Fálkinn - 05.09.1962, Síða 19
ER SKÓLA
GANGA ÍS
LENZKRA
BARNA
OF LÖNG?
Menntun er nauðsyn í nútíma þjóðfélagi. Þjóðfélagið
gerir sífellt meiri kröfur til hins almenna borgara og til
þess að lifa góðu lífi verður hann að standast þær. Þar
hjálpar menntunin, því að í sjálfu sér er hún ekki aðeins
fólgin í því að læra af bók heldur og að vera maður. Hluti
menntunar nefnist skólaganga. Sumum finnst hún harð-
ur og langur skóli.
Á íslandi eru börn skylduð til að ganga 1 skóla frá 7—14
ára aldurs. Læra þau þá sex vetur í barnaskóla og tvo í
gagnfræðaskóla. Það er langur tími, en getur orðið enn
lengri, ef nemandinn hyggur á hina svokallaða æðri mennt-
un. Skólaganga getur því orðið langur kafli í lífssögu eins
manns.
Hraði er mikill þáttur í daglegu lífi manna nú á dögum.
Menn þurfa alltaf að flýta sér og heyja því stöðugt kapp-
hlaup við tímann og tapa. Það er því engin furða, að á
þessari öld hraða og tímahraks að menn spyrji sjálfa sig
ef þeir á annað borð hafa tíma til að hugsa: Er skólaganga
íslenzkra harna of löng? Er ekki þörf á að stytta skyldu-
námið? Sparar það ekki bæði tíma og fé?
En svo er margt sinnið sem skinnið og menn verða varla
á eitt sáttir um þetta mál. Öldruðu fólki finnst nóg um
allan þennan bókalærdóm, xmgt fólk vill losna sem fyrst
úr skólanum, en miðaldra menn rifja upp ljúfsárar endur-
minningar úr fyrstu kennslustundmium.
í byrjun september hefjast skólarnir og börnin ganga
sporlétt fyrstu skrefin í skólann. Foreldrar leitast við að
búa börnin sem bezt út. Sum fá gott veganesti og nýja
skó. Ekki er Iaust við, að þegar þeir sjá börnin sín fara í
fyrsta sinn í skólann, að þeim ói við þessari löngu skóla-
göngu.
FÁLKINN hefur því leitað eftir áliti nokkurra skóla-
manna um eftirfarandi atriði í sambandi við skólagöngu:
Er skólaganga íslenzkra barna of löng? Teljið þér að stytta
beri skyldunámið? Væri æskilegt, að skólatíminn yrði
lengdur á ári hverju? Teljið þér að börnin ættu að læra
námsefnið í skólanum og um enga heimavinnu sé að ræða?
Hvaða tími er æskilegastur að börnin séu í skólanum?
Þeir leystu greiðlega úr spurningunum og kemur margt
það til greina, sem til umhugsunar vekur.