Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Síða 11

Fálkinn - 05.09.1962, Síða 11
RAUÐAR Hún er ein skærasta stjarnan í heimi ballettsins, en að hurðinni á búnings- klefa hennar stendur aðeins „búnings- klefi nr. 5“ eða ,,Margot’s“. Á veggjun- um í búningsklefa hennar í Royal Opera House í Lundúnum hanga í gull- römmum myndir af 19. aldar dansmeyj- unum Taglioni og Carlotta Grisi.. í miðju loftinu hangir lítil ljósakróna, en í horninu á herberginu stendur klæðaskápurinn, sem geymir gljáandi crépe-de-chine-sloppinn hennar, sem merktur er með upphafsstöfunum M. F. A. Stafirnir standa fyrir Margot Fon- teyn Arias, og jafnframt því að vera ein skærasta stjarna á ballettsviðinu er hún einnig eiginkona Dr. Roberto Arias, Ambassador Panama í Lundúnum. En hún lætur það ekki koma í veg fyrir að borða bakaðar baunir og ristað brauð með öðru starfsfólki í matsal Konunglegu óperunnar. „Hún er kona, sem ekki lítur stórt á sig“, segir blaða- fuiltrúinn, Bill Beresford. Hún kemur stundum með neðanjarðarlestinni til vinnu, enda þótt hún eigi tvo bíla, Rolls Royce og Baby Sedan, sennilega þann eina í Lundúnum, sem er með einka- bílstjóra. Hús þeirra hjóna stendur við blind- götu hjá Thurle Place í Kensington. Það er skreytt með evrópskum listaverkum, Inka-skurðmyndum frá Perú og Astec- höfðum. í móttökusalnum er málverk af Lafði Margot málað af Annigoni. Hús- gögnin eru frönsk, og á gólfum eru Aubusson-ábreiður. Húsagarðurinn er stór eftir Lundúnamælikvarða, 18 fet á breidd, og í miðju hans er gosbrunnur. í miðdegisverðarboðum hjá Lafði Margot er oft standandi borð, og um beina ganga þjónar frá Panama. Borð- búnaðurinn er einstakur, diskar úr hvítu postulíni með upphleyptum myndum og gullskrauti. Réttirnir eru oft eftir er- lendum uppskriftum, kjúklingar með ananas, fiskur (koli) með tilheyrandi sósu og skreyttur með greipaldinum, ógleymanleg salöt og himneskt sælgæti. Sjálf er Lafði Margot óþreytandi gest- gjafi, hefur þá reglu að neyta einskis sjálf, heldur ganga um á milli gesta sinna. Þegar gestirnir eru farnir, á hún það til að kasta sér niður í einhvern stólinn og senda einn þjóninn eftir — ekki miðdegisverði — heldur einum bolla af kjötsoði. Móðir listakonunnar, frú Hockham, sér allar þær sýningar hennar í Lundúnum, sem hún með nokkru móti getur sótt og borgar alltaf aðgangseyri. Hún vill nefnilega sitja á einum ákveðnum stað, í ákveðnu sæti. Og ef þið eigið eftir að sjá sýningu hjá Dame Margot Fonteyn, getið þið verið viss um að Framh. bls. 34. Lafði Margot með móður sinni, sem sækir allar sýningar hennar. rÁLKINN 11

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.