Fálkinn - 22.03.1961, Qupperneq 33
carabella
klæðlr
yður
*
■
Þ
iíii
I
:
i;::
i:i:
ii;:
:
ii::
|
:::i
u
....
iill!!l!!!iiiiiili!illiiiiiii3lii3i
liiiiiliiOSis
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkið.
Ef þér vinnið ötullega í þessari viku, munuð þér örugglega
ná góðum árangri. Þér skuluð ekki verða óttasleginn, þótt á
vegi yðar verði vandamál, sem þér hafið aldrei þurft að glíma
við. Þér munuð komast yfir örðugleikana og þá opnast nýjar
og happasælar leiðir. Fimmtudagurinn verður sérstaklega
góður dagur.
Nautsmerkið.
Þér fáið verkefni í hendur, sem þér hafið sérstaklega mik-
inn áhuga á, og þetta gerir það að verkum, að þér hafið
meiri ánægju af starfi yðar en þér hafið áður haft. En gætið
þess, að verða ekki svo uoptekinn af starfinu, að allt annað
gleymist. Ástamálin verða ekki farsæl, nema lögð sé rækt
við þau.
Tvíburamerkið.
Strax í byrjun vikunnar ber margt við í lífi yðar og flest
verður það á sviði einkalífsins. Þér yngist. upp um helming
við það að hitta vin eða vinkonu, sem fyrir mörgum árum
átti hug yðar og hjarta. Þér hafið ekki séð hann eða hana
svo árum skiptir og endurfundirnir munu vissulega ylja yður
um hjartaræturnar.
Krabbamerkið.
Ósk, sem þér hafið lengi alið í brjósti, rætist í þessari viku.
Þér voruð orðinn úrkula vonar um, að hún mundi nokkru
sinni verða að veruleika og þess vegna verður þetta helmingi
gleðilegra allt. saman. Þér fáið aukið sjálftstraust og takið
yður nýtt, en afar erfitt verkefni fyrir hendur.
Ljónsmerkið.
Þér eruð stórhuga og hafið hingað til neitað að viðurkenna
þá staðreynd, að smámunirnir geta orðið þungir á metaskál-
unum. Vinur yðar sannfærir yður um þetta og sem betur fer
látið þér segjast og takið að leggja rækt við hið smáa, sem
er alls ekki svo lítið, þegar allt kemur til alls.
J ómfrúarmerkið.
Vikan einkennist af atburðum einkalífsins. Það verður mik-
ið um skemmtilegar veizlur og heimsóknir á heimilinu. Njótið
þessa skemmtilega tímabils, meðan það varir. Áhyggjur yðar
hafa verið stórar að undanförnu og lífsstríðið strangt., svo að
þér eigið sannarlega skilið að skemmta yður dálítið.
V ogarskálarmerkið.
Um miðja vikuna fáið þér skyndilega hagstæðan byr, sem
feykir yður góðan spöl áleiöis að takmarki yðar. Enn er þó
langt í land og þér skuluð ekki einblína um of á það, að all-
ar óskir yðar og draumar rætist. Látið yður nægja um sinn
fyrsta áfangann, sem þér hafið nú loks náð.
Sporðdrekamerkið.
Vikan verður heldur viðburðarsnauð og hversdagsleg og
ekkert. spennandi eða stórfenglegt á ferðinni. Glatið samt
ekki hinni léttu lund yðar. Meðan þér hafið hana er tilveran
vissulega mikils virði, þótt hvorki gerist stórtíðindi, góð né
slæm.
Bogmannsmerkið.
Verið varkár í þessari viku. Óráðvandir menn, sem þér því
miður metið mikils, munu freista þess að ginna yður og lokka
á margan máta. íhugið gaumgæfilega öll þessi girnilegu gylli-
boð þeirra. Þá mun sannast rækilega málshátturinn gamli, að
oft er flagð undir fögru skinni.
Steingeitarmerkið.
í þessari viku gerist mikilvægt atvik, sem setur yður í mik-
inn vanda. Þér munuð standa frammi fyrir því erfiða máli,
að eiga um tvennt að velja, sem hvorugt er gott.. En úr því
sem komið er, er ekki um annað að gera en athuga vel, hvort
sé skárra. Leitið aðstoðar vina og kunningja, áður en þér
veljið.
Vatnsberamerkið.
Þér munuð kynnast nýju fólki í þessari viku, fólki, sem
hefur svipuð áhugamál og þér, og þess vegna verður kunn-
ingsskapurinn skemmtilegur og langvarandi. Og ekki er
ósennilegt að einhverjir þessa nýju vina muni smátt og smátt
verða annað og meira en venjulegir vinir yðar.
Fiskamerkið.
Þér fáið góð tilboð í þessari viku og ekki er loku fyrir það
skotið að miklir atburðir gerist svo sem skemmtireisa til út-
landa. Þetta kemur talsvert flat.t upp á yður, en látið nú ekki
tækifærið ganga yður úr greipum. Það er ekki víst að þér
eigið kost á slíku boði aftur 1 bráðina.
21. MARZ —
20. APRlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. JÖNl
22. JÚNl —
22. JÚLl
23. JÚLl —
23. AGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
19. FEBH.
20. FEBB. —
20. MABZ