Fálkinn - 01.03.1961, Page 34
ann undir höndum, var í öðrum vagni.
Við gátum engan veginn haft samband
við eimreiðina og beðið þá að stöðva.
Eina ráðið var að komast upp um lúgu
á þakinu. Ég bað félaga mína að lyfta
mér upp og komst þannig upp á vagn-
þakið. Enda þótt lestin væri á ferð, tókst
mér að stökkva af þaki vagnsins yfir á
næsta vagn og svo koll af kolli. Eins og
gefur að skilja var þarna teflt á tæp-
asta vaðið. Loks komu þeir í eimreiðinni
auga á mig og stönzuðu. Við gátum lítið
gert nema setja plástra á sárin og mað-
urinn fór strax að hósta blóði. Eftir
tveggja tíma ferð komum við honum á
sjúkrahús og þar dó hann nokkrum
klukkutímum seinna. Bezti vinur hans
var skilinn eftir hjá honum á spítalan-
um. Hann kom til okkar nokkrum dög-
um síðar. Grátandi þakkaði hann mér
fyrir að hafa hætt lífi mínu á járnbraut-
inni til að reyna að bjarga vini hans.
FRJALS A NÝ.
Eftir notalega ferð yfir Atlantshafið
lentum við í Newport News. Þar var
stór lúðrasveit á bryggjunni, sem lék
marsa og dægurlög. Ég verð að viður-
kenna, að mér er rórra innanbrjósts nú,
heldur en ágústskvöldið, sem við stig-
um um borð í herflutningaskipið í New
York. Eftir nokkra dvöl þarna hélt ég
áleiðis til Los Angeles og var skráður
úr hernum á Þorláksmessu 1945. Vant-
aði þá aðeins nokkra daga upp á þrjú
ár frá því ég var tekinn í hann.
Að lokinni herþjónustu áttum við þess
kost að ganga á skóla og greiddi ríkið
allan kostnað. Ég fór á „college“ og lagði
stund á rannsóknarlögreglustörf. Tók
próf í þeim fræðum hjá lögreglunni í
Los Angeles 1947. Ég ákvað að skreppa
til íslands og kom hingað heim rétt fyr-
ir jólin. Ég sótti um og fékk stöðu við
sakamálaembættið og hef verið þar
síðan.
«ti r,j
☆
Fálkinn í næstu viku:
★ Frá Reykjavík til Rússlands, 1942. Frásögn af mestu sjóorrustu
heimsstyrjaldari'nnar síðari.
★ Hvað borða Reykvíkingar mikinn fisk? Innlend grein og
myndir.
★ Svarti dauði, íslenzt frásögn eftir Þorstein Jónsson frá Hamri.
★ Sappho, grein um grísku skáldkonuna, sem nú er verið að gera
kvikmynd um.
★ Hvar hefurðu komið? Ný verðlaunagetraun.
★ Undir fölsku flaggi, smásaga byggð á sönnum atburðum.
★ Kvennaþáttur um hrogn og lifur eftir Kristjönu Steingríms-
dóttur.
★ Á Nemendamóti í Verzlunarskólanum. Innlend grein og myndir.
★ Dagur Anns spjallar við vanfærnar konur í afslöppunaræf-
ingum.
★ Og ótal margt fleira.
HriAtjáh (juilaucfAAcH
hæstaréttarlögmaður.
Hafnarstræti 11. — Sími 13400.
Reykjavík.
0M0
Sveirnbjöm Dagfinnsson, hrl.
Einar Viðar, hdl.
Málflutningsskriístofa
Hafnarstræti 11 . Sími 19406
Shilar yður
hrítasta þvatti
i heiwni
Hilmar Foiss
Löggiltur skjalþýðandi
og dómtúlkur
Hafnarstræti 11 . Sími 14824 . Rvík
34
FALKINN