Fálkinn - 28.12.1960, Qupperneq 27
40 miiijónir manna
hafa frá síðustu
heimsstyrjöld misst
heimili sín
★ 900 000 Arabar hafa yfirgefið ísrael.
Þeir flýðu til arabísku rikjanna.
★ 3 milljónir íbúa í Norður-Kóreu hafa
misst heimkynni sín. Þeir flýðu til
Suður-Kóreu.
ifc- 1 milljón Kínverja hafa misst heim-
kynni sín. Þeir flýðu til Hongkong.
1 milljón íbúa Norður-Vietnam hafa
misst heimkynni sín. Þeir flýðu til
Suður-Vietnam.
■^r 200 000 Ungverjar hafa misst heim-
kynni sín. Þeir flýðu allir til Vest-
urlanda.
250 000 Alsírbúar hafa misst heim-
kynni sín. Þeir flýðu til Túnis og
Marokkó. Helmingur þeirra eru
börn.
■jr 10 000 Tíbetbúar hafa misst heim-
kynni sín. Þeir flýðu til Indlands.
Meira en 2.3 milljónir Austur-Þjóð-
verja hafa misst heimkynni sín. Þeir
flýðu til Vestur-Þýzkalands. Enn í
dag lifa 330 000 af þeim í lélegum
flóttamannabúðum. 55 000 eru börn
undir 15 ára aldri.
Þetta eru naktar og óhugnanlegar töl-
ur, en sannar engu að síður. Og þær eru
ekki tæmandi: Enn eru ótaldar þúsund-
ir af Tyrkjum, Búlgörum, íbúum Suður-
Ameríku og Suður-Afríku, sem hafa flú-
ið heimkynni sín.
Flóttamenn búa við þau erfiðustu skil-
yrði, sem hægt er að hugsa sér. Mynd-
irnar á þessum síðum gefa okkur örlítið
til kynna, hvernig ástatt er fyrir þús-
undum flóttabarna. Skilyrðin eru vissu-
lega harðneskjuleg: Þau eiga varla lepp-
ana utan á sig og þjást tíðum af ýmiss
konar sjúkdómum, þar sem matur er af
skornum skammti.
Ætli það mundi saka, þótt við hugsuð-
um til þessara barna, næst þegar við
setjumst við matborðið og snæðum ríku-
lega máltíð?
Myndirnar hér á síðunni tala sínu máli og þarfnast ekki mikilla skýringa.
Að ofan sést ung flóttakona með barn sitt, en að neðan sjást fjögur ung-
versk börn. Þau eru heimilislaus, nýkomin til framandi lands til dvalar í
flóttamannabúðum. Hvaða framtíð bíður þeirra?