Fálkinn - 28.02.1962, Side 9
fer öðruvísi en ætlað er, og þetta sumar kynntist hún mann-
inum, og eftir það varð hún afhuga Noregsferð.
Þau höfðu búið í Hafnarfirði í fjórtán ár, vorið sem Her-
dís hóf feril sinn sem ljósmyndari. Fjölskyldan hafði stækk-
að ört, og þó þau væru dugleg og reglusöm, veitti ekki af
aurunum, sem fengust fyrir myndirnar og þegar Guðbjart-
ur kom af síldinni haustið 1932 var konan hans hún Herdís,
orðin fær í allri dimmstofuvinnu; hafði eins og hann lesið
sér til í erlendum bókum og tímaritum.
Þau komu sér þessu næst upp mjög góðri vinnustofu í
kjallaranum og þar er nú úrval góðra tækja. Guðbjartur hélt
áfram að stunda sjóinn nema tíma og tíma og frúin annaðist
Ijósmyndirnar. En það var eitt, sem vantaði á: Að taka
myndir við ýmis tækifæri, því að fréttaljósmyndun var þá
á algjöru byrjnuarstigi hér á landi og myndir af fólki varla
teknar nema á myndastofum.
Þegar Kristján X. konungur íslands og Danmerkur, kom
hér í síðasta sinn, árið 1936, fór hann ásamt fylgdarliði sínu
að Gullfossi og Geysi. Herdís fór austur ásamt fleiri Hafn-
firðingum, og hafði myndavél meðferðis. Þetta var í fyrsta
sinn sem hún fór til myndatöku og hefur sjálfsagt ekki bú-
izt við miklum árangri. En hér fór á annan veg. Hún var
svo heppin, að komast alveg að, þar sem hans hátign kon-
ungurinn og Matthías þjóðminjavörður ræddust við og hóf
að taká myndir. Konungi varð starsýnt á þessa bráðlaglegu
konu í íslenzkum búningi, sem bar sig til eins og alvanur
fréttaljósmyndari. Áhorfandi að þessu sagði síðar svo frá,
að konungur hefði brosað og verið hýr í bragði, og ekki
hefði hann betur séð en að konungurinn hafi „blikkað“ Her-
dísi meðan hún var að taka myndirnar.
Frh. á bls. 38
Myndirnar tvær til vinstri: Guðbjartur steikir fiskiboll-
ur í eldhúsinu á Fjallfossi. — Herdíp fyrir framan
Challiot-höllina í París. Þar var þá allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna haldið.