Fálkinn


Fálkinn - 25.04.1962, Blaðsíða 34

Fálkinn - 25.04.1962, Blaðsíða 34
frætt okkur um neitt. Morðinginn tók hann — en hann var með hanzka. Kött- urinn hefir sloppið — og hann sneri aftur er honum hentaði. Lögregluforinginn saug vindilinn og blés reyknum upp í loftið. Hann hafði þegar ákveðið að fá Whately til að vinna að þessu máli. Whately glæpasérfræð- ingur myndi prýðilegur í stað Sibleys, — skynsamur, rólegur og viðkunnan- legur maður. Hann hafði aldrei á ævi sinni fengið almennilega hugmynd. Sam Sibley sat í stólbrún og horfði fast framan í köttinn. — Til allrar hamingju hef ég upp- götvað, að Twisty Simsons var látinn laus úr fangelsi þremur dögum fyrir morðið, hélt lögregluforinginn áfram í léttum tón. Hann réðist á gamla konu fyrir þremur árum, og ég er þeirrar skoðunar, að hann hafi ekki breytt um aðferðir. Við verðum áreiðanlega bún- ir að ná honum annað kvöld. — Twisty var ekki hjátrúarfullur, sagði Sam. — En hins vegar fjári óheppinn — sem hann skal áreiðanlega fá að upp- götva. — Twisty hefir alls ekki gert þetta, sagði Sam önugur, og auk þess er þetta alls ekki Nigger, kötturinn, sem okkur vantar. Vinstra eyrað á þessum ketti er ekki visið og það er ýmislegt annað, sem ekki kemur heim við lýsingu á honum. Ég hef vitni til þess að sanna þetta, en þó getið þér sjálfur séð strax, að þetta er gabb. Lögregluforinginn leit á hann og botnaði hvorki upp né niður í þessu. — Lítið á málninguna. Hérna er slett- an á gólfinu — og málningin í feldi kattarins. Þetta er ekki sami hvíti lit- urinn. Morðinginn hefir ekki hugsað um þetta. Hann hefir bara tekið hvíta málningu, sem hann gat náð í með góðu- móti, klínt henni á köttinn og haldið, að við værum slíkir asnar, að taka þetta sem gilda vöru. Ef glæpamenn héldu ekki, að þeir væru kænni en lög- reglan, þá væru þeir löngu búnir að gefast upp. Hann tók krukkuna með málning- unni og bar litinn saman við litinn á feldi kattarins. Það var greinilegur munur á litnum. — Sibley, ég held, að þér séuð að verða geðveikur, sagði lögregluforing- inn og fleygði vindilstubbnum í elda- vélina. Þér eruð að reyna að segja mér að einhver hafi málað köttinn og komið með hann hingað til þess að gabba lögregluna. Hvers vegna horfist þér ekki í augu við staðreyndir? — Ég held því fram, sagði Sam, að við höfum komið róti á taugar morð- ingjans. Hann vill endilega binda endi á þessa kattarleit áður en hún endar í herberginu hans. Leitin stendur nú sem hæst og henni verður að linna áð- ur en hann þorir að skilja köttinn við sig, og það er tvímælalaust hentugast fyrir hann, að láta okkur halda að kött- 34 FALKINN urinn sé fundinn, og þá munum við hætta leitinni. Hawley lögregluforingi sagði ekkert. Hann var að hugsa um, að Twisty Simons yrði vonandi fundinn klukkan þrjú. — Ég fel yður þessa kattarleit, Sib- ley, sagði hann. Ég ætla að leita morð- ingjans. Hann heyrði hann varla fara. Hann hugsaði um það, að morðinginn hefði aftur nálgazt morðstaðinn vegna katt- arins, og honum virtist mögulegt, að hann væri einhvers staðar í nágrenn- inu. Þegar Sam kom inn á lögreglustöð- ina til að sæja Lil Gillings, var hon- um sagt, að hún hefði ekki fundið Nigger í öllum þeim kattafjölda, sem borizt hefði þá um daginn. — Nú eru þeir farnir að stela þeim í þokkabót, sagði vaktmaðurinn þreytu- lega. Einhver piparkerling hringdi í dag og sagði, að grunsamlegur náungi hefði elt kött hennar, sem var svartur. Hann náði honum og stakk honum ofan í poka, en þessi köttur hefir ekki komið hingað í dag. — Það gerir hann áreiðanlega ekki, sagði Sam. Hafið þér heimilisfang kerl- ingarinnar? Það er mikilvægt. Ef mað- urinn hefði aðeins ætlað að koma hing- að með köttinn, hefði hann handsam- að hann í laumi. Ég kannast við þennan kött, sem stolið var. Hann er nú stadd- ur í húsi gömlu konunnar, sem myrt var. Hálftíma síðar talaði hann við pip- arkerlinguna, sem hringt hafði á lög- reglustöðina. Hún bjó við London Road og sat gjarnan við gluggann sinn. Því miður hafði hún ekki tekið ná- kvæmlega eftir útliti mannsins og lýs- ing hennar á honum var allt að því gagnslaus, að því undanteknu, að ekki gat verið um Twisty Simons að ræða. Kötturinn átti heima í næsta húsi og Sam tókst að fá eigandann til þess að koma með sér og líta á hann. — Þetta er Dinky, hrópaði hún, er hún sá köttinn. En hvemig í ósköp- unum stendur á þessari málningu? Og hvernig á ég að ná henni af? — Það er nú einmitt það, sem er að gera morðingja nokkurn gráhærðan, sagði Sam. Það væri ef til vill ekki svo vitlaust að gera tilraunir með það, bætti hann við. Er Hawley lögregluforingi sá hann síðast um kvöldið, var Sam önnum kafinn að sýsla við alls konar bletta- vötn. Er Sam hitti lögregluforingjann um morguninn, var í för með honum náungi að nafni Whately. — Jæja, Sibley, sagði lögreglufor- inginn. Þið hefið sézt áður er það ekki? Á meðan þér haldið áfram leit- inni að kettinum, ætlar Whately að reyna að hafa upp á morðingjanum, en áður en þér farið, skuluð þér tala við lögreglufulltrúann. Hann hefur mikinn áhuga á að ræða við yður. Ég sagði honum að þér mynduð hafa á reiðum höndum skýringar á þessari kattarleit. Ég fæ ekki skýrt neitt út fyrir honum. Lögreglufulltrúinn sat við skrifborð sitt, óvenju rauður í andliti og fyrir framan hann var heilmkill blaðabunki. Sam leit framan í hann og bjóst við hinu versta. —- Sibley, ég hélt því fram fyrstur, að þér hefðuð hæfileika sem leynilög- reglumaður....... — Ég þakka, hr. lögreglufulltrúi.... — Þá skuluð þér þakka mér, en hafið meðaumkun með mér...........Þér eruð veginn og léttvægur fundinn. Ég geri ráð fyrir, að heppni yðar í því máli, sem við báðir þekkjum, hafi verið tilviljun. Tilgáta yðar í þessu máli er ósennileg og nánast út í bláinn. Þér hafið gert lögregluna hlægilega og með tilliti til kenningar yðar um, að morð- inginn sé tilneyddur að geyma kött- inn, vegna þess að hann geti ekki náð málningunni af, er hlægileg. Þessu eru gerð góð skil í einu dagblaðanna. Hann fleygði dagblaði til Sams og benti á bréf í bréfadálknum, sem undir- ritað var „LYFSALI“. — Ég skal lesa dálítið fyrir yður úr þessu bréfi, sagði lögreglufulltrúinn hæðnislega. „Það er hlægilegt, að lög- reglan skuli halda, að nútíma glæpa- maður sé í vandræðum með að ná máln- íngarslettum og fingraförum af kattar- feldi. Allir skóladrengir vita, að maður nær slíkum blettum strax af með „TRIMETHYLOXYLATE“ sem kostar fimmtíu aura. — Hm .... sagði Sam. — Þetta hefði ég getað sagt yður, Sibley, ef þér hefðuð spurt mig, sagði lögreglufulltrúinn og þá hefðum við getað komizt hjá öllum þessum látum og glundroða. Mér þykir furðulegt, að Hawley lögreglufulltrúi skuli ekki hafa vitað þetta. Allir lögreglumenn verða að hafa einhvern snefil af al- mennri skynsemi........ Hann greip símann. Fyrst varð hann undrandi á svip, en því næst brosti hann. — Þeir hafa handtekið manninn, sagði hann. Hann hringdi í innanhúss- símann, og skipaði Hawley lögreglufor- ingja að koma á skrifstofu sína. — Hann hefir hlotið fjöður í hatt sinn, — við erum búnir að ná í manninn, sem myrti frú Folliot. Síðan hélt hann áfram að tala í sím- ann og leit fyrst upp, er Hawley lög- regluforingi kom inn. — Ég hringi seinna, sagði hann og lagði niður tólið, spratt upp og þrýsti hönd lögregluforingjans. — Þetta var glæsilegt afrek, Hawley. Þeir tóku hann höndum í lyfjabúð. Lyfsalinn hringdi hingað á lögreglu- stöðina, eins og mælt var fyrir um í dreifibréfinu, sem þér senduð út....... Brosið stirnaði á vörum Hawleys lög- regluforingja. — Dreifibréf? Hvaða dreifibréf? spurði hann. Framhald á bls. 36.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.