Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Side 22

Fálkinn - 05.09.1962, Side 22
Það er miðnætti. Turnklukka slær tólf þung högg. Þungur ómur líður um þök og turna hins gamla kastala. Hund- ur gjammar langt í burtu. Svo er allt hljótt. Tunglið er einhversstaðar á ferð að baki þykkra skýja. Nóttin er sveip- uð þoku, jörð hulin úðarekju. Kastalinn Gundelsberg rís eins og risahnútur úr steini. Uppi yfir voldugu, járnslegnu hliði hangir lampi umvafinn leiftrandi hring af ljósum. Bak við Ijós- in grillir í þunga steinveggi og djúpa garða. Umhverfis kastalann eykst Ijóshafið og á múrnum þar sem maðurinn var áður, stendur nú hópur einkennis- klæddra manna. Þeir hlusta út í myrkrið. — Það var einhver þarna útfrá, segir einn þeirra. Hinir kinka kolli. í sama bili gellur við blístur og um leið hringir aðvörun- arbjallan. Hættuflautan kveður við hæst uppi í turninum. Allir vakna í kastalanum. Raddir kalla. Fótatak heyrist. Dyr eru opnað- ar og dyrum skellt. Allir gluggar eru nú uppljómaðir og einhversstaðar er hrópað hástöfum: — 327 er horfinn! Klefinn er auður! Mennirnir uppi á múrnum standa eins og lamaðir stundarkorn. Því næst hefj- ast háværar umræður. — Það er ómögulegt! — Við verðum að gera boð til þorps- ins! — Hundarnir! Við verðum að ná hundunum út! Litlu síðar opnast járnhliðið mikla og 5—6 einkennisklæddir menn koma í Ijós, hálvegis dregnir áfram af óðfúsum blóðhundum. Mennirnir á múrnum fylgja þeim með augunum, þar til þeir hverfa í þokuna. — Það er vorið, segir einn þeirra. — Svona er þaá á hverju ári, læknir. Þeir verða órólegir. Læknirinn kinkar kolli. — 327 hefur verið ákaflega órór síð- ustu dagana. Hve lengi er hann annars búinn að vera hérna hjá okkur? — í næsta mánuði verða það tíu ár. Guði sé lof að hann skuli nærri því vera kominn til fullrar heilsu. — Já, ef til vill er hann það, segir læknirinn hikandi. Kannski. Þó vitum við það ekki með vissu, fyrr en hann hittir aftur konu með rauða kóralfesti. — Með rauða kóralfesti? Læknirinn kinkaði kolli. — Þér ættuð einhverntíma að lesa yfir málsskjöl hans, segir hann. Það er eitt af þeim einkennilegustu og dular- fyllstu málum, sem ég hef kynnzt. Hann snýr sér við og gengur niður af múrnum. Þokan hefur greiðst nokk- uð sundur. Smám saman fer að sjást í trén umhverfis kastalann. Langt úr fjarska berst hljómur af mannamáli, geltandi hundum, greinum sem brotna undan þungum stígvélum. Einhvers- staðar í myrkrinu gellur við kveinandi ugluvæl. Úti í náttmyrkrinu flýr 327 gegnum skógarþykknið með þrá vorsins í hjarta sínu. Skógar og fjöll, skógar og fjöll. Og inni milli skóganna og fjallanna liggja þorpin eins og gráhvítir deplar. Marz- vindurinn hrekur skýflóka um himin- hvolfið. Sólskinsblettir líða yfir dalina og glampa á glitrandi lækjasitrum. Vorið er að nálgast Spessart. Akurrein með rauðgráum plógförum, sem opnast fyrir blikandi plógjárni. Tveir gulbrúnir uxar fyrir plógi og að baki plógsins vinnuklæddur maður með sterklega handleggi. Hann er ungur, ekki nema 25 ára, á þeim aldri þegar vaxandi vor kennist eins og kvöl í blóð- inu. Við enda plógfarsins nemur hann staðar og þurrkar af sólbrenndu and- liti sér með rauðum vasaklúti. Hann Hér hefst ný framhaldssaga eftir Hans Eric Horster, höfund Gabrielu, vinsælustu fram- haldssögu, sem Fálkinn hefur birt. Rauða fest- in er jafnvel enn þá meira spennandi en hún. Missið ekki af þessari einstæðu sögu! hefur ýtt gamalli sporthúfu aftur á hnakka og pírir augum framan í sólina. Hlustar í þögninni eftir slætti þorps- klukkunnar. Það hlýtur að vera komið undir hádegi. Uppfrá, þar sem akurgatan liggur inní skógarjaðarinn, kemur hvítur depill í ljós milli trjánna. Reiðhjólsbjalla hringir. — Hææ! kallar ungi maðurinn til uxanna og hvetur þá á ný niður eftir akrinum. —■ Hæææ .... þarna kemur hún Kristín. Þegar hann stöðvar uxana við hínn enda akursins, hefur Kristín hallað reiðhjólinu sínu upp að furutré. — Þá er það maturinn, Kilían! kallar hún. Hún horfir yfir akurinn sem hann hefur verið að plægja. — Þú ert búinn að gera mikið í FÁLKINN 22

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.