Fálkinn - 20.07.1964, Side 16
Við konungshöllina.
Við komum til Kabúl höfuðborgar Afganistan um hánótt
eftir átta tíma hristingsferð í hröríegum póstbíl frá Khyber-
skarði. Ónotalega svalt var í lofti og viðbrigðin svo mikil
frá hitanum niðri á sléttu Pakistan, að okkur þótti þarna
nístandi kuldi.
Stanzað var við pósthúsið, sem stendur í miðbænum við
Kabúlána, sem rennur í gegnum endilanga borgina og gefur
henni nafn. Göturnar, sem við ókum eftir gegnum bæinn
voru malbikaðar og tíðum svo breiðar, að nægt hefði fyrir
umferð í London eða París, og mun sá götulagningarmáti
kominn frá Rússum. Húsin voru hins vegar með örfáum
undantekningum aðeins einnar eða tveggja hæða. Sérkennilega
málaðir röndóttir skúrar stóðu hér og þar á helztu götuhorn-
um, og var sagt, að þeir tilheyrðu lögreglunni. Nú voru
göturnar tómar og borgin í fasta svefni.
Það varð úr að ég hélt hópinn með nokkrum ungum
16 FÁLKINN
Frökkum í leit að gistingu. Ætiuðum við að hafa sparlegasta
háttinn á og ganga, en var þá sagt, að það mættum við
ekki um há nótt. Útgöngubann væri nú að næturlagi, og
við myndum fljótlega finna lögreglu við hlið okkar, ef við
legðum gangandi af stað. Hvergi er í jafn ríkum mæli sinn
siður í landi hverju og í Austurlöndum, svo að við tókum
ráði þessu.
Eftir drjúglanga bið tókst ioks að fá leigubíl, sem var af
rússneskri gerð eins og flestir bílar þarna. Þótt við reyndum
eftir beztu getu að gera bílstjóranum skiljanlegt, að
pyngjan væri létt og kröfurnar ekki miklar. hélt hann samt
rakleiðis með okkur að Hótel Kabúl, eina fyrsta flokks
hótelinu í höfuðstaðnum. Þar kostaði gistingin 400 afgani
eða um 400 ísl. krónur, hvað var lítt við okkar hæfi.
En eftir þetta höfðum við eitthvað við að miða fyrir bílstjór-
ann, sem kom okkur eftir skamma stund í gistihús í afgönsk-
um stíl, þar sem aðeins skyldi greiða 10. hluta áðurnefnds