Fálkinn - 28.02.1962, Side 4
Töfrar
Trúðar og leikarar hafa að undanförnu verið tíðir geslir
í Lundúnum og sýnt þar allar þær listir, sem þeir hafa kunn-
að. Þar hafa kanínur sprottið úr pípuhöttum og margt annað
gerzt, sem ekki tekur að nefna. Við miðdegisverðarborð eitt
voru aðeins bornir fram mjög kryddaðir réttir, en til voru
þeir, sem ekki sveið í hálsinn. Til að mynda hún Yasmin, sem
þið sjáið hérna á myndinni. En hún er eldgleypir. Jafnvel
hin vel þjálfuðu hraustmenni hugsuðu sig tvisvar um, áður
en þeir fengu sér bita. En Yasmin er eldinum vön, og lætur
sig það engu skipta, þótt hún brenni sig í hálsinum.
Skozk ást
Vinur Dugalds tók eftir því, að Dugald hjólaði niður stræt-
ið á kvenhjóli.
— Hvernig stendur á þessu? spurði hann Dugald.
— Nú skaltu heyra, sagði Dugald. — Ég fór í skemmti-
göngu með Möggu eitt kvöldið, og þegar við komum á af-
vikinn og myrltan stað, sagði hún: — Ég elska þig, Dugald;
ég clska þig svo mikið, að ég vil gefa þér, hvað sem þú vilt.
Þegar ég hafði hugsað mig um svolitla stund, valdi ég hjól-
ið hennar.
Brynjur
1 Róm er að finna einkenni-
legasta iðnað í heimi; bar eru
framleiddar gamlar brynjur.
Að vísu eru þetta ekki brynjur
eins og þær voru á tímum kross-
ferðanna með tilheyrandi útflúri
og skreytingum. en viðskipta-
vinirnir eru Ameríkumenn, sem
fara fullir stolts heim með
brynjur sniðnar eftir máli.
4 FÁLKINN
Hinn duglegi blaða-
fulltrúi Kennedys
forseta, Pierre Sal-
inger, þarf á stund-
um að gefa blöðun-
um yfirlýsingar um
annað en ástandið í
heimsmálunum þá
og þá stundina.
Hann verður að
gæta þess, að ekki
hiðminnsta hneyksli
komi fyrir innan fjölskyldu forsetans.
Þannig var það, að slúðurfréttaritarar höíðu
dreift þeirri fregn víðsvegar um landið, að
hin glæsilega Jacqueline Kennedy hefði dans-
að hálfa nótt hinn illræmda twistdans á næt-
urklúbb í Forat Lauderdale. Og fréttin var
að sjálfsögðu staðfest af eigendum klúbbsins,
sem voru í sjöunda himni yfir, að klúbbnum
hlotnaðist þessi heiður.
En fréttin vakti almenna gremju: Hvernig
í ósköpunum gat Jacqueline dottið slík ósvinna
í hug einmitt á þeirri stundu, þegar tengda-
faðir hennar var alvarlega veikur?
Til allrar hamingju gat hinn ötuli Salinger
sent skorinorð mótmæli gegn þessari fregn
og samtímis varð næturklúbburinn að senda
auðmjúka afsökun.
Það hafði alls ekki verið um Jacqueline
að ræða, heldur hafði ung stúlka að nafni
Stephanie Laye Javits dansað twist þessa um-
ræddu nótt, en þessi stúlka líkist mjög for-
setafrúnni.
En Stephanie fellur þetta líka mjög illa.
— En hvað á ég að gera, segir hún. Ég reyni
ekkert til þess að líkjast forsetafrúnni. Og
mér finnst engin ástæða til þess að reyna
að breyta einhverju í útliti mínu þess vegna.
Og Stephanie heldur áfram að dansa twist,
en heiðri Jacqueline er borgið.
★
Eisenhower, fyrr-
um forseti, er farinn
að bera skamm-
byssu á sér. Það er
í fyrsta skipti síðan
hann lét af yfir-
stjórn Nato.
Fyrrverandi for-
seti Bandaríkjanna
getur nefnilega ekki
gert kröfu til þess,
að hann sé verndað-
ur af leyniþjónustunni, eins og forsetinn er
á meðan hann er við völd. Ike heldur því
fram, að það sé mjög skynsamlegt af sér
að bera byssu til varnar, ef svo skyldi fara,
að geðveikir ofstækismenn réðust á hann.
Þess má geta, að Eisenhower er afbragðs
skytta.