Fálkinn - 18.05.1964, Blaðsíða 23
Það er líklegt að hvítasunnumynd Austur-
bæjarbíós verði mjög vinsæl að þessu sinni,
en það verður bandariska myndin „Hvað kom
fyrir Baby Jane?“ Þeir munu sjálfsagt margir
sem beðið hafa eftir þessari mynd en sagan,
sem hún er byggð á var framhaldssaga í Vikunni
á síðasta ári. Af þeim sökum mun óþarfi að
rekja söguþráðinn en þess aðeins getið að ís-
lenzkur texti verður á myndinni.
Framleiðandi og leikstjóri þessarar myndar er
Robert Aldrich og mun óhætt að fullyrða að
hann er tvímælalaust í hópi beztu leikstjóra
vestan hafs og eins þó Evrópa væri tekin með
í reikninginn. Við höfum áður séð nokkrar mynd-
ir hans hér og nægir að benda á myndir eins
og Apache, Vera Cruz og Autumn Leaves.
Aldrich þykir mjög tekniskur leikstjóri og sum-
um samlöndum hans hefur þótt nóg um þá þjóð-
félagsádeilu, sem hann birtir oft í myndum
sínum.
Robert er fæddur á Rhode Island 9. ágúst
1918. Hann er því enn á mjög góðum aldri og
líklegt er að við eigum eftir að njóta hæfileika
hans lengi. Ef við til gamans tökum aldurs-
samanburð þá er Robert fimm árum yngri en
Burt Lancaster. Ungur að árum fór Robert
til Hollywood og fór að fást við kvikmyndir. Á
sínum fyrstu árum þar vestra var hann aðstoð-
armaður margra heimsfrægra leikstjóra og ekki
er ólíklegt að þeir hafi gefið hinum unga manni
það veganesti sem reynzt hefur honum nota-
drjúgt. Hann vann með hinum franska Renoin,
einnig með Milestone og Wellman. Þá vann
hann einnig með Chaplin og gert hefur hann
kvikmynd saman með Hecht. Það eru mikil
meðmæli með mynd þegar Aldrich er hvort
tveggja í senn framleiðandi og leikstjóri.
Það er sagt að Aldrich hafi gengið nokkuð
illa að fá fjármagn til að gera þessa mynd.
Helsta ástæðan er sögð sú að hann gerði ráð
fyrir að í myndinni léku tvær miðaldra leik-
Framhald á bls. 26.
AUSTURBÆJARBÍÖ
SÝIMIR
HVAÐ KOM FYRIR
BABY JAIME?
UM IIVÍTASUMUKA
FALKINN
23