Fálkinn - 05.09.1962, Side 5
úrklippusafnið
Sendið okkur spaugilegar
klausur, sem þér rekizt á ’
blöðum og tímaritum. Þéi
fáið blaðið, sem klausa yðai
birtist í, sent ókeypis heim.
Húsasmiðir
alls konar, til að geyrna
óskast. - Uppl. í síma
34429 eftir ld. 7.
Vísir, 23. ágúst 1962
Sendandi: Þórhallur Maack.
Morgunblaðið 27. júlí 1962
Sendandi: Þ. Eldjárn.
Gorðaprýði
Krisfmanns :
®q Kynlíf ;
effir Khen |
Þjóðvlljinn, 8. júli 1962
Sendandi: H. Jónsson.
Börnin úr söfnuSinum voru að
sniglast kringum brúöhjónin. og
viö bentum á litla, brosleita telpu,
og spuiöum, hvort þau langaöi
ekki til að eignast lítinn anga.
Tíminn, 24. febrúar 1962
Sendandi: B. Viggósson.
Á FÖSTUDAGSMORGUN týndist
svartur, amerískur brjóstahaldari.
Finnandi vinsamlega hringi i sfma
20482. - Góð fundarlaun. (2201
Vísir, júli 1962 ..
Sendandi: Yngvi Sveinsson.
Hafnarfjörður
Til leigu á Alfaskeiði 29,
1 stoía með baði og inn-
byggðum skáp fyrir sjó-
mann. "Regiusemi áskiiin
Uppl. í sima 50628.
Morgunblaðið 27. júlí 1962
Sendandi: Frímann Jóhannsson
i£o«r48a. Mæðgurnar eru uuk
alls systur, og hafa lengi halclið
tryggð við handknattieikinn með
góðum árangrl.
Morgunblaðið, 24. júli 1962
Sendandi: Hnlda Guðmundsd.
Sálfræði
Þekktur sálfræðingur leit
fullur meðaumkunar á sjúk-
ling sinn og spurði hann:
, — Hvenær tókuð þér fyrst
eftir því, að þér greidduð
skattana yðar — með mestu
ánægju?
Kóngafólkið
Belgíska konungsfjölskyld-
an hefur í hyggju að höfða
mál á hendur frönsku fyrir-
tæki, sem framleiðir þvotta-
vélina Fabiola. Með risastór-
um stöfum auglýsa þeir
Fabiolu á þennan hátt:
Predikarinn og púkinn
Samkvæmt sál-
fræði nútímans eiga
foreldrar að bjóða
börnum sínum góða
nótt með kossi á
hverju kvöldi.
Ef þeir geta þá
haldið sér vakandi,
þangað til þau koma
lieiin!
Loksins er hún komin
— FABIOLA — drottning
þvottavélanna — glæsileg,
einföld og endingargóð. Fabi-
ola kostar aðeins 1289 franka
— með góðum afborgunarskil-
málum!
Menningin
Kennslukona nokkur segir
þessa sögu: Ég stóð við
skólatöfluna og var að láta
nemendum mínum í té fyrstu
vitneskjuna um brotabrota-
reikKÍng. Ég tók eftir því, að
Yvonne, sem annars var
alltaf dottandi í tímum hjá
mér, fylgdist með af miklum
áhuga og eftirtekt. Nú, hugs-
aði ég, stúlkan er bara vökn-
uð. Ég verð víst að hvetja
hana ofurlítið.
—- Jæja, Yvonne, þú fylgd-
ist vel- með, þegar ég skrifaði
á töfluna. Það er dásamlegt
að sjá, að þú hefur áhuga á
brotabrotareikningi. Er það
nokkuð sérstakt, sem þú vilt
spyrja um?
— Já, fröken, sagði Yvonne.
— Þér eruð farin að nota nýtt
naglalakk. Hvaða tegund er
það?
íþróttamyndin
Þeir, sem sólgnir eru í
pylsur í París hafa stofnað
með sér klúbb. Eina mark-
mið félagsskaparins er að
hnekkja heimsmetinu í pylsu-
áti. Núverandi heimsmet á
átvagl í Munchen, sem fyrir
nokkrum árum síðan snæildi
hvorki meira né minna en 25
metra af pylsum á sex tímum,
matarhlé meðtalin.
Þrælahald
Enginn er meiri þræll en
sá, sem heldur að hann sé
frjáls án þess að vera það.
Goethe.
Á skrifstofunni
Nilsen skrifstofumaður kom
of seint til vinnu sinnar í gær.
Hann afsakaði sig með því,
að þetta væri ekki sér að
kenna. Það hefði nefnilega
verið að fjölga heima hjá sér
í nótt.
— Ekki yður að kenna,
sagði forstjórinn þrumandi
röddu. — Hver á þá sökina,
með leyfi?
DOIMNI
Konan mín fór í
hvítlauksmegrunar
kúr. Hún losnaði við
fjögur kíló — og ég
losnaði við sauma-
klúbbinn.
Að hugsa
Að hugsa er erfiðasta vinna,
sem til er. Það er sennilega
vegna þess, að svo fáir leggja
sig £ það.
Henry Ford.
sá bezti
Á farþegaskipi sáust reykmekkir frá eyju
í Kyrrahafinu, sem hingað til hafði verið ó-
byggð. Maður á bát var sendur til þess að
rannsaka málið. Hann fann skipbrotsmann á eynni og hafði
sá dvalist þar í rúma 11 mánuði. Farið var með skipbrots-
manninn um borð í farþegaskipið og þar tók skipstjórinn
á móti honum. Skipbrotsmaður sagði í stuttu máli frá dvöl
sinni á eynni.
— Þér lítið vel og hraustlega út, sagði skipstjórinn. — Og
það gleður mig að sjá, hversu vel þér hafið haldið við föt-
um yðar. En hvað í ósköpunum hefur komið fyrir fram-
tennurnar í yður. Það er hrœðilegt að sjá yður þegar þér
opnið munninn.
— Hvernig haldið þér, að þér munduð líta út, svaraði
skipbrotsmaðurinn, — ef þér hefðuð hafnað á eyðieyju ásamt
80 kössum af bjór —■ en engum upptakara!
VÍSNAKEPPNI FALKANS
Enn í dag er það vinsæll leikur manna á meðal að
setja saman stökur, og þeir svartsýnismenn, sem álíta
að hagmælska sé að verða horfin dyggð, hafa áreiðan-
lega ekki með öllu rétt fyrir sér. FÁLKINN hefur
ákveðið að efna til ofurlítillar vísnasamkeppni meðal
lesenda og heitir bókaverðlaunum fyrir bezta botninn,
sem herst við þann fyrripart sem birtur er hverju
sinni. Frestur til að skila botnum er þrjár vikur.
Fyrsti fyrriparturinn er uin síldina og hljóðar svo:
Veiði lýkur, held ég heim,
hýran framar vonum.
! n m imini mirmnir n —.... . ^
FALKINN
5