Fálkinn - 05.09.1962, Side 21
hátta. Hæfilegur tími til að byrja er kl. 9. í skammdeginu
er slæmt líka að vera of seint að. En ef byrjað er of
snemma vantar börnin oft svefn.
★
Langholtsskólinn hristist allur. Þeir voru að vinna
þar með loftbor og var varla hægt að heyra mannsins
mál fyrir hávaða. Við héldum nú samt á fund Kristjáns
J. Gunnarssonar skólastjóra og báðum hann að segja
okkur álit sitt á þessum málum. Hann svaraði:
— Það er ekki hægt að segja að skólaganga íslenzkra
barna sé of löng og ég tel ekki skynsamlegt að stytta
hana. í því sambandi má gjarna minnast á það, að áður
fyrr var fræðslan að einhverju leyti á heimilunum sjálf-
um en nú hafa skólarnir alla fræðslu á hendi. Ég held,
að breyttir tímar leiði óhjákvæmilega til þess að skóla-
ganga lengist á hverju ári, en í kjölfar þess fylgir aftur
á móti það, að við verðum að taka upp aðra námstilhög-
un á sumrin. Við sjáum t. d., að ekki komast öll börn
í sveit og Vinnuskólinn í Reykjavík hefur verið alveg 3
fullur midanfarin sumur og fyrirsjáanlegt er að hann
geti ekki annað eftirspurn á næstu árum. — Viðvíkjandi
heimavinnu nemenda, er tvímælalaust heppilegra, að
hörnin læri allt, sem þau eiga að nema, í skólanum. Við
höfum kennt eins mikið og erlendir skólar, en kennslu-
aðferðin því miður verið allt önnur. Kennslan hefur
byggzt á heimalærdómi að of miklu leyti, minnisatriðum,
sem kennarinn fer síðan yfir í kennslustundum. Afsökun-
in er sú, að komast yfir eins mikið námsefni á sem
skemmstum tíma. Stefnan er sú, að lengja fremur skyldu-
námið en stytta það, en taka upp breyttar kennsluaðferð-
ir. — Bezta tímann fyrir börnin til að sækja skólann
hygg ég vera frá 9—2. Tvísetning í skólana er neyðarúr-
ræði og hér í Reykjavík er stefnt að því að einsett verði
í eldri bekki skólanna.
KRISTJÁN j. gunnarsson
— Ekki skynsamlegt að stytta hana.
STEFÁN JÓNSSON
— Skólinn hættuminnsti staðurinn.
Við brugðum okkur til Stefáns Jónssortar rithöfundar
og ltennara. Hann býr í Hamrahlíðinni og kennir við
Austurbæjarbarnaskólann í Reykjavík. Tók hann erindi
okkar ljúfmannlega og sagði:
— Það er dálítið erfitt að svara þessu, en ég veit það
óskhyggju margra að hún væri styttri. Hins vegar er
ekki að sjá, að fólki þyki skólagangan löng miðað við
árafjölda, því að einkaskólar þeir, sem taka yngri börn
en skólaskyld, geta ekki annað eftirspurn.. Samt sem
áður talar margt fólk um of langa skólagöngu.
Hvað hinum atriðunum viðvíkur vildi ég segja fyrir
mitt leyti, að börnin læri sem allra minnst heima og ég
reyni alltaf að setja þeim eins lítið fyrir og ég get. Mér
finnst börnin vera hæfust til að læra á morgnana. Það er
mín reynsla, að það dofni talsvert yfir þeim þegar líða
tekur á daginn.
Persónulega tel ég óæskilega þróun, að skólatíminn
lengist á hverju ári. Ber þar margt til. En það hlýtur að
reka að því, að hér verði tekið upp sama lag og erlendis.
Heppilegast væri, að það væri í annarri mynd, en
kennslufyrirkomulag á veturna. Menn hafa áreiðanlega
orðið þess varir, að vaxandi fjöldi ungmenna dvelst í
borginni á sumrum og staðreyndin er sú, að sveita-
heimilum fer síður en svo fjölgandi og með hverju ári
komast færri börn í sveit. Þá vaknar spurningin: Hvað
á að gera við börnin? Gatan er ekki hollur leikvöllur og
ekki fá öll börn vinnu eða annað, sem þau geta bundið
hugann við. Er þá ekki skólinn hættuminnsti staðurinn,
þrátt fyrir alla þá galla, sem hann kann að hafa?
FJÓRIR ÞEKKTIR SKÓLAMENN SVARA SPURNING-
UM FÁLKANS um skólagönguna og fræðslu-
KERFI OKKAR ALMENNT.
FALKINN
21