Fálkinn - 22.03.1961, Qupperneq 30
Dollaraprinsessan-
Framh. af bls. 26.
höfðu engar áhyggjur af því. Þeir biðu
bara áfram ...
Enn liðu tíu mínútur. Þá fór annan
þeirra að gruna margt. Hann hljóp út
til að sjá hvort það væri gluggi á snyrti-
herberginu.
Og svo var líka ...
En þá var báturinn lagður af stað.
Frú Sigrist fékk fréttirnar og byrjaði
að senda símskeyti út og suður. Fall-
byssubátur var sendur til að elta uppi
elskendurna. Betty Shannon og Bugsy
Siegel voru kölluð til yfirheyrslu. En
enginn gat sagt að þau hefðu gert neitt
ólöglegt. Þau höfðu aðeins hjálpað elsk-
endum að ná saman.
En það var ekki eins auðvelt að
höndla hamingjuna og Bobo hafði hald-
ið. Á Haiti fékk Gregg að vita að þau
gætu ekki gifzt, þar sem Bobo var að-
eins 17 ára. Hefði hún verið 19 hefði
verið allt öðru máli að gegna.
Samkvæmt símskeyti frá Betty hröð-
uðu þau sér til Ciudad Trujillo, höfuð-
borgarinnar í Dóminíkanska lýðveldinu.
Þar beið Flor de Oro Trujillo Rubirosa
eftir þeim full samúðar. Hún kom í
kring brúðkaupi í flýti. Vígsluathöfnin
tók nákvæmlega þrjár mínútur. En var
hún lögleg? Eða gat frú Sigrist látið ó-
gilda hana?
í öryggisskyni fóru hjónin til San
Juan í Puerto Rico til þess að láta gefa
sig saman aftur.
Juarez var í peningahraki og varð
fyrir þungu áfalli, þegar hann fékk að
vita að móðir Sigrist hafði enn nokk-
ur tromp á hendinni. Það kom nefni-
lega í ljós að Bobo átti aðeins að fá arf-
inn greiddan ef hún giftist með sam-
þykki móður sinnar. Þetta fengu þau
að vita eftir brúðkaupið. En vinur Juar-
ez lét þau fá stað að búa á og auk þess
útvegaði hann Juarez vinnu í spilavíti.
Heima í Nassau harmaði frú Sigrist
Hœrri stóll fyrir ísinn!
30 FALKINN
bæði manns- og dótturmissinn. Leyni-
lögreglumennirnir höfðu komið nokkr-
um mínútum of seint til að hindra gift-
inguna í Ciudad Trujillo, flýttu sér síð-
an til San Juan og komu of seint þar
líka. Ekkert var unnt að gera. Eina sem
hún gat var að taka fyrir tekjur dóttur-
innar. Og það gerði hún samstundis.
Tveim dögum seinna fékk Bobo að
vita að hún var ekki lengur auðugur
erfingi, heldur aðeins fátæk eiginkona
starfsmanns í spilavíti. — Þegar jatan
er tóm kljást hestarnir, segir gamall
málsháttur. Þannig varð það einmitt
með Bobo og Gregg. Yfirvöldin í Ba-
hama voru á hælunum á honum, af því
að hann hafði strokið með Bobo, svo
þangað gat hann ekki farið. Til Banda-
ríkjanna þorði hann ekki að fara því þá
gátu Bahamayfirvöldin krafizt þess að
hann yrði framseldur.
Til að vera alveg öruggur um sig lét
hann enn einu sinni vígja þau Bobo.
Ef Gregg hafði vonað að Bobo fengi
peningana sína, þá skjátlaðist honum.
Þau áttu varla eyri til. Hefðu vinir
þeirra ekki lánað þeim hefðu þau soltið.
Auk þess uppgötvaði Bobo að hún var
vanfær og henni var neitað um allan
þann munað, sem hún var vön frá barn-
æsku. Hún gekk um göturnar og horfði
á fallegu hlutina í gluggunum. En hún
gat ekkert keypt. Þegar hún reyndi að
láta skrifa hjá sér, var henni vísað burt.
Hún nauðaði á Gregg að hann yrði að
útvega peninga á einn eða annan hátt.
Hann reyndi að spila fjárhættuspil með
launin sín, en tapaði öllu. Svo urðu þau
að lifa á miskunn annarra mánuðum
saman.
Það er sælla að gefa en þiggja. Og
Paul nokkur Weesner hjálpaði þeim
lengi vel. En að lokum varð hann
þreyttur á að halda þeim uppi og sagði
að þau yrðu að bjarga sér á annan hátt.
Strax fjórum mánuðum áður en Bobo
átti barnið var hjónabandið tekið að
fara í mola. Peningaleysið eyðilagði það.
Dekurbarnið Bobo kunni ekki við þá
óvissu tilveru, sem Juarez bjó henni.
Og svo var hún ekki lengur ástfangin
af honum. Hin blinda ást til manns, sem
var miklu eldri en hún var kulnuð. Og
skyndilega uppgötvaði hún að allt, sem
Juarez sagði og gerði var leiðinlegt og
heimskulegt. Hún kastaði allri skuldinni
á hann.
Bianca litla fæddist og þau sættust
um sinn. En grár raunveruleikinn vaj
allt annað en spennandi brotthlaup í
tunglsskini.
Gregg hafði tekizt að koma þeim til
New York. Þar bjuggu þau í ömurlegri
íbúð og höfðu fyrir brýnustu nauðsynj-
um.
En dag nokkurn var Bobo búin að fá
nóg. Hún hljópst á brott með Biöncu.
En Juarez náði henni á flugvellinum og
hún varð að gjöra svo vel að koma heim
aftur. Svo gekk allt vel um stund unz
Bobo fór aftur burt með barnið. Og nú
gekk henni betur. Áður en Juarez hafði
upp á þeim voru þær komnar á enska
grund. Þar gátu bandarísku yfirvöldin
ekki náð til hennar.
En barnið var bandarískur ríkisborg-
ari. Juarez dó ekki ráðalaus. Hann réði
lögfræðing í skyndi og aflaði sér skip-
unar um að barnið yrði afhent honum
tafarlaust. Dómari einn dæmdi Bobo í
'30 daga fangelsi ef hún sendi ekki barn-
ið aftur innan viss tíma. Bobo var nú
komin til London. Hér byrjaði ævin-
týralegur flótti með barnið frá einum
staðnum til annars.
í apríl 1958 ákvað Bobo að snúa sér
til móður sinnar. Hún fór til Nassau og
lagði barnið í kjöltu móður sinnar — og
bað um fyrirgefningu.
Ekkert gerir móður eins bljúga eins
og að sjá fyrsta barnabarnið. Bobo var
fyrirgefið og fékk alla peningana, sem
móðirin hafði haldið. Þá gat hún ráðið
sér lögfræðinga, sem lögðu höfuð í bleyti
hvernig hún ætti að losna við Juarez.
Bobo vildi hafa fullan rétt til barns-
ins. En bandarísku yfirvöldin ákváðu að
faðirinn skyldi einnig hafa rétt til þess.
Bianca ætti að vera tíu mánuði ársins
hjá móður sinni og tvo mánuði hjá föð-
urnum. Bobo neitaði að samþykkja
þetta. Hún óttaðist að ef Juarez fengi
barnið mundi hann gera allt til að halda
því. Þess vegna lagði hún áherzlu á að
heimili Juarezar væri ekki við hæfi lít-
ils barns. En Juarez svaraði í sömu
mynt.
Lítið barn hafði áreiðanlega ekki gott
af að ferðast frá einni stórborg til ann-
arrar með móður, sem hugsaði um það
eitt að skemmta sér, sagði hann.
Bobo var nefnilega komin aftur til
London með Biöncu. Frá Sigrist var þar
einnig. Og þar börðust þær fyrir að fá
að halda barninu. Svo lengi sem þær
væru á brezkri grund gátu bandarísku
yfirvöldin ekki náð til þeirra.
Bobo stundaði næturklúbba og reyndi
að fá eitthvað út úr lífinu. Hún neitaði
að hafa blaðaviðtöl og vildi ekki svara
spurningum um hvort hún ætlaði að
skilja við Juarez.
Það var altalað að Bobo væri hrifin
af enska kvikmyndaframleiðandanum
Kevin McClory. Þau sáust oft saman á
skemmtistöðum. McClory hafði einnig
heimsótt frú Sigrist og beðið um leyfi
til að kvænast Bobo. Og það fékk hann.
Á meðan setti Juarez allt af stað til
að fá barnið. Það gat verið að lögfræð-
ingar hans gætu knúið fram skipun um
að barnið skyldi afhent honum. Auk
þess frétti Bobo, að hann hefði í hyggju
að koma til London og raena barninu.
Hún fór í laumi til Nissa með dóttur
og barnfóstru. Þar var hún örugg fyrir
bandarískum og enskum yfirvöldum.
En skilnaðurinn frá Juarez er ekki
enn kominn í lag. Bobo og Kevin Mc-
Clory eru hætt að vera ástfangin.
Það er erfitt að ná tali af Bobo Sigr-
ist,, en höfundi þessarar greinar tókst
það. Hún vildi helzt ekki tala um einka-
líf sitt. Það eina sem hún minntist á var