Fálkinn - 04.10.1965, Side 9
METSÖLUPLÖTUR í HLJÓDFÆRAHÍÍSIIVIU
Ég ætla að ræða dálítið
um fimm vinsælustu hljóm-
plöturnar í Hljóðfærahús-
inu h. f. Hafnarstræti.
í fyrsta sæti er „Long
live love“ með Shandie
Shaw. Hún syngur þetta lag
einkar vel og ekki er undir-
leikurinn síðri. Kinksplatan
„She’s my friend“ rauk upp
í annað sæti strax fyrsta
daginn, sem hún kom í verzl-
unina. „Set me free“, einnig
með Kinks er nr. 3. Eitt af
þessum lögum sem maður
kann strax við. „He’s got
no love“ skipar fjórða sætið.
Því miður er hér á ferðinni
frekar lélegt lag með hinum annars ágætu Searchers.
í fimmta sæti er „Colours“ sungið af Donovan, en hann
er mjög vinsæll í Bretlandi. Söngur hans er undar-
leg blanda af cowboy- og þjóðlagasöng. Látum þá út-
rætt um vinsældarlistann.
TOP SIX heitir hljómplata, sem kemur út í byrjun
hvers mánaðar í Bretlandi og eru á henn sex efstu
lögin á vinsældarlista undangengins mánaðar. Þessi
hljómplata kemur alltaf reglulega í Hljóðfærahúsið og
vil ég mæla sérstaklega með henni fyrir þá, sem ekki
binda sig eingöngu við frumútgáfuna á þeim lögum,
sem ná vinsældum. Á hverri plötu eru sex lög og hún
kostar aðeins 60 krónur eða 10 krónur lagið, og er
hér um kjarakaup að ræða. Ekki eru gefin upp nöfnin
á þeim, sem flytja þessi lög, en auðheyrt er, að þar eru
engir viðvaningar á ferð, en þó eru söngvararnir í mis-
jöfnum gæðaflokki. Fyrsta platan kom út í febrúar 1964
og síðan eru þær orðnar 19 talsins. TOP SIX selst yfir-
leitt mjög vel hjá Hljóðfærahúsinú. Sem dæmi um það,
er sú staðreynd, að verzlunin biður um fleiri eintök
af þessari plötu í fyrstu pöntun, heldur en af nýrri
Kinksplötu. Á plötu TOP SIX no. 18 eru m. a. „I’m
alive“ og „Crying in the chapel“. Plata no. Í7 hefur
að geyma t. d. lögin „King of the road“, „Long live
love“ og „This little bird“.
love“ og „This little bird“. (Þessi grein átti að koma í
þættinum „í SVIÐSLJÓSINU“ fyrir nokkru, en féll út
vegna þrengsla í blaðinu.)
Þessi sérstæði klæðnaður er
talinn ágætur í kvöldboðum.
Þetta er ítölsk uppfinning.
Það má einnig nota þennan
fatnað sem náttföt, segja
framleiðendurnir. — Eflaust
ágætt. Beint í rúmið að sofa
eftir langt og erfitt kvöld-
boð.
hr. Ga-Ga hefðu haft ánægju
af að hlusta á framkomu
Valsara, Frammara, Víkinga
og Þróttara við mig, svo elcki
sé minnst á Keflvíkinga,
Akurnesinga eða Akureyr-
inga.
Næsti kafli nefnist JÓLIN.
FÁLKINN
9