Fálkinn - 09.11.1956, Page 5
FÁLKINN
5
Þessi mynd er af upptöku þáttar í stórri kvikmynd frá gamalli tíð. Þótti það mikill íburður í þá daga að
taka svona leikatriði, en unga fólkið nú á dögum hristir höfuðið og finnst hálfgerður viðvaningsbragur á
öllu saman.
ik Balling. Var hún sýnd við góð-
an orðstír á kvikmyndaþinginu í
Berlín í sumar. Notar félagið
Eastmancolor-aðferðina á lit-
myndir sínar. — Og í sumar fór
Balling með leikaraflokk til Græn-
lands til þess að táka þar kvik-
mynd, sem heitir „Qivitoq" —
eða „Fjallamaðurinn“. Hún er
einnig með litum og verður af-
mælismynd félagsins og sögð
mjög eftirtektarverð. Leika þar
margir Grænlendingar og efni
myndarinnar er áhrifamikið. Er
talið víst að sú mynd fái markað
hjá stórþjóðunum.
Á fyrstu árum íslenskra kvik-
myndahúsa voru það myndirnar
írá Nordisk Film, sem skipuðu
öndvegi, og síðar myndir Svenska
Biograpfteatern. Þeir sem nú eru
komnir á efri ár minnast þessara
mynda ýmissa danskra leikara
frá þeim árum, svo sem Psiland-
ers, Ebbu Thomson, Peter Fjel-
strups og margra fleiri, t. d. Os-
cars Stribolt og Olgu Svendsen,
sem oft léku saman og voru í
hæsta þyngdarflokki.
Það var Nordisk Film, sem lét
gera kvikmynd eftir „Sögu borg-
arættarinnar" og taka hana hér
á landi — í Reykholti og á Keld-
um — en baðstofa var sett upp
þar sem nú er Hallveigarstígur og
teknar þar innimyndir. Þar léku
Guðmundur Thorsteinsson, Guð-
rún Indriðadóttir og Stefanía
Guðmundsdóttir.
Nordisk Film hefir jafnan haft
bækistöð sína í Valby við Kaup-
mannahöfn. Fyrstu myndir fé-
lagsins voru teknar í lélegu hús-
næði, t. d. í kartöflugeymslum,
en síðan var farið að byggja gler-
hús, því að í þá daga voru lampar
ófullkomnir og reynt að notast
sem best við dagsbirtuna í öllum
innimyndum.
Það voru glæsilegar myndir,
sem Nordisk Film tók í gamla
daga. En þróun kvikmyndanna
hefir verið ör, og myndirnar frá
Nordisk Film, sem þóttu mikið
afbragð frá sinni tíð, þola engan
samanburð — hvað ytra borð
snertir — við amerísku myndirn-
ar sem síðar komu, og allra þeirra
tækni.
En hins vegar stóð leikur
dönsku leikaranna að engu leyti
að baki leiknum í þeim kvikmynd-
— Ég skal aldrei láta umsjónar-
mann brunbrautarinnar aka mér heim
framar!
um, sem nú er mest gumað af í
veröldinni. Danir hafa jafnan haft
vel þroskaðan listsmekk og eru
vandfýsnir hvað það snertir. Og
það var meiri ró yfir hinum
dönsku kvikmyndum, en nú er
titt um þær myndir, sem fólk
sækist mest eftir að sjá nú.
Stórveldisdagar Nordisk Film
eru löngu liðnir, en fyrirtækið
fylgist með kröfum tímans og
leggur enn kapp á að taka góðar
kvikmyndir og fylgjast með öll-
um nýjungum í tækni. Áður ruddi
það nýjar brautir í kvikmynda-
gerð, en nú verður það að láta
sér nægja að fylgjast með tíman-
um og framleiða myndir handa
Norðurlandabúum aðallega.
— Er 'hann Nonni litli inni, María?
— Það hugsa ég. Að minnsta kosti
hefir kötturinn falið sig undir borð-
inu.
— Skrambans urg er þetta í sjón
varpstækinu!
Alveg: hissa.
iÞað var gott ár hjá nautabönunum
á Spáni í fyrra, segir i opinberri
skýrslu um þessa skemmtistarfsemi.
Alls «ru nú 287 fasta-svið fyrir nauta-
at í landinu, og heitir það stærsta
Metropolitano og rúmar 30.000 áhorf-
endur. 1 Barcelona cru fleiri nautaöt
háð en í nokkurri annarri borg Spán-
ar. Næst kemur Madrid og þar er
Monumental, sem rúmar 25.000 áhorf-
endur. Þær tvær borgir, sem höfðu
flest ötin, næst Barcelona og Madrid
voru Valencia og Sevilla. Á nautaöt-
unum á Spáni eru drepin á hverju
ári 1500 gömul naut og mörg þúsund
ungtarfar. Á skránni um nautavigs-
menn eru taldir 5000 matadorar og
yfir 10.000 picadorar og banderillos.
Ymsir útlendir matadorar starfa á
Spáni, 31 frá Mexico, 19 frá Venezuela,
10 frá Columbia, 6 frá Perú, 2 Eng-
lendingar, 1 Ameríkumaður og einn
Þjóðverji.
Það var ekkert af góðgerðum nema
sítrón og grape i trúlofunargildi, sem
haldið var í Tyrklandi fyrir nokkru.
Það var Emine, 12 ára, og Halil, ári
yngri, sem voru að trúlofast. Þau
höfðu fengið leyfi foreldranna til
þess að halda trúlofunargildið dag-
inn áður en þau tóku próf í reikningi
i barnaskólanum. En brúðkaupið verð-
ur látið dragast þangað til þau hafa
lokið barnaskólanámi. í veislulokin
tilkynnti móður brúðarinnar að bráð-
um mundi verða haldið annað trúlof-
unargildi. Hún átti nefnilega 9 ára
gamlan dreng, sem vildi ekki láta
tuilofunina dragast óþarflega lengi.
Frú Angela Buliock i Kaliforniu er
hlýðin eiginkona og gerir allt sem
maðurinn liennar biður hana um.
Einu sinn hringdi hann heim til
liennar og sagði henni að vörubill-
inn hans liefði stansað á stað, sem
hann tiltók á Aðalstrætinu. Hvort hún
vildi koma á bilnum sinum og ýta
staða bilnum af stað svo að hann
kæmist í gang? Frú Bullock gerði
það og er hún hafði ýtt vörubilnum
nokkur hundruð metra rakst hann á
annan bil, sem stóð við gángstéttina.
Þá fyrst sá hún að maðurinn hennar
var alls ekki í bílnum. Hann hafði
verið farið að lengja eftir henni og
hafði farið inn i búð til að hringja
aftur og sþyrja hvort hún færi ekki
að koma.
Þegar Errol Flynn hélt stórt sam-
kvæmi i vor sem leið sendi hann út
boðsbréfin viku fyrir, en þau hljóð-
uðu svo: Gildir fyrir handhafa og
eina frú.
I---------------------------
STÆKKIÐ
um 2—6 þumlunga með hinni
nýju aðferð okkar, sem hæfir
bæði körlum og konum.
Ábyrgjumst árangur eða end-
urgreiðum afgjaldið eins og
það leggur sig. Góðfúslega
sendið 30 shillinga póst-
banka- eða ferðaávísun, sem
greiða má með á Indlandi i
Englandi eða Ameríku.
Activities (Dept. 927)
Kingsway, Delhi-9, India.
----------------------------1