Fálkinn - 19.06.1953, Blaðsíða 4
4
FÁLKINN
I íl»ítt | i | * j | * 'i ; j
Krýningin í London —
Glæsilegasti sjónleikur veraldarsögunnar
ÞÓ voldugustu kvikmyndafélög Ame-
riku og frægustu leikstjórar veraldar
væru öll af vilja gerð gæti þeim ekki
tekist að búa til mynd, s’em kæmist
í námunda við þann sjónleik, sem
sýndur var í London 2. júní. Þvi að
í krýningunni tóku þátt um tvær mill-
jónir „statista“ — þ. e. áhorfendur,
sem lögðu til húrrahróp, fagnaðaróp
og geðshræringar — nokkur þúsund,
sem höfðu æðri hlutverk og urðu að
klæðast dýrum viðhafnarklæðum, og
loks voru aðalhlutverkin tvö og þau
hvíldu á dr. Fischer erkibiskupi af
Kantaraborg og Elízabetli II. drottn-
ingu. Hertoginn af Norfolk gegndi
hlutverki leikstjórans, og svo allt færi
vel úr hendi hafði hann æfingar á öll-
um atriðum athafnarinnar, og sum at-
riðin voru æfð hvað eftir annað. Enda
bar ekki á neinum misfellum þó að
athöfnin í kirkjunni stæði 3 tíma og
skrúðgangan til kirkjunnar og frá,
álikan tíma.
Drottningin lét þernu sína, Margar-
et MacDonald, sem venjulega er köll-
uð Bobo, vekja sig klukkan 0 um
morguninn, fékk tebolla í rúmið og
klæddi sig, borðaði svo morgunverð
með manni sinum, en meðan þau voru
að borða byrjuðu blómasendingarnar
að koma i höllina, þar á meðal krýn-
ingarblómvöndurinn, sem drottningin
bar er hún ók um borgina, og var
úr hvítum rósum, iiljukonvell og
neilikum. En fyrir utan höllina liéldu
50.000 hermenn úr öllum löndiun
breska samveldisins heiðursvörð og
meðfram leiðinni sem drotningin átti
að fara.
Meðan kirkjugestirnir voru að tín-
ast í Westminster Abbey — þeir voru
Elizabeth II.
7.300 alls — var verið að skrýða
drottninguna í höllinni. Kjóll hennar
var livítur en með ívafi úr gulli, gerð-
Frá krýningarathöfninni í Westminster Abbey. IJrottningin ásamt nánasta föruneyti sést á miðri myndinni
en uppi á svölunum sjást drottningarmóðirin ásamt Margaret prinsessu.
ur af tískukónginum Norman Iíart-
nell, en yfir kjólnum var hún í skikkju
úr rauðu flaueli með hermilínfaldi og
á höfðinu hafði hún koffur með dem-
antakrossi úr kórónu Mary ömmu
sinnar. Svo sýndi hún börnunum,
Charles og Önnu, sig i öllu stássinu
og síðan fékk starfsfólkið í höllinni
að sjá hana og taka af henni myndir.
Oharles prins, sem er 4. ára fékk að
fara í kirkjuna dálitla stund meðan
á krýningunni stóð.
Um tvær milljónir manna höfðu
safnast sáman meðfram leiðinni sem
drottningin fór til kirkjunnar og frá,
og við kirkjuna. Sumt af því fólki
hafði farið á stúfana daginn fyrir, til
að Iryggja sér pláss, og sat eða lá í
svefnpokum á gangstéttinni alla nótt-
ina, og hafði með sér nesti. Þegar
heiðursvörður hermannanna fór að
skipa sér meðfraim götunum í aftur-
eldingu byrjuðu gleðiópin og héidust
allan daginn, svo að ýmsir voru rám-
ir niorguninn oftir. Víða var áhonf-
andahópurinn um 30 raðir, svo að
lágt fólk sá lítið ef það lenti aftariega,
nema þar sem staðið var á hækkandi
pöllum. En ]>ar voru sölustæði, sem
eigendurnir þurftu ekki að koma í
fyrr en á síðustu stundu. — Á Traf-
algar-torgi einu, en þar fór fylkingin
um tvisvar, stóðu um 50 þúsund manns
en um 250.000 á The Mall, aðalgöt-
unni sem liggur að konungshöllinni.
Aldrei hefir jafnmargt fólk verið
samankomið i iijarta Lundúnaborgar
og þennan dag, og þó var veðrið leið-
iniegt og gekk á skúrum mestan hluta
dagsins, og ekki nema 7 stiga hiti,
svo að fólik hoppaði þar sem það stóð
tii að lialda á sér liita, því að ekki
var olnbogarúm til að berja sér. —
Kringum 25.000 lögregluþjónar höfðu
stjórn á umferðinni og læknaverðir
Krynimg
EMzaTbetlhar IL
drottmlmgar