Fálkinn


Fálkinn - 22.03.1961, Blaðsíða 18

Fálkinn - 22.03.1961, Blaðsíða 18
V " Að undanförnu h''jfur mikið verið rætt um handbolta og ágæta frammistöðu íslenzka landsliðsins í heimsmeistara- mótinu í Þýzkalandi. Minna hefur þó verið rætt um þróun þessarar íþrótta- greinar hérlendis,. og lítið um þann mann, sem fyrir réttum 40 árum kom hingað heim frá námi við íþróttaháskól- ann í Kaupmannahöfn og kenndi íslend- ingum handbolta. Þessi maður er Valdimar Svein- björnsson, íþróttakennari við Mennta- skólann í Reykjavík. Valdimar fæddist á Hámundarstöðum í Vopnafirði 1896. Hann kom til Reykjavíkur og settist í Kennaraskólann 1915 og kenndi síðan í Reykjavík þar til hann fór til Kaup- mannahafnar og nam við íþróttaháskól- ann þar 1920—1921. í Kaupmannahöfn kynntist Valdimar fyrst handboltanum, sem þá var á byrj- unarstigi þar. Minnist hann þess að þeg- ar handbolti var fyrst sýndur í skólan- um, hafði enginn nemenda séð þennan leik. Áður en Valdimar fór til Islands aftur hafði hann þó séð nokkra frum- stæða handboltaleiki, þ. á m. keppni milli Kaupmannahafnar og Helsinga- eyrar. Valdimar sá þegar fram á að þessi leikur mundi henta vel íslendingum, enda þótt boltaleikir innanhúss væru hér næstum óþekkt fyrirbrigði á þeim tímum. Er hann kom heim 1921 og gerð- ist kennari við Miðbæjarskólann, þekkt- ist ekki að komið væri með bolta í í- þróttasal. Valdimar hóf sjálfa hand- boltakennsluna ekki þegar í stað, held- ur æfði menn í ýmsum öðrum bolta- 18 FÁLKINN Við brugðum okkur niður í leikfimihús Menntaskólans í Reykjavík og tók- um mynd af Valdimar Sveinbjörnssyni, þar sem hann var í óða önn að kenna piltum leikfimi. Margur menntaskólaneminn hefur lært handknatt- leik hjá Valdimar og þá hefur tíminn verið allt of fljótur að líða. Flestir nemendur hans kannast_við þetta orðtak hans: „Eitt mark — og svo í bað!“

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.