Fálkinn - 25.04.1962, Qupperneq 31
Mhe turjwakckur
125 g. smjörlíki
125 g. sykur
2 egg
160 g. hveiti
1 tsk. lyftiduft
Vz tsk. vanilla
1 msk. vatn.
Skreyting:
V4 1. þeyttur rjómi
50 g. saxaðar hnetur
Ribsberjahlaup.
Smjörlíki og sykur hrært létt og ljóst, eggjunum hrært
saman við einu í senn. Hveiti og lyftidufti sáldrað saman við,
blandað varlega í deigið, ásamt vatninu og vanillunni. Sett
í velsmurt ferkantað tertumót (25 cm. á hlið). Bakað í miðj-
um ofninum við meðalhita nál. 25 mínútur. Kakan kæld í
kökugrind.
Skornar út 12 kringlóttar kökur. Smyrjið þær að utan
með þeyttum rjóma, veltið þeim síðan upp úr söxuðum
hnetunum. Sprautið afgangnum af rjómanum í hring á hverja
köku, fyllið í holuna með fallegu rauðu hlaupi eða niður-
skornum ávöxtum.
/ctffð (fötMMm aí baka
HVERNIG Á
AÐ FARA
MEÐ FLÍKUR
ÚR RÚSS-
SKINNI?
Rúskinsjakkar, kápur og jafnvel pils eru mjög í tízku
meðal yngri kynslóðarinnar. Flíkur þessar eru mjög við-
kvæmar, og það borgar sig alls ekki að kaupa annars
flokks vöru, betra að vera án hennar. Rúskinn er holdros-
in af ýmsum tegundum skinna, sem hafa verið sorfin.
Gott rúskinn er seigt, mjúkt og létt, þó án þess að vera
þunnt, einnig er unnt að hafa í huga við kaup á slíkum
flíkum, hvort rúskinnið sé litarekta.
Rúskinn er mjög viðkvæmt fyrir blettum, en varizt
fyrir alla muni að reyna að hreinsa þá af með hreinsivökva,
sama hvaða nafni hann nefnist, þeir gera bara illt verra,
og skilja eftir stórar skellur. Hins vegar er stundum
hægt að ná því burt með fínum sandpappír eða þurrum
fínum naglabursta. Einnig eru burstar úr froðugúmmí
ágætir.
Sé flíkin hins vegar illa farin verður að hreinsa hana
og það geta ekki allar eínalaugar gert, til þess þarf sérstakt
tæki, því að rúskinn er þurrhreinsað .
Blotni rúskinn má ekki þurrka það við hita, bezt að
gera það í blæstri.
Einnig eru gerfiskinnsflíkur á markaðnum. Þær er
hægt að þvo en bara í hreinni sápu, notið ylvolgt vatn og
þess skal gætt að vinda ekki flíkina.
Leðurkápur og jakkar eru þvegnir með sérstakri leður-
sápu. Þvoið aðeins lítinn blett í einu með svampi, og þerrið
sápufroðuna jafnóðum af með klút undnum úr hreinu
vatni. Þerrið yfir á eftir með mjúkum, þurrum klút.
125 g. smjörlíki
125 g. sykur
1 egg
100 g. hveiti
75 g. kokósmjöl.
Smjörlíki og sykur hrært vel og lengi: Egginu hrært saman
við. Hveiti og kokósmjöli blandað saman við. Mótið úr
deiginu litlar kúlur milli handanna, setjið þær á smurða
plötu, þrýstið þær flatar með lófanum. Bakaðar gular
við 185°.
FÁLKINN 31