Fálkinn


Fálkinn - 19.06.1953, Side 6

Fálkinn - 19.06.1953, Side 6
6 FÁLKINN sverð réttlætisins er borið fram. Hún féllur á hné, leggur liægri hönd á Biblíuna og segir: „Allt það sem ég nú hefi lofað skal ég efna, með Guðs hj'álp.“ Og svo kyssir liún Bihlíuna og vinnur eiðinn. En erkibiskupinn tekur Biblíuna og segir: — Náðuga drottning, svo að þú jafn- an munir lög og 'fyrirmæli gleðiboð- skaparins, sem allir kristnir þjóð- höfðingjar skulu haga sér eftir, af- hendum vér þér þessa Biblíu, dýrmæt- ustu bók sem til er á þessari jörð! — En yfirmaður skotsku kirkjunnar, sem nú kom fram við breska krýn- ingu í fyrsta skipti segir liátt: — Hér er viska! Þetta eru hin konunglegu lög. Þetta eru iifandi spásagnir Guðs. Og nú er sunginn sálmur og erki- biskupinn af York les texta dagsins og tónar svo: Vene Creator Spiritus en söngflokkurinn ansar. Og nú hefst aðalþátturinn. Drottn- ingin gengur frá altarinu og sest nú í krýningarstólinn forna, stól Ját- varðar helga, sem er útskorinn i gotn- eskum stíl og fremur fornfálegur að sjá en hefir verið notaður við allar krýningar síðustu 600 ár. Undir hon- um er „viskusteinninn" skoski, sem krossfarar eru sagðir háifa haft með sér frá Austurlöndum, og nefndur er Sconesteinninn. Englendingar tóku hann herfangi fyrr á öldum og hefir liann verið undir krýningarstólnum síðan, nema um tíma er skoskir sjálf- stæðismenn stálu honum. En hann kom í leitirnar aftur. Nú hefst smurningin. Fjórir sokka- bandsriddarar halda baldakin yfir drottningunni í hásætinu en erkibisk- upinn fer að altarinu og sækir smyrslabauk í dúfulíki og skeið. í dúfunni er vígt viðsmjör. Biskuparn- ir tveir klæða drottningu nú úr krýn- ingarskikkjunni. Erkibiskupinn vætir fingur í viðsmjörinu og nýr því á enni, brjóst og hendur drottningar með við- eigandi eftirmála. Næst eru drotningu færðir sporar riddarastéttarinnar og sverðið sem erkibiskupinn hefir lagt blessun sína yfir. Þó er ríkiseplið með krossinum tekið af altarinu en erkibiskup dregur á baugfingur hægri handar hennar liring Elizabethar fyrstu. Og nú tekur drottningin i Iiægri hönd sverð rétlætisins, sem er hárbeitt, en í þá vinstri sverð misk- unnarinnar með brotnu blaði, „dúfu- sverðið" og nú er formálinn að krýn- ingunni búinn. Dómprófasturinn í Westminster Abbey ber fram Edwardskórónuna. Erkibiskupinn tekur við henni og leggur hana á altarið og eftir stutta bæn tekur hann kórónuna upp aftur og setur hana á höfuð drottningar. — God save the Queen! hljómar um alla kirkjuna og lávarðarnir og frúr þeirra setja nú upp kórónur sinar og kirkjuklukkunum er hringt og 22 herlúðrar gjalla. í St. James Park er skotið 42 fallbyssuskotum, en 62 frá Tower. | Á|'j Athöfninni er lokið og drottningin stendur upp úr krýningarstólnum og sest nú í hásætið. Þar tekur hún á móti hamingjuóskum þegna sinna og hollustutjáningum, og kemur erki- biskúpinn af Kantaraborg fyrstur, fellur á kné fyrir drottningu og segir: — Eg, Geoffrey, erkibiskup af Kantaraborg, lofa að vera þér trúr og viðurkenna þig sem drottnanda minn. Eg mun þjóna þér og þínum afkomendum, með Guðs lijálp! Og svo kyssir hann á handarbakið á drottn- ingunni. Næstur kom Pliilip liertogi og vann henni eið þann, sem riddarar hafa unnið þjóðhöfðingjanum í mörg hundruð ár. En sem eiginmaður fékk hann að kyssa drottninguna á kinn- Framhald á bls. 7. Hinn ungi prins Charles horfir hrifinn á krýningu móður sinnar í Westminster Abbey. Sést hann hér ásamt ömmu sinni drottningarmóður- inni og Margaretu prinsessu. Elizabeth, drottningarmóðir og Margaret Rose prinsessa á leið til krýn- ingarathafnarinnar í Westminster Abbey. Sir Winston Churchill á leið til Westminster Abbey.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.