Fálkinn


Fálkinn - 30.10.1959, Blaðsíða 2

Fálkinn - 30.10.1959, Blaðsíða 2
2 FÁLKINN ST JÖRIMULESTUR ^ - ★ Jlón -s4rnaion, prentara Nýtt tungl 31. okt. 1959. ALÞJÓÐAYFIRLIT. — Vatns- og föstu merkin í yfirgnæfandi meiri- hluta. Vatnið er breytilegt í eðli en föstu merkin treg og íhaldssöm. Virðist hér um andstæð öfl að ræða, sem munu upphefja hvort annað að vissu leyti. Þó er líkast að íhalds- öflin eða þau varasömu áhrif, sem þau geyma, muni nokkru þrótt- meiri. Dómgreind ætti því að láta frekar á sér bera, þó er það hæpið Mætti því búast við mistökunf nokkrum, sem gætu orðið til varúð- ar. — Tölur dagsins eru: 3—(— 1—(-1 -f-5-j-9==19=10— 1. 3 eru Júpiter- tala. Eintalan tvöföld er Sól-talan. 5 er Meríus-tala og 9 er Mars-tala. Júpiter er framsóknaraflið og Sólin er ráðandinn, Merkúr er skynsemin og Mars baráttan-—seiglan. En fram- kvæmdatalan er Sólar, eintalan, út- kommutalan. Eru þetta góðar tölur, þróttmiklar. Árangurinn ætti að vera góður. Guð ræður. — Jarð- skjálfta mætti búast við nokkru fyr- ir austan okkur eða 18° AL. Ætti að eiga upptök sín skammt fyrir aust- an land. Lundúnir. — Nýja tunglið, Mars og Neptún í 4. húsi. Bændur og af- koma þeirra vekur mikla athygli og umtal og kröfur þeirra verða æ háværari, og mun stjórnin verða fyrir aðköstum nokkrum út af þess- um málum. Hætta á að hún tapi fylgi. — Úran í 1. húsi. Hætt við urg meðal almennings og taugakvill- ar, kalda og kvef áberandi. — Ven- us í 3. húsi. Flutningar, póstur, fréttaþjónusta, blöð og bækur und- SMELLIN AUGLÝSING. — Enski baðstaðurinn Brighton við Ermar- sund hefur nýlega komið sér upp strætisvögnum, og til þess að kenna fólki að nota þó hefur félag- ið leigt fríðleiksstúlku eina, sem var kjörin „Miss Brighton 1957'1 til þess að aka um göturnar í smá- vagni af líkri gerð og strætisvagn- arnir, og útbýta ferðaáætlununum og veita fólki allskonar upplýsing- ar um strætisvagnaferðirnar. — Hugmyndin þykir góð og því er spáð að Brighton-strætisvagnarnir verði vinsælir. ir gagnrýni nokkurri. — Merkúr og Júpiter í 5. húsi. Leikhús, leiksvið og skemmtanastörf undir góðum á- hrifum og ættu að gefa góðan arð, einkum útileikhús og útiskemmt- anir. Berlín. — Nýja tunglið, Mars og Neptún í 4. húsi. — Bændur og afstaða þeirra og afkoma vekur mikla og almenna athygli. Mun urg- ur nokkur koma í ljós út af verð- lagi landbúnaðarvara. Þó mun af- staða stjórnarinnar nokkuð óákveð- in. Hætt við að andstaða stjórnar- innar færist í aukana. — Úran í 1. húsi. Hætt við urg meðal almenn- ings og sprenging gæti komið í op- inberri byggingu. Taugakvillar, kalda og kvef áberandi. — Venus í 2. húsi. Fjárhagur góður og banka- starfsemi góð. Plútó í húsi þessu. Svikamál í fjármálum gæti komið fyrir dagsins ljós. — Júpiter ræður í 5. húsi. Leikhús, leiklist og skemmtanalíf undir góðum áhrif- um, ætti að gefa góðan arð. Moskva. — Nýja tunglið, Mars og Neptún í 3. húsi. Samgöngur, flutningar, fréttaþjónusta, útvarp, bækur og blöð undir áberandi at- hygli almennings og urgur nokkur út af meðferð þessara mála og opin- berum rekstri þeirra. — Venus í 2. húsi. Bankastarfsemi og fjárhreyf- ingar ættu að vera í góðu lagi. Sat- úrn í 5. húsi. Leikhús og leiklist og skemmtanir undir varasömum á- hrifum og tafir og hindranir koma til greina í rekstri slíkrar starfsemi. — Merkúr og Júpiter í 4. húsi. Af- staða bænda frekar góð og friðsæll tími hjá þeim nú og lítill mótþrói gegn ráðendum sýnilegur. Afkoman í lagi. — Satúrn í 5. húsi. Frekar góðar afstöður, þó er slæm afstaða til Úrans. Sprenging í iðnaðarfyrir- tæki gæti átt sér stað. — Úran í 12. húsi, Ágreiningur út af fangels- um og fangabúðum. Tokýó. — Nýja tunglið í 12. húsi, ásamt Mars og Neptún. Fangabúðir, betrunarhús, sjúkrahús undir al- mennri gagnrýni og dulfræði í góð- um gangi og viðleitni. Ágreiningur gæti átt sér stað í þessum efnum. — Merkúr og Júpiter í 1. húsi. Að- staða almennings ætti að vera mjög góð og heilsufar gott. — Satúrn í 2. húsi. Fjárhagsútlitið ætti að vera frekar stöðugt og ganga vel. — Úr- an í 9. húsi. Siglingar og utanríkis- verzlun ætti að vera frekar góð, en þó er hætt við urg eða verk- falli á siglingaflotanum og spreng- ing gæti átt sér stað í flutninga- skipi. — Venus og Plútó í 10. húsi. Afstaða stjórnarinnar er athuga- verð og saknæmir verknaðir gætu komið upp úr kafinu undir henn- ar hendi og vakið mótspyrnu. Washington. — Sól og tungl, Mars og Neptún í 6. húsi. Afstaða verka- manna ótrygg og urgur og órói á sér stað út af ýmsum málefnum þeirra og á stjórnin þar í örðugum aðgerðum að fást við. — Úran, Ven- us og Plútó 1 5. húsi. Leikhús og leikarar undir almennri athygli og mun fjárhagur þar koma til greina. Sprenging í leikhúsi eða skemmti- stað. — Merkúr og Júpiter í 7. húsi. Utanríkismálin undir góðum áhrif- um og sýna sterka aðstöðu til al- þjóðmálanna. Þó gætu umræður nokkrar orðið og blaðaskrif um þau. — Satúrn ræður 9. húsi. Utanlands- siglingar undir takmörkunum nokkrum og töfum, einnig utanríkis- verzlunin. ÍSLAND. 4. hús. ■— Nýja tunglið í húsi þessu, ásamt Mars og Neptún. — Landbúnaður og útvegur undir mik- illi athygli og urgur ekki lítill út af tiltektum þeirra, verkföll út af verðlagi og þar af leiðandi aðgerð- um. Stjórnin í vandræðum út af tiltektunum. 1. hús. — Sói ræður í húsi þessu. — Urgur nokkur meðal almennings út af verðlagi og eldur gæti komið upp í opinberri byggingu. Heilsu- far ætti að vera sæmilegt. 2. hús. — Úran í húsi þessu. — Fjárhagsmálin undir slæmum áhrif- um. Tafir í bankarekstri. Sprenging gæti átt sér stað í peningastofnun eða banka. 3. hús. — Plútó í húsi þessu á- samt Venusi. — Flutningar, póst- ur, sími, útvarp, bækur og blöð undir góðum áhrifum. Þó gæti kom- ið upp sviksemi í rekstri einhvers slíks fyrirtækis. 5. hús. -— Merkúr og Júpiter í húsi þessu. — Leikarar og leiklist ættu að vera undir góðum áhrifum og gefa góðan arð og skemmtana- líf með blóma. 6. hús. ■— Satúrn ræður húsi þessu. — Kvef og inflúenza á ferð og væri því vissara að verja sig vel gegn allri kælingu. Sprenging í sjúkraskýli. 7. hús. —Satúrn ræður húsi þessu. — Þetta er ekki beinlínis góð afstaða til utanríkismálanna. Árekstrar nokkrir gætu átt sér stað og fjár- hagsútlitið alvarlegt eins og áður. Afstaðan til Englendinga virðist daufari. 8. hús. — Satúrn ræður húsi þessu. — Lítil von um að ríkið fái arf eða gjafir um nokkra hríð. SKÁK I. Hvítt mátar í 2. leik. SKÁK II. 9. hús. ■—- Júpiter ræður húsi þessu. — Siglingar og utanríkis- verzlun ætti að vera undir góðum áhrifum og gefa góðan arð. Verzl- unarsamningar ættu að ganga greið- lega. 10. hús. — Júpiter ræður húsi þessu. — Hefur frekar sterka að- stöðu. Stjórnin er því frekar styrk í sessi og ætti því að ráða nokkru um fjármál og framtak. Líklegt að kjósendur komi henni ekki á kné fyrir kosningar. 11. hús. — Venus ræður húsi þessu. — Sú hagkvæma og hyggi- lega hlið framkvæmdamálanna styrkir afstöðu stjórnarinnar. 12. hús. —■ Engin pláneta í húsi þessu og því hefur það lítil áhrif. Ritað 26. sept. 1959.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.