Fálkinn - 21.09.1956, Page 4
4
FÁLKINN
Flaggskip Nelsons í orrustunni við Trafalgar. „Victory“ er enn til í sama formi og það var fyrir 150 árum,
og liggur í höfninni í Portsmouth. Hundruð þúsunda skoða skipið árlega.
ur, en það var því að þakka að hann
brá út af fyrirmælum yfirboðara síns
og tók til eigin ráða. Var liann þá skip-
aður varaaðmíráll og fékk sirs-nafn-
bót. En þá um sumarið skaddaðist
hann í orr.ustu við Teneriffa og varð
að taka af honum höndina. Eigi að
síður fór liann i lierþjónustu aftur
og vann árið eftir orrustu er gerði
hann mjög frægan, er liann gereyddi
franskri flotadeild 13 skipa undir for-
ustu franska aðmírálsins Brueys við
Abukir 1. ágúst 1798. Fyrir þetta af-
rek vann hann sér heitið „Nelson
barón af Níl“ og fékk 2000 sterlings-
punda heiðursverðlaun. Það var eflir
þessa orrustu, sem Netson settist upp
hjá enska sendiherranum í Napoli og
komst í vinfengi við lafði Hamilton
konu hans, en þau ástarævintýri hafa
orðið mörgum yrkisefni, því að árið
eftir fór hann með frúna til Englands
og sagði hana vera konu sína „fyrir
Guðs augum“. Eignaðist hann með
henni eina barnið, sem hann átti. Það
var stúlka og var skirð Horatia.
Næstu stórorrustu sína háði Neison
er Englendingar sendu flota til Kaup-
mannahafnar og skutu á borgina, 2.
apríl 1802. Þar stjórnaði Nelson 12
skipa sveit. Þá segir sagan, að er
Parker yfirmaður hans gaf lionum
merki um að láta undan siga, liafi
Nelson sett kikinn fyrir blinda augað
og ekki þótst sjá merkin en barist
áfram. Vann hann sigur og iaskaði
mörg skip fyrir Dönum, svo að þeir
urðu að ganga að kröfum Englend-
inga. Var þetta fúlmannleg árás af
Breta liálfu, því að Danir höfðu ekk-
ert til saka unnið. Fyrir þetta afrek
varð baróninn Nelson gerður að „vis-
count“, sem er hærra aðalsstig.
Napoleonsstriðin stóðu sem hæst
og Nelson var alltaf í eldinum. Árið
1803 tók ihann við yfirstjórn Miðjarð-
arhafsflotans og kaus sér skipið
„Victory“, sem flaggskip. Það var að
vísu eldra en mörg önnur skipin i
flotanum, smíðað 1765, en vegna þess
hve gott siglingaskip það var, kaus
Nelson það, þó að það væri fjörutíu
ára gamalt. í dag mundi það þykja
hjákátlegt að flaggskip flota væri
fertugt.
skipið hons.
NELjSON O0
Enginn talar svo um sjóhctjur að honum detti ekki Nelson í hug. Hann „féll
en hélt velli“ eins og Brjánn, og einmitt ævilok hans hafa orðið til að halda
minningu hans uppi.
1 FYBBA minntust Englendingar há-
tiðlega orrustunnar við Trafalgar, en
þá voru liðin 150 ár síðan liún var
háð og frægasta sjóhetja Englands
sigraði — og féll, hinn 21. október
1805. Fáir Englendingar hafa eignast
veglegri mínnismerki en Nelson
aðmíráll og svo mikils virti þjóð hans
hann að ihonum var valinn legstaður
í gólfi St. Paulskirkjunnar, beint
undir miðdepli kirkjuhvelfingarinnar,
sem er frægasta smíði hins mikla
hyggingasnillings Christopher Wrens.
Og það minnismerki, sem mest ber á
í London er helgað Nelson: frægasta
torg Lundúnaborgar var skírt Tra-
falgar Square, eftir staðnum sem hann
háði sína orrustu hjá, og líkneskið
sem stendur jiar á liæstu súlu torgsins,
muna allir, sem til London hafa kom-
ið. Myndin er gerð af E. H. Baily og
kvað vera mjög lík Nelson, en svo
hátt stendur hún á súlunni, að erfitt
er að sjá hana greinilega nema i kiki.
En frumgerðin af henni stendur fyrir
ulan aðalstöðvar flotans í Whitehall,
og þar er auðvelt að sjá myndina
greinilega.
Sagnaritarinn G. M. Trevelyan segir
um Trafalgar Square, að „livergi í
veröldinni liefir göfugri l'rægð verið
túlkuð á táknrænni hátt“ en með því
að gefa torginu Trafalgar-nafnið og
reisa Nelson hið stórfenglega minnis-
merki jiar. Var það reist árið 1852
og er súlan sjálf 184 fet en líkneskið
17 feta hátt.
Nelson fæddist i Burnham Thorpe
í Norfolk árið 1758, þann 29. sept.,
en þar var Edmund faðir hans sókn-
arpirestur. Drengurinn var skirður
Horatio og var 6. barn foreldra sinna.
Móðir hans var í ætt við sjóhetjuna
sir Bobert Walpole og bróðir hennar
var sjóliðsforingi. Béðst Horatio í
flotann 12 ára gamall, sem vikadreng-
ur á skipi móðurbróður síns, sigldi
til Vestur-Indía, norður i höf og til
Indlands og varð skipherra áðeins
21 árs.
Árið 1787 giftist hann 26 ára ekkju,
Frances Nisbet, sem átti einn son.
Var liann næstu sex árin í Miðjarðar-
hafsflotanum og átti oft í skærum. í
orrustu við Iíorsiku 1794 missti liann
liægra augað.
í byrjun árs 1797 háði hann viður-
eign við Spánverja og fékk fullan sig-
Nokkur livíld hafði orðið á stríði
Breta og Frakka, cn 18. maí 1803 var
aðmírálsfáninn dreginn að liún á
„Victory“ og Nelson liélt suður í Mið-
jarðarhaf. Ekki réðst hann í nein
stórræði um sinn. Spánverjar gengu
í lið með Frökkum 1804 og var það
því floti beggja þessara stórvelda, sem
Nelson átti að kljást við.
Lengst af árinu var Nclson að elt-
ast við fransk-spánska flotann og gekk
sá eltingarleikur alla leið vestur að
Ameríkuströndum. Loks bar fundum
þeirra saman skammt frá Cadix. Voru
þar sameinaðar flotadeildir Nelsons
og Collingwoods aðmíráls. Nelson
gerðist svo nærgöngull óvinaskipun-
um að liann þekktist þar sem hann
stóð á þilfarinu og varð fyrir skoti.
Særðist hann banvænu sári og and-
aðist um borð skömmu síðar. Á bana-
stundinni mælti liann svo um, að lafði
Hamilton og Horatia dóttir þeirra,