Fálkinn - 28.02.1962, Page 6
PANDA DG LANDKDNNUÐURINN MIKLI
Gúmmíbáturinn fylltist nú óðum, eftir að lögfræðing-
urinn hafði tekið Aloysius frænda á brott með sér.
Landkönnuðurinn jós og jós til þess að halda fleytunni
á floti. „Ég held, að ég hafi fundið lausnina,“ hrópaði
hann skyndilega. „Seztu í gatið, þá ætti lekinn að
stöðvast.“ Og Panda settist í gatið, en hann var síður
en svo hrifinn af þessari nýju stöðu og hann hefði
ekki verið hrifnari, ef honum hefði verið litið niður
í vatnið. Risastór hvalur, sem synti þarna framhjá,
kom auga á rassinn á Panda, sem stóð niður úr botni
bátsins. Og hvalurinn var hungraður ...
Allt í einu stökk Panda upp. „Hjálp,“ hrópaði hann,
„það var hvalur, sem ætlaði að éta mig.“ „Hvalur?
Ágætt,“ sagði landkönnuðurinn og lét sér hvergi bilt
verða. „Það var einmitt það, sem við þörfnuðust."
Og hann var fljótur að festa höfuð hvalsins í botnin-
um og hinn hræddi hvalur synti eins hratt og hann
gat og auðvitað fylgdi gúmmíbáturinn honum. „Eins
og þú sérð,“ sagði landkönnuðurinn, „kemur hvalur
að nákvæmlega sama gagni og gufuvél.“ En Panda
mátti ekkert vera að því að hlusta á vísindalegar út-
skýringar, því að hann var með allan hugann við að
halda sér.
Enda þótt hvalurinn keyrði bátinn áfram með miklum
hraða, fóru þeir í eintóma hringi. „Við komumst ekk-
ert áfram með þessu,“ hrópaði Panda. „Við þurfum
að stjórna hvalnum.“ „Það er mjög einfalt,“ svaraði
félagi hans. „í slíkum málum notum við landkönnuðir
þessa aðferð.“ Og hann náði í flugfisk í hattinn sinn
og hélt honum fyrir framan hvalinn. Og þar sem
hvalurinn var mjög soltinn, gein hann við fiskinum
og synti með miklum krafti beint áfram. „Þetta er
rétta leiðin til þess að fá hval til þess að synda beint,“
sagði landkönnuðurinn og brosti. „Ég vona, að þú
kunnir líka ráð til þess að stöðva hann á réttp augna-
bliki,“ svaraði Panda hræddur. Og ótti hans var ekki
ástæðulaus, því að hvalurinn stefndi með fullum hraða
beint á hvassa kletta.
6 FÁLKINN