Fálkinn


Fálkinn - 05.09.1962, Qupperneq 35

Fálkinn - 05.09.1962, Qupperneq 35
I t GARNTÍZKAN VETURINN 1962 30 LITIR FLJÓTPRJÓNAÐ MJÚKT STERKT ÁFERÐARFALLEGT GEFJUN AKUREYRI HrútsmerkiS (21. mars—20. apríl). Mjög áríðandi ok aðkallandi mál, sem þcr hafið dregið á lanjjinn að undanförnu, krefjast nú skjótrar úrlausnar. í fjármálunum kemur margt óvænt til sögunnar og mun valda yður talsverðum áhyggjum. NautsmerkiS (21. apríl—-21. maí). I>að er mjög nauðsynlegt fyrir yður að hugsa skýrt i þessari viku og láta ekki hugaróra og sjálfs- blekkingar t.rufla yður. Ástamálin verða frekar hag- stæð og í fjármálunum verðið þér fyrir óvæntu happi. TvíburamerkiS (22. maí—21. júní). I þessari viku mun barátta fyrir ákveðnu máli loksins taka enda og lyktar henni með því, að þér farið með sigur af hólmi og fáið vilja yðar framgengt. Þér hafið ástæðu til að gera yður dagamun í tilefni þess. Krabbamerkið (22. júní—22.júlí). Stjörnurnar eru yður mjög hagstæðar í þessari viku, sérst.aklega þó þeim, sem fæddir eru í júlí. Þér njótið óvenju mikillar hamingju í einkalífinu og eigið miklu gengi að fagna á framabrautinni. Ljónsmerkið (28. júlí—23. ágúst). Það er talsvert rót á tilfinningalífi yðar um þessar mundir. Þér skuluð hafa hugfast, að jafnan er erfitt að uppfylla allar óskir hjartans, án þess að það bitni á þeim skyldum, sem þér verðið að rækja. Jómfrúarmerkiö (2i. ágúst—23. september). Föstudagur og laugardagur verða beztu dagar þessarar viku. Það fellur í yðar hlut að inna af hendi verkefni, sem margir vilja spreyta sig á. Þér þurfið að leggja yður allan fram og nota þetta einstæða tæki- færi. 0 0 Vogarskálarmerkiö (2U. september—23. október). Þér verðið mjög heppinn og hamingjusamur í þess- ari viku. Meðan gleðin stendur sem hæst ættuð þér að muna eftir manneskju, sem stendur yður nærri og á um sárt að binda um þessar mundir. Sporðdrekamerkið (2J+. október—22. nóvember). Nokkur vandamál, sem hafa hvílt þungt á huga yðar að undanförnu, munu að öllum líkindum leysast, enda þótt þér verðið ekki allskostar ánægður með endalokin. Látið ekki afbrýðisemi eyðileggja ham- ingju yðar. Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember). Til þess að umgangast. annað fólk árekstralaust þarf bæði umburðarlyndi og lagni. Hafið hemil á skapsmunum yðar og gerið ekki alltof miklar kröfur til annarra. Fimmtudagurinn kemur yður á óvart. Steingeitarmerkið (22. desember—20. janúar). Þér mættuð hafa hugfastan málsháttinn ,,Vogun vinnur, vogun t.apar“. Yður bjóðast tækifæri í þessari viku, en til þess að þau nýtist þurfið þér að taka talsverða áhættu. Hikið ekki við að freista gæfunnar. Vatnsberamerkið (21. janúar—19 febrúar). Þessi vika verður nokkuð erfið fyrir yður á ýmsum sviðum. Þó skuluð þér ekki láta aðra líða fyrir það. Reynið að láta ekki á neinu bera, heldur hugsið málið í ró og næði og gerið yðar bezta til að leysa vandann. Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz). Ofurlítið ævintýri mun lífga ögn upp á gráan hversdagsleikann í þessari viku. Hafið ekki þungar áhyggjur og samvizkubit út af þessu litla ævintýri, því að það er saklaust og mun ekki draga neinn dilk á eftir sér. , . ( rÁLKINN 35

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.