Fálkinn - 22.09.1964, Blaðsíða 20
ER
GEISHA
iilJN ER 21 ÁRS OG HEITIR CHIOHA. STARF HEMIMAR ER AÐ
GLEÐJA MENN, LÁTA FARA VEL LIM ÞÁ OG GERA ÞÁ ÁMÆGÐA
TEXTI: GUSTAF VON PLATEN - MYNDIR: LENNART NILSSON
Kl. 3.00. Hvern dag sezt litla geishan CHIYOHA á gólfið
fyrir framan spegilinn sinn til að breytast ur venjulegn
ófarðaðri stúlku í stríðsmálaða geishu. Chiyoha er 21 árs og
býr í herbergi með eldri starfsystur. Þær búa i tehúsi í
geishuhverfi Kyoto, en sú borg er þekkt fyrir fegurstu geishur
Japans. Meðan rafmagnsviftan suðar og amerísk dægurlög
hljóma í útvarpinu byrjar hún hina klukkustundarlöngu
snyrtingu.
■
Háls og hrygg Chiyoto
málar hin 13 ára aðstoðar-
stúlka hennar — verð-
andi geisha — krítarhvíta.
Skreyttur háls og bak eru
mjög eggjandi í augum
japanskra karlmanna.
Kl. 3.10. Förðunartækjunum
er raðað upp í nákvæma röð.
Andlitið er smurt með sítrónu-
ilmandi kremi. Síðan málar
hún það krítarhvítt. Áður voru
það ekki bara geishur sem
gengu þannig málaðar, heldur
allar yfirstéttarkonur, frá
barnsaldri. Á augnalokin set-
ur Chiyoha rauðan farða og
augun stækka við breið svört
strik. Munnurinn er aftur á
móti gerður lítill. , „ ,
k
20
FALKINN