Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Qupperneq 4

Fálkinn - 05.09.1962, Qupperneq 4
Hin fræga ítalska kvikmyndastjarna, Claudia Cardinale, kom fyrir skemmstu til Lundúnaborgar til að vera viðstödd hina árlegu kvikmyndahátíð, sem þar er haldin. Á hátíðinni var hún meðal annars kynnt fyrir brezku konungshjónunum. En henni veittist einnig tíma til að skoða sig um í borginni. Hún heimsótti til dæmis Portobello Market, og að sjálfsögðu voru blaðaljósmyndararnir á hælunum á henni. Það gerðist árið 1905. Sænskur hermaður, Gotfried Werner að nafni, dvaldist í litlum hersetnum bæ í Norður-Svíþjóð. Þar varð hann ástfanginn af ungri og fallegri stúlku, sem hét Emma, og hún af honum. Það var ást við fyrstu sýn af beggja hálfu. En nokkr- um dögum eftir að þau kynntust, var Gott- fried fluttur á annan stað og slitnaði úr sam- bandi við ástmey sína. — Nýlega auglýsti hinn 78 ára gamli ekkjumaður, Gottfried Werner, eftir ráðskonu. Og ein af umsækjend- unum var engin önnur en Emma, sem hafði ekki hugmynd um hver auglýsti. Undrun þeirra og gleði varð vissu- lega mikil. Emma hafði verið ekkja í fjöldamörg ár. Þau giftu sig að sjálfsögðu í snatri og eru bæði orðin ung í annað sinn. Að loknum vinnutíma yfirgaf rússneskur verkamaður verksmiðju sína og ók á undan sér hjólbörum fullum af hálmi. Varðmaður- inn við innganginn rannsakaði hálminn gaumgæfilega, en fann ekkert grunsamlegt. Næsta dag kom verkamaðurinn aftur með hjólbörur og nú var hálmurinn rannsakaður enn betur. En ekkert fannst. Hvern einasta dag í tvo mánuði endurtók sagan sig og undrun varðmannsins jókst stöðugt. Loks sagði hann dag nokkurn við verkamanninn. ,,Nú er ég að hætta. Þér ætti því að vera óhætt að segja mér, hverju þú hefur eiginlega verið að smygla út úr verksmiðjunni.“ — „Hjólbörum!“ svaraði verkamaðurinn. I Flestum er í fersku minni, þegar lögreglu- þjónn í Reykjavík tók kunnan klerk að nætur lagi til yfirheyrslu, grunaðan um að hafa gægst inn um glugga hjá stúlku nokkurri. Sagt er, að mál þetta hafi borið á góma milli séra Bjarna Jóns- sonar vígslubiskups og Páls ísólfssonar, þegar þeir komu frá jarðar- för, skömmu eftir að atburðirnir gerðust. Páll segir: — Finnst þér nú, að þetta geti gengið fyrir prest, ef það sannast, að hann hafi verið að gægjast á gluggann þarna um nóttina hjá stúlkunni? — Það held ég ekki, svaraði séra Bjarni. — Það gæti í hæsta lagi gengið fyrir orga- nista! ★ Lesendum dettur ef- laust í hug, að hér sé komin gömul mynd af Charlie Chaplin. En svo er þó ekki. Það er austuríska leikkonan Telmy Talia, sem líkir eftir meistaranum og gerir það svo vel, að hún hefur oft fengið fólk til að trúa því, að hún væri í raun og veru Chaplin og eng- inn annar. Hún hefur kynnt sér svo rækilega gömlu Chaplin-kvik- myndirnar, að Chaplin er orðinn hluti af lífi hennar. Á daginn er hún leikkonan Telmy Talia, en á kvöldin á leiksviði og í næturklúbbum, er hún Charlie Chaplin, óþrjótandi lind hláturs, þegar hún líkir eftir mesta gamanleikara sem nokkru sinni hefur verið uppi. ★ Hvort sem eftir- farandi saga er sönn eða ekki, þá er hún skemmtileg. Adenauer var eitt sinn á ferða- lagi með utanríkisráð- herra sínum, Brentano. Brentano var kvefaður og hann uppgötvaði, að hann hafði gleymt vasaklútnmn sínum heima. Kanslarinn rétti honum strax sinn klút. Brentano þakkaði Adenauer fyrir þetta með svo mörgum og fjálglegum orðum, að kanslarinn brosti og sagði: — O, blessaður vertu ekki að tala um svona smámuni. — Smámunir, hrópaði Brentano. Herra kanslari! Þetta er í fyrsta skipti sem þér lofið mér að reka nefið í það sem yður er við- komandi! 4 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.