Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Page 34

Fálkinn - 05.09.1962, Page 34
bæði á sig sem íslendinga enda þótt þau séu fædd og uppalin í erlendu landi. * Þeir íslendingar sem til Lundúna hafa komið og sótt heim Karl Strand og konu hans ljúka allir upp einum munni urn gestrisni þeirra hjóna og alúð. Enda var um langt bil að íslendingar í Lon- don komu saman nálægt heimili Karls Strand í Kensington einu sinni í viku og má ætla að þar hafi persónulegir töfrar læknisins ráðið mestu um, því ölið er eins um alla Lundúnaborg. Þau hjónin hafa búið sér skemmtilegt og vistlegt heimili í einhverju indæl- asta hverfi borgarinnar. Húsið er orðið 130 ára gamalt og var í fyrndinni eign brezku krúnunnar, þar voru áður grænir vellir í kring. Þau hjón hafa oft hugleitt að flytja, því langt á Karl að sækja á vinnustað, en aldrei hafa þau getað fengið það af sér þegar á átti að herða. Þau fluttu inn í húsið í ársbyrj- un 1943 og tóku strax ástfóstri við það. Þar var oft glatt á hjalla er ungt ís- lenzkt listafólk kom saman og Karl Strand sjálfur hrókur alls fagnaðar, skemmtilegur, snjall í viðræðum, víð- menntaður og listhneigður, fundvís á launstigu mannlegrar náttúru. Það sýn- ir bezt bók hans „Hugur einn það veit“, er kom fyrir tveimur árum út á íslenzku. Það mun vera eina bók sinn- ar tegundar á íslenzku og svo ljóslega skrifuð og skýrlega framsett að leik- maður getur hæglega fylgzt með. Þar hefur Karl Strand unnið það þrekvirki að smíða nýyrði og orðasambönd í fræðigrein sinni á íslenzku svo haglega að unun er að mörgum þeirra. Og er það þó að mestu leyti algert brautryðj- endastarf, sálkrufning hefur lítið verið uppi í íslenzkum bókmenntum. T«»lf rauðar ró§ir Framhald af bls. 11. listakonan fær marga blómvendi í lok sýningarinnar, a. m. k. vönd af 12 rauð- um rósum. Það er nú ekkert sérstakt, segið þið kannski, en hvað segið þið, þegar þið fáið að vita, að þessar 12 rauðu rósir, sem öruggt er að listakon- an fær, eru frá eiginmanni hennar? Hann á nefnilega fasta pöntun hjá blómasölum, hvort sem eiginkona hans dansar í Lundúnum eða annars staðar í heiminum! Og í hvert skipti, sem Margot tekur við rósavendinum, velur hún einn blómknapp úr og skenkir mótdansara sínum. Þegar hún í fyrsta skipti dans- aði á móti Rússanum Rudalf Nureyev, varð hann svo hrærður af atviki þessu, að hann féll á kné og kyssti hönd hennar. RAUÐA FESTIN Framh. af bls. 24. — Marteinn! segir hann. — Ég heiti Marteinn! Hann lítur ekki upp. Með stafnum hefur hann skrifað stórt M í sólþurran jarðveginn. Kristín er orðin náföl. — Marteinn! hvíslar hún. — Mar- teinn! Unnusti minn hét Marteinn .... eins og þér! Milli þeirra verður aftur djúp þögn. Kristínu furðar á þessu. Það hefur vak- ið henni óró, sem hún hefur aldrei fund- ið til fyrr, að hitta þenna framandi mann. Hvað er það sem bærist innra með henni? Gleði? Kvíði? Loks rýfur hún þögnina. — Eins og ég sagði, megið þér gjarna koma heim með mér og fá eitthvað að borða. -—- Nei, segir hann í sama tón og fyrr. Ég þarf að halda ferð minni áfram. Hann rís á fætur og býst til ferðar, en hættir við í miðju kafi. Það er eins og eitthvert dularfullt afl haldi honum föst- um. Hann starir sem steini lostinn á Kristínu, starir á fleygið hálsmálið á kjólnum hennar, en þar glampar á kór- alfesti eins og röð af rauðum blóðdrop- um. Eitt örsnöggt augnablik breytir andlit hans um svip. Hið þunglydislega og vonlausa víkur til hliðar. Það er eins og hann reyni að muna eitthvað, og í næstu andrá gerist það, að dauft bros fer að breiðast yfir ásjónu hans..... En það er ekki mannlegt bros. Það er nánast dýrsleg gretta. Svo fer andlitið í samt lag. Það er einkennilega tómt og fölt, örmagna og þjáð. Kristín hefur ekki augun af honum. Hvernig er þessi maður? Hún finnur ískaldan óhugnað fara um sig, óskiljan- legan kvíða. Hún flýtir sér og hneppir kjólnum upp í háls með skjálfandi fingrum. Ef þessi ókunni maður vildi nú bara hafa sig af stað, dytti henni ekki í hug að gera tilraun til að halda aftur af honum. En hann fer ekki. — Já, ef ég mætti annars koma heim með yður, þá þakka ég kærlega fyrir, segir hann allt í einu. Hann hefur jafnvel breytt um róm. Röddin er léttari, en jafnframt er líkt og hún skjálfi við. Kristín hikar andartak. — Komið þá! segir hún svo. Tekur reiðhjól sitt og leggur af stað heim á leið. Aðkomumað- ur fylgir henni þegjandi. Framh. 34 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.