Fálkinn - 13.11.1959, Page 14
14
FÁLKINN
— 99MSallets: ILS.jX.'*
Framh. af bls. 3.
vel þann aga og þá þjálfun, sem
flokkurinn hefur fengið hjá meist-
ara sínum. Næsta atriði, „Síðdegi
skógarpúkans“, við tónverk eftir
Debussy, var unaðslegt, þótt ekki
fengi það beztar undirtektir leik-
húsgesta. Ballett þessi er á mörkum
draums og veruleika og býr yfir
töfrandi dul og lokkandi seið. Dans-
endur voru tveir, Wilma Curley og
John Jones, og skiluðu hlutverkum
sínum á minnlegan hátt. Að viti
undirritaðs var þessi ballett hátind-
ur sýningarinnar.
Þriöja atriði sýningar, New York
Export op. jazz, hefur ef til vill vak-
ið mesta hrifningu áhorfenda. Við
fljóta yfirsýn minnir þessi ballett
einna mest á leikfimisæfingu, en sé
betur að gáð, sést tilgangur meist-
arans og markmið. Hann er að sýna
rótleysi og glundroða þess fallvalta
tíma, sem við lifum á, og sveigir
hverja hreyfingu dansendanna und-
ir miskunnarlaust lögmál listarinn-
ar. Tónlistin við þennan ballett er
eftir Robert Prince.
Síðasti ballettinn heitir „Tónleik-
arnir“ eða „Hættuspil hvers manns“
við unaöslega tónlist Chopins var í
senn broslegur, alvarlegur og jafn-
vel hátíðlegur og komu þar ef til
vill bezt í ljós hæfileikar og fjöl-
hæfni leikendanna að geta gert
þessu öllu jafngóð skil.
Það skal enn tekið fram, að þessi
ameríski ballettflokkur „kom, sá og
sigraði“. Og sá sigur var verðskuld-
aður. Tjöld, búningar og ljós var
sem bezt varð á kosið, en megin-
heiðurinn af þessari sýningu á að
sjálfsögðu meistarinn sjálfur, Jer-
ome Robbins.
Ég hef aldrei heyrt jafninnileg
fagnaðarlæti leikhúsgesta Þjóðleik-
hússins og að þessu sinni. Þeir
kunnu sannarlega gott að meta.
Karl ísfeld.
— ★ —
Giftu konurnar á St. Kilda gengu
með hvítt band um hárið í gamla
daga, svo að hœgt vœri að sjá, að
þær væru öðrum bundnar. Svo að
siðurinn með bandið tíðkaðist víðar
en hjá Eskimóakonunum, sem Sig-
urður Breiðfjörð segir frá í „Græn-
landsvísum“.
o
Elzta lyfjabúð í heimi er Tranc-
iscanalyfjabúðin í Ragusa í Júgó-
slavíu. Hún hefur aldrei verið lok-
uð síðustu 650 árin.
-AL
uecf
HISSA-
Hinn 22. sept. 1935 brann verk-
smiðja í Rue Croix-Nivert í París
til kaldra kola. Það eina, sem bjarg-
aðist úr eldinum, var skáldsaga eft-
ir d’Annunzio, sem heitir „Eldur-
inn“.
o
í Manzanillo í Mexico bar það
einu sinni við, að fljót eitt flóði yf-
ir járnbrautarteina og bar með sér
mörg þúsund krabba. Varð svo mik-
il hálka af þeim á teinunum, að
hjólin „spóluðu“ án þess að lestin
kœmist úr sporunum.
o
Við Chepstow-óðalið í Englandi
er 21 metra hæðarmunur flóðs og
fjöru.
Nýja stundataflan —
-K
FRAMH. AF 9. SÍÐU
Kvennakapellan í St. Bartholome-
usarkirkjunni í London hefur bæði
verið knipplingagerð, prentsmiðja
og hesthús um dagana. Hún var
ekki vígð sem kirkja fyrr en 1889,
en hafði þá verið notuð sem hesthús
og verkstœði í 350 ár.
o
í Spörtu hinni fornu höfðu yfir-
völdin gamlan dólg í sinni þjónustu,
sem hafði það embætti á hendi að
slangra blindfullur um göturnar á
hverjum degi, œskulýðnum til við-
vörunar.
yfirleitt alls ekki þvott fyrr en við
höfum notað allt, sem við eigum
hreint.
Meðan ég lét móðan mása varð
mér ljóst, hvað nýja ákvörðunin
mín hafði í för með sér. — Ó, elsk-
an mín, ég segi upp stöðunni minni.
Ég vil lifa eðlilegu lífi. Ég ætla að
gera mér nýja stundatöflu. Ég ætla
að þvo á mánudögum, strjúka á
þriðjudögum, gera hreint á miðviku-
dögum, baka á fimmtudögum ...
Hann tók utan um mig og þrýsti
mér svo fast að sér, að ég gat að-
eins hvíslað síðustu setninguna: —
... og kyssa þig á laugardögum!
tírcAAgáta 'JálkanA
LÁRÉTT SKÝRING:
1. Ávíta, 5. Óskunda, 10. Fól, 12.
Föl, 14. Staupið, 15. Fornafn, 17.
Súlu, 19. Kvenheiti, 20. Líflaus, 23.
Á fugli, 24. Urmull, 26. Óþef, 27.
Grannur, 28. Höfuðborg, 30. Angan,
31. Rómversk gyðja, 32. Eftir grát,
34. Sjávargróður, 35. Ýrði, 36. Ó-
frjálsir, 38. Lokka, 40. Fjær, 42.
Tjóni, 44. Vörumerki, 46. Gróði, 48.
íláta, 49. Vífið, 51. Peninga, 52.
Tímabil, 53. Áletrun, 55. Sker, 56.
Ávöxtur, 58. Tónn, 59. Ræðið, 61.
Angraði, 63. Snæddur, 64. Þjóð-
flokkur, 65. Stjórnina.
LDÐRÉTT SKÝRING:
1. Dómsúrskurði, 2. Karlmanns-
nafn, 3. Aga, 4. Samhljóðar, 6. Sam-
hljóðar, 7. Kvenheiti, 8. Hold, 9.
Hvíldarstaðurinn, 10. Fant, 11. Karl-
mannsnafn, 13. Greinarmerki, 14.
Grafa, 15. Prestsetur, 16. Nagla, 18.
í kirkjum, 21. Fangamark, 22. Tveir
eins, 25. Dánarminning 27. Brask-
ara, 29. Byggingu, 31. Fanta, 33.
Straumur, 34. Fornafn, 37. Firn,
39. Samansaumaðir, 41. Heimting,
43. Kerling, 44. Fornafn, 45. Korn,
47. Eyddur, 49. Fangamark, 50.
Tveir eins, 53. Orm, 54. Heilabrot,
57. Ambátt, 60. Fljót, 62. Hljóðst.,
63. Fornafn.
cyCauón d Iroiógdtu í iúaita lla&i
LÁRÉTT RÁÐNING:
1. Hlýri, 5. Ósköp, 10. Svola, 1L
Lúrir, 13. ÁE, 14. Fikt, 16. Lóga,
17. Og, 19. Byr, 21. Fló, 22. Órar,
23. Hnakk, 26. Gálu, 27. Tau, 28.
Rangala, 30. Gan, 31. Svala, 32.
Senna, 33. Ul, 34. KN, 36. Vesæl,
38. Ákafi, 41. Frí, 43. Trússið, 45.
RRR, 47. Sómi, 48. Iðnir, 49. Spói,
50. Ama, 53. Ann, 54. La, 55. Sker,
57. Næla, 60. AD, 61. Rúnir, 63.
Kátar, 65. Rýrna, 66. Birta.
LGÐRÉTT RÁÐNINB:
1. HV, 2. Lof, 3. Ýlir, 4. Rak, 6.
Sló, 7. Kúga, 8. Öra, 9. PÍ, 10. Seyra,
12. Rolla, 13. Ábóta, 15. Tunna, 16.
Lúkas, 18. Góuna, 20. Raus, 21.
Fága, 23. Hallæri, 24. AG, 25. Klekk-
ir, 28. Raust, 29. Annað, 35. Afsal,
36. Víma, 37. Lúður, 38. Ásinn, 39.
Irpa, 40. Grind, 42. Rómar, 44. SN,
46. Rónar, 51. Ýkir, 52. Blár, 55.
Sný, 56. Ern, 58. Æki, 59. Att, 62.
Úr, 64. AA.