Fálkinn - 10.08.1956, Page 11
FÁLKINN
11
LITLA SAGAN
500 krónnr
„ÞAÐ er svei mér mál til komið, að
ég fái þessar 500 krónur, sem hann
Einar skuldar mér,“ sagði ég. „Nú
hefir hann skuldað mér þær í misseri;
og mig vantar peninga. Eg síma til
lians á morgun.“
„Ætli hann eigi ekki jafn erfilt með
að borga þér peningana og þú átt með
að borga honum Gunnari þessar 500
krónur, sem hann á hjá þér,“ sagði
Elsa.
„Gunnari liggur ekkert á, ég léði
honum fjórar bækur fyrir tveimur
árum. Það er blátt áfram stuldur að
skila eklci aftur bókum, sem maður
fær lánaðar. Það er engu betra að
svíkjast um að skila bókum og að
svíkjast um að borga skuld. Og svo
er Gunnar ekki í peningavandræðum,
svo að hann verður að líða mig.“
„Æ, hvað ég er syfjuð," sagði Elsa
og geispaði, „í kvöld skal ég fara
snemma að hátta, — æ, og nú hringir
síminn. Viltu svara, Oddur! Ef það
er Vigga þá er ég ekki lieima.“
Ég svaraði í símann, og það var
Gunnar.
„Heyrðu, Oddur,“ sagði hann,
„hvenær hefirðu liugsað þér að borga
mér þessár 500 krónur, sem þú skuld-
ar mér?“
„Ég get ekki sagt þér það í bili,“
sagði ég.
„Það er meira en ár síðan ég lánaði
þér þetta,“ sagði Gunnar.
„Já, ég man það,“ sagði ég, „en það
eru meira cn tvö ár siðan ég léði þér
fjórar bækur, svo að ekki er það
betra."
„Þú skalt fá bækurnar þegar ég fæ
peningana,“ sagði hann stutt og sleit
samtalinu.
„Jæja, þetta var hann,“ sagði ég og
lagði tólið á.
„Já, ég heyrði það,“ sagði Elsa og
stórgeispaði. Við höfðum háttað svo
seint undanfarin kvöld, að bæði voru
grútsyfjuð.
„Nu hátta ég,“ sagði Elsa og stóð
upp. Og ég gerði eins.
Ég var kominn meira en hálfa leið
inn í draumaland þegar síminn
hringdi. Elsa lét auðvitað sem hún
svæfi eins og steinn. Mér datt ekki
í hug að fara á fætur til að svara. Ég
lét símann hringja. Þvi miður er eng-
in liurð milli stofunnar og svefnher-
bergisins. Jæja, ég higðist á liina iilið-
ina, sannfærður um að ég mundi
sofna eftir tíu sekúndur. Langt frá
því. Siminn fór að hringja aftur —
meiri glymjandi en áður. Til þess að
sýna betur að ég svæfi hraut ég
nokkrar fallegar hrotur. Siminn hætti
ekki.
„Oddur, heyrirðu ekki að siminn
er að hringja?" sagði Elsa.
Ég svaraði með því að hrjóta betur.
„Siminn er að hringja, Oddur,“ —
hún kleip mig í handlegginn og ég
varð að vakna. „Er að brenna?“ spurði
ég.
„Síminn, hcyrirðu ekki i siman-
um?“ sagði hún.
„Lofðu honum að hringja. Ég nenni
ekki að svara. Ef ég á að svara hvenær
sem síminn hringir, verð ég alveg
svefnlaus.“
Nú þagnaði síminn, sem betur fór.
„Ef hann hringir aftur þá látum við
hann hringja," sagði ég. „Góða nótt!“
En friðurinn var ekki fenginn.
Svona er það alltaf þegar maður ætlar
sér að fara snemma að sofa. Þá kepp-
ast allir kunningjarnir um að hringja.
Síminn hringdi og hringdi, von úr
viti, en loksins þagnaði liann, og svo
sofnuðum við.
Morguninn eftir þegar ég fór inn
í strætisvagninn, áleiðis á skrifstof-
una, tók ég eftir að Einar var þar.
Nú skal hann fá að heyra í mér, hugs-
aði ég með mér, en Einar varð fyrri
til.
„Ég hringdi livað eftir annað til
þín í gærkvöldi,“ sagði hann, „mér
datt i hug að skreppa til þin út af
þessum 500 krónum, sem ég skulda
þér. En þú varst ekki heinia."
„Þú getur borgað mér þær núna,“
sagði ég uppglenntur og datt strax
í hug, að nú skyldum við Elsa gera
okkur dagamun.
„Heyrðu, ég gafst alveg upp á að
hringja ti! þín, en svo datt mér í
liug að lita inn til iians Gunnars. Þeg-
ar hann frétti að ég skuldaði þér 500
krónur, sem ég ætlaði að borga, sagði
hann að þú skuldaðir sér 500 krónur,
svo að það varð úr að ég tók við
peningunum. Svo að nú er ég skuld-
laus við þig og þú við hann.
Ég kom ekki upjj nokkru orði.
„Um leið og ég fór.“ hélt Einar
áfram, „fékk Gunnar mér 4 bækur,
sem þú hafðir lánað honum, og bað
mig um að skila þeim við tækifæri.
Hún cr góð þessi dragt sem Jean Patou
hefir búið til úr þykku ullarefni.
Hringskorna pilsið er kóngablátt. Það
er bundið með linda í niittið og er
með vösum. Blússan er dökkblá með
vítt, bátlaga hálsmál og háan kraga
lagðan með silkibandi sem hnýtt er í
slaufu að framan.
T.. h. sjáum við nýtísku skartgripi. Þeir
eru sannkölluð listaverk — og verðið
Þegar ég kom lieiin og leit á þær, sá
ég að þetta voru sömu bækurnar sem
þú fékkst lánaðar hjá mér fyrir rúm-
um 'þremur árum.“
Dóttir Marlene Dietrich var i sam-
kvæmi, þar sem allir kepptust um að
sló móður hennar gullhamra. „Hún
verður yngri og yngri með hverju
árinu,“ sagði einn aðdáandinn. „Mað-
ur skyldi halda að hún væri systir
yðar.“ — „Já,“ andvarpaði dóttirin.
„En það verður þó alltaf niu mánaða
aldursmunur á okkur.“
Carl Nielsen, 72 ára söðlasmiður,
auglýsir þannig í Kaupmannahafnar-
hlöðununi: „Með þvi að skattstjórinn,
þrátt fyrir háan aldur minn, gerir of
miklar kröfur til mín, sé ég því miður
neyddan til að loka verkstæðinu mínu
og gerast ellistyrkþegi."
Elizabetli Englandsdrottning hefir
fengið tilsögn í raddbeitingu hjá ein-
um af sérfræðingum enska útvarpsins.
Það hefir verið fundið að þvi hvernig
drottningin talar í útvarpi — röddin
þykir of köld. Var hún látin heyra
sjálfa sig á grammófónplötu, sem hafði
verið tekin af einni útvarpsræðunni,
og viðurkenndi að aðfinnslan væri
réttmæt. En nú hefir hún lært að tala
með dýpri rödd og mýkri og hlýrri.
fer eftir því. Efst er skrautgripur úr
fílabeini með simili hringum og til-
heyrandi eyrnalokkar. — í miðið er
mjög breitt armband og stór hringur
sem hafður er á llitlafingri, hvort-
tveggja úr gulli, skreytt mislitum
steinum. — Neðst hefir hárgreiðslu-
meistarinn Guillanne greitt þessari
fallegu greiðslu og látið fallegt simili-
chips við bæði gagnaugu.
Vitið þér...?
að það er hættulegt að drekka sig
fullan í Ankara?
Þvi að ef lögreglan rekst á góðglað-
an mann á götum höfuðborgar hin-s
tyrkneska ríkis, hirðir hún hann og
ekur með hann 30—40 kílómetra út
fyrir borgina. Þar tekur hún af honum
peningana hans og hann verður að
gera svo vel að fara labbandi heim
til sín. Oftast nær er runnið af hon-
um eftir gönguferðina.
að fiski getur rignt?
Það kemur ekki sjaldan fyrir, og
stundum hér á landi, að sílum rignir
niður yfir landið. Þetta atvikast
þannig, að skýstrokkar soga sjó upp
í loftið, og þá slæðist fiskurinn með.
að hægt er að kvikmynda nær
2000 inyndir á sekúndu?
Þessi geypihraði er eingöngu not-
aður við visindalega könnun á mjög
liröðum hreyfingum. Til dæmis má
taka margar myndir af kúlu, sem
kemur fram úr byssulilaupi.