Fálkinn - 22.03.1961, Page 13
Langflestar voru lausnirnar réttar, og
var dregið úr þeim um hin glæsi-
legu verðlaun: HANSASKRIFBORÐ frá
Húsgagnaverzlun Austurbæjar. Við
fengum unga og fallega stúlku til þess
að draga, og hún dró lausn Arnfríðar
Mathiesen, Grœnukinn 17, Hafnarfirði.
☆
Verðlaunin voru afhent strax daginn
eftir í Húsgagnaverzlun Austurbæjar og
við notuðum tækifærið og spjölluðum
lítilsháttar við Arnfríði.
Hún kvaðst hafa sent lausn sína meira
í gamni en alvöru og alls ekki látið
sér koma til hugar, að hún dytti í lukku-
pottinn og hlyti verðlaunin.
—- Fannst yður gátan þung?
— Nei, alls ekki. Að vísu varð mað-
ur að fletta upp í símaskrá og viðskipta-
skrá og svo hjálpaði maðurinn minn
mér heilmikið. En mér finnst miklu
skemmtilegra að ráða gátur, sem maður
þarf að hugsa eitthváð um og hafa eitt-
hvað fyrir. Auk skemmtunarinnar verð-
ur maður margs vísari um ýmis fyrir-
tæki og stofnanir og sú þekking getur
oft komið sér vel.
— Ætlið þér að ráða næstu gátu?
— Já, ég er nú hrædd um það. Ég
er þegar langt komin.
Fulltrúi Fálkans (lengst til vinstri) og Ragnar Björnsson, forstjóri Hús-
gagnaverzlunar Austurbæjar (lengst til hægri) skála fyrir hinum heppna
vinnandi í fyrstu auglýsingagetraun Fálkans, Arnfríði Mathiesen.
Strax og sýnt var, að auglýsingaget-
raunir af þessu tagi nutu vinsælda með-
al almennings, ákváðum við að halda
þeim áfram og á öðrum stað í þessu
blaði birtist sú.fjórða í röðinni. Um
verðlaunin er ekki hægt að segja, því
að það eru einmitt þau, sem lesandinn
á að finna út úr getrauninni. En eitt
er þó óhætt að fullyrða: Þau eru glæsi-
leg, svo að það er sannarlega til mikils
að vinna.
• , l.'- ■ - v
, *
j
Húsgagnaverzlun Austurbæjar sýndi þá rausn að gefa verðlaunagrip, glæsi-
legt Hansa-skrifborð, í fyrstu auglýsingagetraun Fálkans. Verzlunin er ein
stærsta og þekktasta húsgagnaverzlun hér í bæ og hefur á boðstólum geysi-
mikið úrval af vönduðum og smekklegum húsgögnum. Á myndinni hér
að ofan sjáum við nýtízkulegt sófasett ásamt sófaborði. Litla myndin hér
til vinstri er af hægindastól ásamt fótaskemli. 1 ráði er að flytja stóla af
þessari gerð til Ameríku á næstunni. (Ljósm. Oddur Ólafsson).
FALKINN 13