Fálkinn - 22.03.1961, Blaðsíða 31
dóttirin Bianca og hvað hún væri indæl.
— Eruð þér hamingjusamar?
— Það er undir því komið hvað þér
eigið við með orðinu hamingjusöm,
svaraði hún. — Ég er hamingjusöm að
eiga Biöncu. Þess vegna sé ég ekki eft-
ir að hafa gifzt Juarez. En ég er ekki
ánægð að vera enn gift honum eða að
geta ekki farið til Ameríku. Ég á nóg
af peningum og get gert það sem ég vil.
Ef ég aðeins fæ að hafa Biöncu hjá mér
er allt gott.
Bobo gerir allt til að gleyma. Hún
kastar sér út í skemmtanalífið og tekur
upp á furðulegustu hlutum. Hún birtist
í samkvæmi í Mayfarir í London í græn.
um sari og kyssti ameríska söngvarann
Burl Ives.
Hún reyndi að koma fram í sjónvarpi,
en sá fljótt að svo erfitt starf hæfði
henni ekki. Heill herskari af ungum
mönnum hafa snúizt í kringum hana.
En enginn þeirra fer með henni út oft-
ar en einu sinni tvisvar. Þá er það búið.
Náinn vinur Bobo var spurður hvort
hún mundi nokkru sinni verfða ástfang-
in aftur.
— Það hugsa ég áreiðanlega. — En
sem stendur er hún í of miklu uppnámi
eftir allt, sem hún hefur orðið að þola.
Dag og nótt hefur hún áhyggjur að Ju-
arez kunni að ræna barninu frá henni.
Hún hefur tvo leynilögreglumenn,
sem fylgja henni og barninu hvert, sem
þær fara. í tvö ár hafa þeir haldið vörð
um barnið. Og enginn veit hvenær þeim
verður óhætt að hætta því. Þetta er
hörð lexía fyrir unga móður. Og enginn
getur sagt annað en að Bobo hafi orð-
ið að gjalda fyrir skyssuna, sem hún
gerði þegar hún hljópst á brott með
Juarez.
Bobo varð 21 árs í janúar síðastliðn-
um. Á síðustu árum hefur hún upplifað
meira en venjulegt fólk gerir allt lífið.
— En ég er ekki bitur, segir Bobo.
— Ég hef lært mikið. 17 ára stúlka
heldur að hún viti allt bezt sjálf. Að-
eins kaldur raunveruleikinn getur sann-
fært hana um annað.
Einhvern tíma kemst líf mitt í samt
lag. Þá finn ég kannski þann eina rétta,
giftist og verð hamingjusöm. Það er
alltaf von er ekki svo?
Og hún hefur á réttu að standa ...
Handknattleikur -
Frh. af bls. 19
helzta framámanns íþróttamála á þeim
tíma, þar sem hann sagði handbolta
ekki vera íþrótt. Þessi afstaða breyttist
þó er fram liðu stundir, og nú er svo
komið að handboltinn skipar sess með
vinsælustu íþróttagreinum landsmanna.
Valdimar Sveinbjörnsson minnist
þess, að á fyrstu dögum handboltans
var oft erfitt að dæma leikina. Reglur
voru óljósar, húsin lítil, oð hraði oft
geysilegur í leiknum. Urðu oft háværar
deilur leikmanna á gólfinu og sýndist
hverjum sitt.
Er tíðindamaður Fálkans átti tal við
Valdimar fyrir nokkru, stóð Heims-
meistaramótið í handknattleik yfir í
Þýzkalands. Valdimar tók það fram,
að hann væri mjög ánægður með
frammistöðu íslenzka landsliðsins þar.
Hins vegar væri ástæða til þess að
minnast á að öll íþróttahús hérlendis
væru of lítil fyrir handbolta, og á 40
ára kennslutímabili hefði hann sífellt
þurft að breyta reglum vegna smæðar
húsanna.
„Enn þá er aðstaðan mjög erfið,“
sagði Valdimar, „og ég skil raunar ekk-
ert í því að íþróttaforystan hér skuli
ekki fyrir löngu hafa gengist fyrir happ-
drætti til styrktar húsbyggingu, en án
happdrættis virðist mér ekkert hægt að
byggja á þessu landi. Húsbygging er
aðkallandi vandamál og algjörlega er
ófært að íslenzkir handknattleiksmenn
geti ekki keppt eða æft á löglegum velli,
nema þá e. t. v. helzt á Keflavíkurflug-
velh, og raunar skilzt mér að eitthvað
skorti á stærð þess vallar.“
Valdimar Sveinbjörnsson er kvæntur
Herdísi Maju Brynjólfsdóttur og eiga
þau fimm börn. Hið yngsta Grímur, er
17 ára, og mikill áhugamaður um hand-
og körfubolta, er í köruboltaliði Ár-
manns og var m. a. í unglingaliði því,
sem vann meistaraflokkinn í körfu-
knattleik á dögunum. — Accipiter.
flAtrí Akritfar
FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR
Ég er fædd 15. ágúst 1930,
klukkan eitt eftir miðnætti á
Austurlandi. Ég er gift manni,
sem er fæddur 21. marz 1928.
Viltu gjöra svo vel og finna út
fyrir mig, sem fljótast, hvað
stjörnurnar segja um framtíð
mína.
B. H.
Svar til B. H.
Kort ykkar hjónanna eru
rpjög gæfuleg, miðað við fæð-
ingarstundina. Hins vegar er
það svo, að í lífi sérhvers
manns eiga sér stað erfiðleika-
tímabil um lengri eða skemmri
tíma. Finnst þá mörgum svo
að sér sorfið að þeir eru að því
komnir að gefast upp. En oft-
ast er það nú svo, að fyrr eða
síðar birtir til og sólin skín á
ný í heiði.
Þetta virðist mér einmitt
eiga við nú sakir nokkurra á-
rekstra, sem virðast vera í
vændum næstu árin milli ykk-
ar hjónanna. Þetta tímabil
nær hámarki sínu eftir fjögur
til fimm ár, en dvínar síðan
jafnt og þétt, þannig að mis-
klíðin fjarar út. Maðurinn
þinn er fæddur undir Hrúts-
merkinu, rétt í byrjun þess,
og er því undir sérstaklega
sterkum áhrifum þess merk-
is. Hann er einnig með Uranus
og Júpíter í því merki og býr
því yfir mikilli lífsorku og
framagirni. Mars er í Vatns-
beramerkinu þannig að það
væri ekki rétt að segja að
hann væri vinsæll maður. Af-
stöðurnar í Fiskamerkinu
benda til nokkurrar þröngsýni
í skoðunum og einnig í ásta-
málunum, þar sem Venus er
einnig stödd þar.
Sjálf ertu fædd undir Ljóns-
merkinu, en það gerir þig
einnig hneigða til ráðs-
mennsku eins og maður þinn
er. en samt sem áður eru að-
stæður til að alla jafnan geti
ríkt samræmi milli ykkar
þrátt fyrir það. Júpíter er í
Krabbamerki fæðingarkorts
þíns, en það mundi gefa til
kynna góðar aðstæður til alls-
nægta á heimilinu ef aðrar að-
stæður væru hagstæðar, en svo
er því miður ekki. Ég þekki
persónulega manneskju, sem
er með mjög líkar afstöður og
þú, því hún er fædd örfáum
dögum áður. Þær afstöður sem
ríktu þá leiddu af sér nokkuð
gagnrýnið og metnaðargjarnt
fólk, gagnrýnin er nokkuð á-
berandi sérstaklega þar eð sól
þessara fæðingarkorta er nú
gengin inn í Meyjarmerkið, en
það er merki gagnrýnandans.
Mér er ekki grunlaust um, að
þú sért nokkuð kröfuhörð við
eiginmanninn með tilliti til
útvegunar til heimilisins. Þú
ættir að vera sérlega heilsu-
góð allt þitt líf og ættir að ná
sérstaklega háum aldri.
Ég geri ráð fyrir, að þú ber-
ir nokkurn kvíðboga yfir nú-
verandi sambandi ykkar hjón-
anna, en orsakirnar til þessa
eru gagnafstöður milli Sólar-
innar í þínu korti annars veg-
ar og Mánans í korti eigin-
manns þíns hins vegar. Þessar
afstöður leiða iðulega til skiln-
aðar, en þar eð samræmið milli
fæðingarkorta ykkar er svo
náið væri það hreinasta sorg-
arsaga ef þið létuð stundar-
erfiðleika leiða til skilnaðar.
Einnig eru áberandi áhrif
Mars í ár, sem vafalaust hafa
mikil áhrif á þig. Þessi áhrif
gera fólk næmt fyrir geð-
sveiflum og fljótræðið, þann-
ig að það sér eftir gerðum sin-
um eftir á. En þessi áhrif
verða gengin um garð innan
árs. Ég vildi því eindregið
ráðleggja þér að bíða og sjá
hvort erfiðleikarnir jafna sig
ekki og öldur ósamkomulags-
ins lægja.
FÁLKINN 31