnt embætti, að þvi til-
skildu að þær hafi lokið sants konar
guðfræðiprófi og prestar. En þær
mega ekki gifta sig. Geri jtær það, þá
verða þær að vikja tir embætti.
HROSSALÆKNING.
Albert ganili Simmons frá London
hefir verið svo veikur af gigt sið-
ustu tiu árin, að hann hefir dregist
áfram með tvo stafi. Sér til dægra-
styttingar hefir liann dundað við
býflugnarækt. En svo vildi það til
að jtegar hann var að taka liunang
Það er oft margt um manninn
kringum svellið i Rockefeller Center
í New York. Jafnan vekja klaufarnir
méstan fögnuð áhorfenda, og þeir
eru margir, sem yfirgefa svellið með
sáran rass á hverjum degi. Siðustu
vikurnar hefir þó brugðið út af
venjunni. Klaufarnir hafa að nokkru
losnað við spott áhorfendanna um
síund. Orsökin er sú, að lítil stúlka,
Helen Ann Rousselle að nafni, hefir
dregið atliygli fólksins að sér, þó
að hún sé aðeins þriggja ára gönml.
Helen litla er dóttir skautakenn-
ara og byrjaði að renna sér á
skautum fyrir einu ári. Að þremur
vikum liðnum gat hún bæði náð
töluverðum hraða og leikið allar
lielstu byrjunarlistir með öruggum
úr einu býflugnabúrinu sótti öll
liersingin úr búinu að lionum og
stakk hann. Konan hans dró 143
býflugnabrodda út úr honum og liann
fór í bólið, illa haldinn. En nærri
má geta hvað hann varð hissa er
hann vaknaði morguninn eftir.
Gigtarþrautirnar voru alveg horfnar.
IJann hefir gengið staflaus siðan og
er sprækari en hann hefir verið í
fjöldamörg ár. Býflugnaeitrið læknaði
í lionum gigtina.
SOFANDI í KVIKMYNDÍNA.
Margar sögur eru sagðar af þeim
erfiðleikum er mæta unga íólkinu,
sem þráir að komast að kvikmynd-
unum. Saga ensku píanóleikkonunn-
ar Jean Norris er ekki af þvi taginu.
Hún hafði gengið inn í Hyde Park
einn daginn í iþlíðviðrinu í haust og
lagst fyrir á grasflöt þar og stein-
sofnað. Meðan hún svaf jjarna bar
að leikritahöfundinn Noel Coward,
sem var að taka þátt úr kvikmynd
með leikkonunni Margaret Leighton.
Leikatriðið var tekið þarna sem
Jean Norris svaf, svo að hún varð
með á myndinni. Þegar myndatök-
unni var lokið vakti Coward stúlk-
una og rétti henni blað og sagði:
„Gerið þér svo vel að skrifa nafnið
yðar á þetta og sækja kaupið yðar.
Og þakka yður svo fyrir hjálpina.“
limaburði og nákvæmni meistarans.
Áhugi hennar og fimi hefir gert
hana vinsæla meðal skautakennara,
sem þarna lialda sig, og atvinnu-
manna í skautahlaupi og skautalist.
Margar kynsystur hennar öfunda
hana af þeirri fágun, cm hún liefir
fengið í list sinni, og allur almenn-
ingur fylgist vel með henni og þeim
framförum* sem hún tekur, því að
mikils er af henni að vænta. Hver
veit lika. nema hér sé á ferðinni
önnur Sonja Henie eða Barbara Ann
Scott! Faðir hennar, sem er fransk-
kanadiskur að ætt og byrjaði að
æfa sig á skautum 5 ára gamall,
skilur vafalaust möguleika dóttur
sinnar og stuðlar að því á allan hátt,
að hæfileikar hennar nýtist til fulls.
Undrabarn á skautum