Fálkinn - 22.03.1961, Side 22
Páskaterta.
125 g smjörlíki
250 g sykur
4 egg
250 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
Rifið hýði af sítrónu
1 dl mjólk.
Sítrónubráð:
75 g smjör
150 g sykur
Safi úr 2 sítrónum
2 egg.
Sykurbráð:
150 g flórsykur
nál. 2 msk. vatn
ávaxtalitur, ef vill.
Venjulegt hrært deig. Eggin aðskilin.
Stífþeyttum eggjahvítunum blandað í
seinast. Bakað í kringlóttu tertumóti
nál. 1 klst. við 175°C.
Kljúfið kökuna, þegar hún er köld,
leggið hana saman með sítrónubráð og
hjúpið með sykurbráð, sem lita má föl-
græna með ávaxtalit. Skreytt með marg-
litum frönskum linsum.
Sítrónubráðin er búin þannig til:
Blandið öllu saman, hitið það yfir gufu,
þar til það fer að þykkna, 10—15 mín-
útur. Hrærið stöðugt í á meðan.
Kanelterta.
100 g smjör
100 g sykur
125 g hveiti
IVz tsk. kanell.
Fylling:
14 1 rjómi
Rifið súkkulaði.
Smjör og sykur hrært vel. Hveiti og
kanel blandað saman við.
Deiginu skipt í 6 hluta, smurt í smurð
tertumót með lausum botni. Bakað nál.
6 mínútur við góðan hita.
Botnarnir látnir kólna dálítið, áður
en þeir eru losaðir af botnunum.
Botnarnir lagðir saman með þeyttum
rjóma, sem í er blandað rifnu súkku-
laði, rétt áður en kakan er borin fram.
Fallegt er að bera bráðið súkkulaði
á efstu kökuna, bezt að gera það með
pensli, nokkru áður en kakan er lögð
saman.
Möndluterta.
3 eggjahvítur
125 g flórsykur
100 g möndlur.
Greifynjukökur.
Svona er platan útbúin fyrir möndlu-
tertuna.
Lagt saman með:
2 eggjarauður
1 msk. sykur
Vz tsk. vanilla
2i/2 dl rjómi
2 blöð matarlím
1 eggjahvíta, ef vill.
Eggjahvíturnar stífþeyttar. Flórsykri
og afhýddum, möluðum möndlum bland-
að varlega saman við.
Deiginu skipt í tvennt, látið á smurða
og hveitistráða plötu. Teiknið tvo hringi
á plötuna.
Bakað nál. 20 mínútur við vægan
hita, 150 °C.
Gott er að losa kökurnar með pönnu-
kökuhníf, þegar þær eru hálfbakaðar.
Festast þá síður við plötuna.
Botnarnir. lagðir saman með þeyttum
rjóma eða búðingsbráð, sem búin er til
á þennan hátt: Eggjarauðurnar þeyttar
með sykrinum. Matarlímið lagt í bleyti,
brætt við gufu, hrært saman við eggja-
rauðurnar. —• Stífþeyttum rjóma, sem
kryddaður er með vanillu, blandað sam-
an við.
Vilji maður hafa bráðina mjög létta,
er stífþeyttri eggjahvítu blandað í um
leið og rjómanum. '
Ávaxtakaka.
250 g hveiti
200 g smjörlíki
80 g flórsykur
1 eggjarauða.
Vanillubráð:
2 eggjarauður
4 msk. sykur
1 tsk. vaniUa
3 fullar tsk. hveiti
1/4 1 rjómi
Niðursoðnir ávextir.
Venjulegt hnoðað deig. Flatt út, tertu-
mót þakið með deiginu. Bakað við góð-
an hita, 250°C, í 7 mínútur. Kökuskelin
fyllt með vanillubráð: Eggjarauðurnar
þeyttar með sykrinum, vanillu, hveiti
og rjóma hrært saman við. (Notast má
við rjómabland). Allt látið í pott, hrært
stöðugt í þar til það sýður. Kælt. Skreytt
með niðursoðnum ávöxtum og vínberj-
um, ef til eru.
Súkkulaðikaka.
125 g smjörlíki
65 g sykur
65 g flórsykur
3 egg
25 g kakaó
125 g hveiti
1 tsk lyftiduft.
Súkkulaðibráð:
125 g smjör
125 g flórsykur
3 msk. kakaó
2 egg.
Venjulegt hrært deig. Deiginu skipt í
tvennt, bakað í velsmurðum, aflöngum
mótum við 225° í nál. 15 mínútur.
Lagt saman með súkkulaðibráð: Smjör
og sykur hrært vel, kakaó og eggjun-
um hrært'saman við, þeytt vel. Hluti af
bráðinni smurt utan á kökuna. Mynst-
ur teiknað á kökuna með gaffli, skreytt
með möndlum.
Ávaxtakaka og súkkulaðikaka.
22 FÁLKINN