Fálkinn - 28.02.1962, Blaðsíða 35
lSolludagur
Framh. af bls. 23
hveitistráða plötu. Platan sett
í miðjan ofninn, bakað í nál.
20 mínútur við góðan hita.
Opnið ekki ofninn fyrstu 10
mínúturnar, því að annars
geta kökurnar fallið saman.
Kælið kökurnar á grind. Kljúf-
ið þær með beittum hníf og
fyllið þær með þeyttum rjóma,
flórsykri stráð yfir. Beztar ný-
bakaðar. Einnig er gott að
fylla þessar bollur með van-
illubráð og bera ofan á þær
súkkulaðibráð.
Vanillubráð.
40 g hveiti
4 dl mjólk eða rjómabl.
3 eggjarauður
40 g sykur
Vanillu eða rommdropar.
Hrærið jafning í potti úr
hveiti, mjólk og rjóma. Soðið
5 mínútur. Jafningurinn kæld-
ur dálítið. Egg og sykur þeytt,
blandað saman við jafninginn.
Hrært stöðugt í þessu yfir hita,
þar til það þykknar. Kælt,
bragðefnum blandað í.
Súkku la&ibráð.
40 g kakaó
V2 dl sjóðandi vatn eða
kaffi
60 g flórsykur
1/2 tsk. vanilla.
Hrærið kakaó út með vatn-
inu og blandið sáldruðum flór-
sykri út 'í, ásamt vanillunni.
CAIIOLINE
Frh. af bls. 29.
Það, sem gerðist 17. janúar
1772, var slys, þar sem ein-
mitt það, sem drottningin og
Struensee börðust mest gegn,
lék lausum hala: Ofbeldi og
pyndingar. Handtaka drottn-
ingarinnar og hvernig hún var
framkvæmd, átti rætur sínar
að rekja til kynferðislegrar
afbrýði. Einn af samsæris-
mönnunum, Rantzau greifi,
girntist drottninguna á jafn
brjálæðislegan hátt og Holck
greifi og aðrir slíkir. Berings-
skjold var alþjóðlegur svindl-
ari og njósnari, sem ekki hafði
snefil af siðferðiskennd.
Meðferðin á drottningunni,
Struensee Brandt og fleirum
og aftaka Struensee og Brandt
hrópar enn til himins vegna
þeirrar viðbjóðslegu grimmd-
ar, sem þar kom fram . . .
Ósvikin Skotasaga
Skoti nokkur leitaði gisting-
ar á Gyðingahóteli. Hann lét
í ljós áhyggjur fyrir útgjöld-
unum, eins og Skota er siður.
En gestgjafinn sagði: — Verið
bara rólegur, þér verðið á-
nægður.
Þegar Skotinn kom niður í
matsalinn næsta morgun og
drakk morgunkaffi, en strax
á eftir ætlaði hann að halda
ferð sinni áfram, spurði gest-
gjafinn hann: — Hafið þér
sofið vel?
— Já, alveg ágætlega.
— Var rúmið gott?
— Frábært.
— Var baðið ekki gott?
— Dásamlegt baðherbergi,
yndislegt handklæði, ágæt
sápa, fallegar sængur og góð-
ar dýnur,
— Og morgunkaffið?
— Dágott, nógu sterkt og
hressandi. Brauðið var líka á-
gætt.
— Það gleður mig, sagði
gestgjafinn hræður. •— Þá eru
tíu krónur ef til vill hæfilegt.
— En kæri herra, það er
allt of mikið, sagði Skotinn og
rétti strax fram höndina.
TWIST
Frh. af bls. 20
— Teljið þér, að kenna beri
dans í skólum?
—■ Ég álít rétt að kenna und-
irstöðuatriðin í skólum og
mætti gera það í leikfimitím-
unum. En ég tel ekki rétt að
ota 12—13 ára unglingum of
snemma á böll. Mér finnst
hryggilegt að vita til þess, að
unglingar undir sextán ára
aldri skuli fara á almenn böll.
Við megum ekki ota þeim of
snemma út í lífið. Bernskan
er svo stutt og við megum ekki
stytta hana með því að kenna
unglingunum að dansa of mik-
ið of fljótt.
Við höfum þegar tafið Rig-
mor Hanson of lengi. Næsti
flokkur er mættur og dans-
kennslan hefst eftir stutta
stund. Þegar við kveðjum og
þökkum fyrir góðar viðtökur,
er twistdansinn farin að
hljóma með sinni hröðu og
skemmtilegu hrynjandi. Og
aftur hljómar rödd Rigmor
Hanson í hljóðnemanum:
Einn ... tveir ... þrír . ..
einn . . . tveir .. . þrír . ..
Hrútsmer/ciö (21. marz—20. apríl).
Þér ættuð að reyna að forðast rifrildi við nákominn
ættingja eða vin, því að það getur dregið dilk á eftir
sér. Munið, að það er auðveldara að eignast vin heldur
en missa, og enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
Hingað til hafið þér verið of upptekin af öllu, sem
viðkemur sjálfum yður. Heimurinn er ekki aðeins þér
og þér þurfið að gæta þess að sýna samborgurum alúð
og tillitssemi. Hins vegar skuluð þér ekki láta aðra
hafa áhrif á yður í ástamálunum.
Tvíburamerkið (21. maí—21. júní).
Þetta verður heldur viðburðasnauð vika. Það liggur
við, að hún verði leiðinleg. Þér skuluð samt ekki láta
það hafa áhrif á yður, heldur reyna í lengst.u lög að
vera glaður og reifur. Þér ættuð að launa vini yðar
betur greiðvikni hans.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
) Það er eingöngu komið undir yður sjálfum, hvort þér
) getið haldið áfram á þeirri braut, sem þér hafið verið á.
Agi og festa í starfi er nauðsynlegur hverjum þeim,
sem yfir öðrum ræður. Sú stefna, sem þér hafið sett
fram nýlega, mun hafa mikla þýðingu.
Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst).
Heimurinn hlær við yður, allt mun leika í ljúfasta
lyndi bæði í einkamálum og starfi. Ef til vill mun það,
sem yður hefur fallið þyngst, leysast á skemmtilegan
hátt. Þér ættuð að vera ögn hlýlegri í framkomu.
Jómfrúarmerkið (23. ágúst—22. scpt.).
Ekki er annað hægt að segja en að þessi vika sé
mjög hagstæð. Annaðhvort fáið þér launahækkun eða
yður verður gefið eitthvað stórmerkilegt. Útlit er fyrir,
að ættingi eða vinur komi skyndilega í heimsókn og
heimsókn hans mun gleðja yður mikið.
Vogarskálarmcrkið (23. sept.—22. okt.).
Þér verðið í sjöunda himni næstu viku, en það ríður
á því að þér grípið tækifærin meðan þau gefast.. Enn
fremur er nauðsynlegt að hætta einhverju, því að án
áhættunnar vinnst ekkert. Happatala yðar þessa viku
er 7.
Sporðdrekamerkið (23. okt.—21. nóv.).
Þér megið að öllum líkindum búast við auknum tekj-
um í næstu viku og st.jörnurnar segja, að þér munið
nota peninga skynsamlega. Þér ættuð samt að hafa
taumhald á gleðinni og stilla gáskann. Þér mættuð auk
þessa sýna öðrum hjálpsemi.
Bogmannsmerkið (22. nóv.—22. des.).
Það er full ástæða til þess að vera bjartsýnn þessa
dagana. Yngra fólk mun einkum gleðjast yfir aukinni
velgengni í. ástamálum, en hið eldra mun gleðjast yfir
rólegri en hagstæðri viku. Pöstudagur og laugardagur
munu einkum verða fengsælir.
Stcingeitarmerkið (23. des.—20. jan.).
Þér ættuð að reyna að stilla skapi yðar í hóf, því að
hingað til hefur ólund yðar bitnað mest á saklausum.
Framkomu yðar við undirmenn er líka mjög ábótavant.
Varið yður á hárri dökkhærðri konu, sem er að reyna
að leggja snörur fyrir yðu.
Vatnsbeamerlcið (21. jan.—19. febr.).
Þér æt.tuð að gæta ýtrustu varkárni í umgengni við
annað fólk. Takið ekki þátt í deilum, því að það er
einhver, sem vill blanda yður í máliö. Hann hefur nefni-
lega hagnað af því. Annars verða ástamálin nokkuð
hagstæð.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz).
Útlitið er fremur gott í þessari viku, en þó mættuð
þér vera ögn samvinnuþýðari við samstarfsmenn. Heils-
an verður með fádæmum góð og fjárhagurinn góður. í
vikulökin munuð þér sennilega lenda í ástarævintýri,
sem mun draga þó nokkurn dilk á eft.ir sér.
FÁLKINN
35