Fálkinn - 20.07.1964, Page 31
númer í hasti og beið með ó-
þreyju og ranghvolfdi augun-
um. Loks var svarað í símann.
— Já, er það Sheffield Times?
þrumaði Moore ritstjóri æstur:
STÖÐVIÐ ALLAR VÉLAR!
SENDIÐ LJÓSMYNDARA OG
BLAÐAMENN! HREINSIÐ ÚT
AF FORSÍÐUNNI!
Svo féll símtólið úr hendi
hans og hann hné niður á gólfið
með tunguna út um munnvik-
ið. Hr. Pendower tókst að lok-
um að vekja hann til lífsins á
ný.
— Hvað . .. hvað varð það?
Moore ritstjóri horfði á hann
stoltur og föðurlegt bros ljóm-
aði á öllu andliti hans.
— Tvíburar, öskraði hann,
bravó ... B r a v ó !
Willy Breinholst.
Brú milli hjartna
Framhald af bls. 28.
— Viltu koma inn fyrir. Ég
held við eigum ýmislegt ótalað.
Það var engu líkara en þau
hefðu aldrei fyrr talast við.
Öll orð fram að þessu virtust
hafa verið innihaldslaus. Nn
streymdu fram á varir hans orð,
kínversk orð. Hún settist á
silkiklEgddan dívaninn og hann
tyilti sér á stól rétt hjá henni.
Hún leit á hann og skimaði svo
í kringum sig.
— Mér fellur ekki nokkur
hlutur í þessu herbergi, sagði
hún. — Þú þekkir mig hreint
ekki. Þú veizt ekki einu sinni
hvað ég heiti að réttu lagi. Ég
er öll önnur en þú ímyndar
þér. Úr því ég er á förum gerir
ekkert til þótt þú vitir að ég
er mjög gamaldags. Allan
þennan mánuð hef ég haft við-
bjóð á því sem ég hef gert með
þér. Mér fellur ekki að dansa.
Mér býður við útlendu súkku-
laði. Mér er ekkert um kossa-
flans.
— Bíddu, — greip hann fram
í, nú veit ég að mig hefur grun-
að þetta allan tímann. En ég
gat ekki skilið hvers vegna þú
þoldir mér að kyssa þig og
dansa við þig. Ég hefði látið
það ógjört ef þú hefðir beðið
mig um það, ég vildi sízt af
öllu gera þér neitt á móti skapi.
Hún leit feimin niður á hend-
ur sínar sem hvíldu í skauti
hennar. Hún svaraði stillilega:
— Ég hélt þú kysir fremur
að ég vendi mig að þessum út-
lendu siðum og ég vildi vera
eins og þú vildir að ég væri.
Ég hugsaði sem svo að ég
mundi ekki sjá þig framar ef
ég legðist á móti því...
Röddin var orðin svo mjó að
hann heyrði varla síðustu orð-
in.
— Hvað er hið rétta nafn
þitt, spurði hann.
— Ming, svaraði hún, Geisl-
andi hjarta.
— Ég heiti Jung An — Hug-
prúður friður, sagði hann.
Það varð nokkur þögn. Svo
laut hann fram og sagði:
— Er það í raun og veru
skoðun þin . .. að okkar eigin
siðir og hættir eigi bezt við
okkur?
— Jú, sagði hún. Miklu
betur.
— Þú vilt ekki búa í svona
húsi?
— Nei.
— Þú vilt ekki dansa og aka
bíl eins og nútíma konur gera
allan liðlangan daginn?
— Nei.
— Við þurfum aldrei framar
að sóa tímanum til þess, sagði
hann.
— Aldrei framar.
— Við skulum tala okkar
eigin tungu, og ég hendi þess-
um útlendu fötum og klæðist
þjóðbúningi okkar á ný og við
skulum semja okkur að siðum
forfeðra okkar og héðan í frá
reyki ég eina vatnspípu á dag.
— Ég geng aldrei framar á
hælaháum skóm, sagði hún, og
aldrei skal ég borða smjör sem
ég hef viðbjóð á og engan út-
lendan mat og ég skal fá hús
þar sem ekki eru stigar og ég
skal ala mörg mörg börn.
Hún sá það allt fyrir sér
meðan hún talaði, húsið þeirra,
heimilið þeirra. Hann var frá
sér numinn af gleði og hann
sagði:
— Viltu giftast mér? Eigum
við — eigum við — Svo þagn-
aði hann. hann reis á fætur og
stóð ákveðinn á svip fyrir
framan hana. Nei, sagði hann.
Ungfrú Fang, faðir minn mun
skrifa föður yðar bréf þegar í
stað...
Hann var næstum kominn út
um dyrnar. Nú stóð hann á
þröskuldinum og leit um öxl.
Hún stóð upp og hneigði sig
og stóð svo og horfði á eftir
honum og augu hennar voru
full af gleði og ánægju. Hún
var eins og nýútsprungin rós.
Hann sá hana nú í fyrsta sinn.
Þetta var hún sjálf, þessi yndis-
lega vera, runnin upp með hans
eigin þjóð. Þau skyldu rækta
lótusblóm í garðinum og hafa
bambuslundi og lesa skáldskap
hvort fyrir annað úti í garðin-
um — fornan kveðskap, í fjór-
um vísuorðum. Hann hafði
alltaf látið sig dreyma um slíkt.
— Hafið þér hugsað yður að
fara, herra Lin? spurði hún
að fornum sið.
Orðin hljómuðu svo fallega
Kæri Astró.
Mig langar til að fá dálitla
vitneskju um framtíðina.
Ég er fædd klkkan 4,30 eftir
hádegi. Ég var í skóla í vetur
er' leið. í sumar vinn ég á skrif-
stofu. Ég er hrifin af strák, sem
er 19 ára og vinnur í verzlun.
Mig langar að verða flugfreyja.
Verður framtíð mín björt og
hamingjurík.
Hvernig manni giftist ég.
Giftist ég stráknum sem ég er
hrifin af?
Gera svo vel að sleppa því,
sem er innan sviga.
Xina.
Svar til Xinu.
Júpíter í fjórða húsi er mjög
hagstætt tákn. Svo að segja
ávallt bendir hann til góðs
heimilisbrags og efnahags.
Fjölskyldumálin færa hagnað
sakir verzlunar og viðskipta.
Trúar og stundum lögfræðileg
mál hafa áhrif á fjölskyldulífið
og í vissum tilfellum geta lang-
ferðir og innflutningur til ann-
arra landa valdið breytingum á
heimilinu. Síðustu ár ævinnar
gefa mikið af sér efnalega.
Júppípter verður fram til
júní 1965 á ferð sinni umhverf-
is sólu í níunda húsi ævisjár
þinnar. Þú ættir að gera nauð-
synlegar ráðstafanir meðan
þessar hagstæðu afstöður eru
fyrir hendi til að geta komizt
í flugfreyjustöður og jafnvel
muntu hafa góða möguleika á
slíku allt fram til ágúst 1966.
Ég held að hyggilegast væri
fyrir þig að taka ekki ákvarð-
anir fyrr en síðar á sviði ásta-
málanna, þegar þú hefur feng-
ið einhverja kjölfestu í sálar-
lifið.
Venus á hvirfillínunni á fæð-
ingarstund þinni lofar góðu um
þann árangur, sem þú kannt
að ná sem atvinnumanneskja.
Þú munt skapa þér viðurkenn-
ingu fyrir góða framkomu og
þokka. Ýmsar tegundir snyrti-
iðna mundu eiga sérlega vel við
þig svo og verzlunarstörf við
fegrunarvarning.
í ellefta húsi, sem stendur
fyrir vini og kunningja eru
nokkuð erfiðar afstöður, sem
benda til þess að þú munir eiga
í erfiðleikum með þessa aðila
og ættir helzt sem minnst að
trevsta á loforð þeirra eða að-
stoð.
að vörum hennar að hann varð
að beita sig hörðu til að þjóta
ekki til hennar og faðma hana
að sér. Hann gekk út á gang-
inn og leit enn einu sinni um
öxl til hennar. Hún sat graf-
kyrr á dívaninum, krosslagði
granna handleggina á sama
hátt og hún mamma hans gamla
hafði gert. Hún var sæl á svip
og hann var sannfærður um að
hún sá fyrir hugskotsjónum
sinum gaiðinn þeirra, húsið,
börnin öll, hina fornu velkunnu
veröld þeirra sem nú opnaðist
fyrir þeim eins og fyrir krafta-
verk.
Kvikmyndir
Framhald af bls 29.
Feneyjum 1959. Handritið er
eftir Bergman sjálfan, en
myndatökumaður er Gunnar
Fischer, eins og í flestum Berg-
mansmyndum. Tónlistin er eft-
ir Erik Nordgren. Aðalhlut-
verkin eru í höndum þeirra
frægu leikenda Max von Sy-
dows, Gunnars Björnstrands og
Ingrid Thulin. Einnig leika þau
Naima Wifstrand, sem lék móð-
ur ísaks í Að leiðarlokum, og
Bengt Ekerot, sem lék Dauð-
ann í Sjöunda innsiglinu. Og í
smáhlutverki má sjá Birgitta
Petterson, sem byrjaði leikferil
sinn í Sölku Völku og vakti
mesta athygli fyrir leik sinn í
Meyjarlindinni, en það var
næsta mynd Bergmans á eftir
Andlitinu.
Andlitið er hálfpartinn hroll-
vekja og að hálfu siðgæðissaga.
Myndin er látin gerast á miðri
síðustu öld. Hún byrjar þar
sem vagn og eyki hafa stað-
næmst í skógi og hópur flökku-
Framh. á bls. 36.
Neptún i öðru husi vejdur
ríkri löngun til að afla sér fjár
á skjótan og auðvelda" hátt og
þar af leiðandi gefur hann til
kynna að ávallt sé nauðsynlegt
að halda óskertum greinarmun
á hvað sé rétt og hvað sé rangt.
Ekki verður ávallt auðvelt að
standa gegn þeirri freistingu
að auka tekjurnar eða minnka
gjöldin á óheiðarlegan hátt, sér-
staklega þegar óvenjuleear að-
stæður steðja að.
FALminN
31