Fálkinn


Fálkinn - 30.10.1959, Page 13

Fálkinn - 30.10.1959, Page 13
FÁLKINN 13 >f >f >( >f>f>f>f>f>f>f>f>f LAUS ,,BRJÓSTHLIF“ fiessi dragt er úr nylon-ull, sniá- köflóttri — svart og hvítt — og er frá ítalska ANTONELLI. Framhlut- inn af treyjunni — „brjósthlífin“ — er laus við treyjuna, hneppt með tveimur hnöppum að framan, en fest með spennu á halsinn. Svo að ef maður vill tilbreytingu, er hœgt að taka „brjósthlífina“ af sér. DízL avi >f>f>f>f>f>f>f>f EF DIOR MÆTTI RÁÐA . . , þá mundi þessi tízkustofnun ráðleggja, að kvenfólkið gengi í svona jökkum, sem ná tœplega niður að mitti, pilsum, sem ná varla niður á hné, og notaði ekki stœrri hatt en þennan. — En þér megið ekki taka mark á þessu — þó Dior segi það — nema ef yður fihnst það fallegt — því að haust-tízkan núna hefur margt fallegra að bjóða. Þessi dragt frá Dior, úr dökkbrúnu „mohair“ er eitt fall- egasta sýnishornið, sem Dior hafði á boðstólum í haust, en það er ekkert leyndarmál, að stutti jakkinn er að missa vinsœldir. Hins vegar þykir lausbundna hálsbind- ið, sem fest er við jakkann, bœði fallegt og þœgilegt. „Ég varð efst, pabbi, og ég á að verða fyrsti aðstoðarlæknir hjá sir James Wilcox.“ „Hvað segirðu, Sonja mín — þetta voru nú meiri tíðindin. Það var gleðilegt að heyra þetta Sonja. Ekki hafði ég nú þorað að búast við svona miklu af þér, þó að ég byggist við miklu. Og þú átt að vinna með Wilcox, mínum gamla vini. Við lásum saman fyrir mörgum árum.“ „Gerðuð þið það? Aldrei hefur þú sagt mér frá því.“ Gamli læknirinn horfði út í bláinn og þagði um stund. „Við höfðum mismunandi grundvallarskoðun á köllun læknisins, Wilcox og ég,“ sagði hann. Wilcox vildi verða frægur maður sem sérfræð- ingur, en það vildi ég ekki.“ „Hvers vegna stundaðir þú ekki einhverja sér- grein, pabbi? Þú tókst svo ágætt próf.“ „Eg var sá bezti í mínum hópi,“ svaraði Harr- son læknir rólega og án þess að hækka róminn. „En mér fannst að hæfileikar mínir ættu að koma fátæklingunum að gagni, en ekki lenda í Har- ley Street — sérlæknagötunni í London, þar sem ríka fólkið nyti þeirra. Wilcox fannst ég vera flón, og í augum almennings er ég það líklega. Hann komst í háan sess, en ég varð læknir í sveit.“ „Engum mundi detta í hug að kalla þig flón, eftir allt sem þú hefur starfað," sagði Sonja með hita í röddinni. „Jæja, ég hef að minnsta kosti alið upp bráð- duglega dóttur, þó ekki sé annað,“ svaraði hann og þrýsti mjúkri kinn hennar að andlitinu á sér. Kinnar hennar voru of telpulegar til þses að fara lækni vel. „Ég skal skrifa bréf með þér til Wijcox. Ég skal minna hann á gamla daga og biðja hann um að sjá vel um þig. Þó að við færum hvor í sína áttina vorum við beztu vin- ir, og ég er viss um að hann gerir allt, sem hann getur til að hjálpa þér.“ „Mikið er ég glöð,“ sagði Sonja. Augun í henni lljómuðu af gleði. „Þegar ég hugsa til þess hve margir læknastúdentar verða að berjast áfram án hvatningar eða stuðnings frá sínum nánustu, finnst mér þetta of gott til þess að vera satt.“ „Þú efur rétta hugarfarið, Sonja. Meðan þú ert auðmjúk mun allt lukkast sem þú tekur þér fyrir hendur,“ sagði Harrison læknir alvarleg- ur. „Það er sívaxandi þörf fyrir kvenlækna á fæðingarstofnunum um allt land. Mér yrði það mikil gleði á gamalsaldri að vita, að dóttir mín ætti þátt í því að gera mæðurnar hraustari og farsælli." Síminn hringdi — slík tæki þegja sjaldnast lengi á læknisheimilum Harrison læknir flýtti sér að svara og kom aftur inn í borðstofuna og yfirbragðið var alvarlegt á þreytulegu andlitinu. „Það var ljósmóðirin," sagði hann. „Hún er í vandræðum með frú Mortimer, sem á að eign- ast tvíbura, og þarf á hjálp minni að halda. Ég bjóst alltaf við að ungfrú Thompson gæti ekki ráðið við þetta ein. Frú Mortimer er ekki nema 18 ára og ekki vel hraust. Og maðurinn hennar er skíthæll. Haugaletingi, en samt lét hann hana þræla meðan hún gat staðið uppi. Viltu gera svo vel að aka bílnum mínum að dyrunum. Það eru nærri því tíu kílómetrar til Mortimers, svo að ég má engan tíma missa.“ „Ég kem með þér, pabbi,“ sagði Sonja og hleypti sér í gamlan skinnjakka, sem hékk í ganginum. „Nei, Sonja, þú verður að vera heima. Ég vil ekki að þú farir út um miðja nótt, sérstaklega þegar þú ert slituppgefin eftir prófið. Farðu nú að hátta og hvíldu þig vel.“ „Nei, ég kem með þér,“ sagði Sonja einbeitt. „Ég get aldrei lært nóg um þetta. Ég hef að vísu horft á margar fæðingar, en í næstu viku á ég að fara að vinna hjá sir James, mundu það.“ „Jæja, komdu þá,“ sagði Harrison læknir og brosti. „Þetta tilfelli er sjálfsagt talsvert flókið, svo að það er gott að þú komir með mér.“ Þegar þau voru sezt í bílinn tók Sonja stýrið, svo að faðir hennar þyrfti ekki að reyna á sig. Enn var mesta rok, og regnið lamdi bílrúðurn- ar. „Það er skrítið að hugsa til þess, að nú eru þau öll hin að dansa á læknastúdentadansleikn- um,“ sagði Sonja. „Er það? Hvers vegna ert þú ekki þar, Sonja?“ „Vegna þess að ég vildi heldur segja þér frá prófinu mínu,“ svaraði hún. Harrison læknir svaraði ekki. Hann þrýsti að- eins að hvítu hendinni á stýrinu. Hann vissi, að það var dótturást hennar, sem hafði valdið því að hún fór ekki á dansleikinn, og hjarta hans barðist af þakklæti. Sonja var úr rétta efniviðn- um, og þegar sá tími kæmi að hann fengi að endursameinast konunni sinni, sem var látin fyrir mörgum árum, mundi ung stlka, sem var engu síður skyldurækin en hann sjálfur, taka við starfinu hans. Hálftíma síðar stóðu þau bæði í svefnherberg- iskytrunni, þar sem Betty Mortimer lá og barðist fyrir sínu eigin lífi og ófædda barnsins. „Henni líður hræðileg,“ sagði ljósmóðirin. „Æ, bara að þetta takist. Mannræfillinn hennar sit- ur á kránni og drekkur sig fullan, og það eru ekki nema tveir tímar siðan gert var orð eftir mér.“ „Ég vona að þér afsakið þó að ég sletti mér fram í. Við þurfum fyrst og fremst að fá betra 1 jós,“ sagði Sonja. Þarna var aðeins eitt kerti á borðinu. „Við getum notað ljóskerið, sem ligg- ur í bílnum.“ „Ágætt, Sonja,“ sagði faðir hennar. „Þetta var heillaráð.“ Framh. FÁLKINN — VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. — Afgreiðsla: Vesturgötu 3, Reykjavík. Opin kl. 10—12 og IV2—6. Sími 12210. Ritstjóri: Skúli Skúlason. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.