Fálkinn - 22.09.1964, Blaðsíða 5
Énn nm utanbæjarleiki.
' Kæri Fálki!
’ Ég sé að það er enn verið
að skrifa um þetta atvik sem
kom fyrir í knattspyrnuleik
milli Akranes og Fram á Skag-
anum snemma í sumar. Mér
finnst þetta ómerkilegt mál
sem varla tekur að vera að
rífast um. Og þeir sem hafa
skrifað um þetta mál ganga
framhjá mikilsverðu atriði í
málinu. Það skiptir ekki máli
hver lamdi hvern og hvað,
i^eldur hitt að þroski íþrótta-
manna er ekki meiri en þetta
óg það er að mínu viti það sem
fyrst og fremst skiptir máli.
Svo sé ég ekki ástæðu til að
hafa þetta lengra.
Þróttari.
£fvar:
Um þetta mál hafa orOiS nokkr-
«r deilur og virðast þwr hafa far-
iö inn á þá braut aö sanna ágæti
borgarbúa fram yfir dreifbýlinga
og öfugt. Enn sem fyrr er Póst-
hólfiö opið öllum þeim, sem eitt-
Jwaö hafa til málsins aö leggja.
Bvar til Péturs:
Þú cettir ekki aö vera svona
viss í þinni sök því verið getur aö
einn daginn renni þaö upp fyrir
þér aö þú hefur á röngu aö standa.
Þú ættir heldur aö reyna aö bceta
fyrir þaö sem þú hefur þegar gert
illt af þér í þessu máli og láta
síöan allar framkvæmdir sitja á
hakanum.
Um umferðina.
Kæri Fálki!
Alltaf er maður að lesa um
umferðarslys og árekstra í um-
ferðinni og þess háttar. Og
menn eru alltaf að tala um að
eitthvað þurfi að gera til þess
að bæta úr þessum vanda. En
það er lítið annað en umtalið.
Hér þarf eitthvað að gera rót-
tækt áður en það er um seinan.
Og það er annað sem mætti
gera að skaðlausu og mundi
áreiðanlega bæta umferðina til
mikilla muna. Það er að auka
hér almenna fræðslu um um-
ferðarmál og kenna þar með
almenningi að hegða sér rétt
íiumferðinni. Og um umferðar-
ljósin er það að segja að þar
ætti að standa stöðugur vörður
og 'sekta þá um fimmtíu til
hundrað krónur sem ekki fara
Oftir ljósunum.
J Með beztu kveðjum.
Bílstjóri.
Svar:
Þaö er rétt aö eittlmaö þarf að
gera og þetta meö umferöarljósin
og almennu fræösluna hefur þegar
komiö fram hér ( Pósthólfinu og
viö erum enn á sðmu skoöun aö
þaö mundi basta um í þessum
málum.
„Kvikmyndavikur.“
Kæri Fálki!
Hér var einu sinni rússnesk
kvikmyndavika og þótt hún
hefði getað verið betur skipu-
lögð þá var hún þó alltaf ný-
breytni. Og það er einmitt það
sem okkur skortir hér í þessum
efnum. Hvernig væri að kvik-
myndahúsin ynnu saman að
kvikmyndavikum til að skapa
fjölbreytni. Þannig að eina vik-
una yrðu sýndar myndir með
Alec Guinnes, eða myndir eftir
Bunuel eða einhvern þekktan
leikstjóra. Ég hygg að svona
kvikmyndavikur yrðu til þess
að auka áhuga fyrir kvikmynd-
um almennt og þarna yrði um
merka kynningarstarfsemi að
ræða. Vonandi á það ekki langt
í land að þetta komist til fram-
kvæmda.
Kvikmyndahúsgestur.
Svar.
Þetta er vissúlega athyglisverö
hugmynd og alls ekki ólíklegt aö
þetta eigi eftir aö komast í fram-
kvæmd.
Hver bannar
kvikmyndimar.
Kæri Fálki!
Getur þú sagt okkur hver
það er hér sem ákveður hvaða
myndir eru bannaðar og aldurs-
takmarkið. Við vorum að tala
um þetta í ferðalagi um daginn.
Með þökk.
B & P.
Svar:
Hér er starfandi kvikmynda-
eftirUt skipaö af hinu opinbera
og þaö sér állar kvikmyndir sem
hér eru sýndar og ákveöur hvort
þær skuli bannaöar og innan
hvaöa aldurs.
LEIGUFLUG - ÁÆTLUNARFLUG
SJÚKRAFLUG
HELLISSANDUR TIL LEIGUFLUGS HÖFUM
PATREKSFJÖRÐUR VIÐ ÞESSAR FLUGVE'LAR
ÞINGEYRI BEECHCRAFT bonanza
FLATEYRI (6 farþega)
REYKJANES GJÖGUR DE HAVILAND DOVE 19 tarþega)
HÓLMAVÍK REYKHÓIAR rWIN PIONEER (16 iarþega)
STYKKISHÓLMUR CESSNA 180
VOPNAFJÖRÐUR (3 farþega)
LeitiS frekari upplýsinga á afgreiðslu
Fluglijónnsta Rjörns Pálssonar
á Reykjavíkurflugvclli
Sími 21611 — 21612
FJELAGSPRENTSI1IÐJUNNAR
SPÍTALASTÍG 10 — (VIF) ÓÐINSTORG)
ERU AFGREIDDIR MEÐ
DAGSFYRIRVARA
VAMD4Ð EFMI
FALKINN
5