Fálkinn - 04.10.1965, Blaðsíða 42
¥ I .*#//»,n
U &ti 'd'
'Sefijre
0 o 0 D U 0 n
□ £ ..
Einangrunargler
Framleitt einungis úr úrvals
gleri. — 5 ára ábyrgð.
Pantið tímanlega.
KORKIÐJAM H.F.
Skúlagötu 57 — Símar 23200
SKARTGRIPIR
LJWUW^L^ LLzfc
trúlofunarhringar
HVERFISGÖTU 16
SÍMI 2-1355
TRULOFUNAR
H
R
I
N
G
A
R
ULRICH FALKNER oullsm
LÆKJARGÖTU 2 2. HÆÐ
saman haíði hann litið á hjóna-
ástir þeirra sem vanabundið
starí, skapað af erfðavenjum.
Hin fátæklega ánægja, sem þær
veittu honum var iíkust sultar-
launum verkamanns, sem ráðinn
væri af fjölskyldunni til að geta
börn. Hann hafði getið þrjú og
foreldrar hans voru ánægðir; nú
var honum ljóst hve mikils hann
hafði misst og honum fannst
hann hafá verið rækilega hlunn-
farinn.
„Hefur þú peninga?" spurði
Aika allt í einu. Chiang opnaði
augun. Hið dásamlega augnablik
algjörrar fullnægju eyðilagðist
við þessa skyndilegu og óróman-
tizku spurningu. „J — já,“ sagði
hann. „Hvers vegna spyrðu?"
„Gera svo vel gefa mér tíu
dali?“
Chiang varð hverft við. Eftir
augnabliksþögn spurði hann:
„Viltu að ég borgi þér?“
Aika þrýsti handlegg hans
„Nei,“ sagði hún og brosti. „Ég
fæ lána, allt í lagi?“
Vonbrigðin voru ægileg, en
honum tókst að leyna þeim; auk
þess vildi hann ekki vekja hjá
henni þá hugmynd, að hann
væri nízkur viðskiptavinur þó
að raunverulegt gildi þessarar
reynslu minnkaði stórum við að
umreiknast i peninga. Hún var
nú ekki lengur gjöf, sem hægt
var að minnast, heldur keypt
vara, gjörsneydd sínu tilfinn-
ingalega verðmæti. Hann teygði
sig nærri reiðilega eftir buxun-
um sínum til þess að ná í pen-
ingana, en Aika dró hönd hans
til baka. „Nei ekki núna,“ sagði
hún. „Þegar þú ferð, þú láta mig
fá, allt í iagi?“
„Hefurðu þetta sem auka-
starf?“ spurði hann.
„Aukastarf?" spurði hún undr-
andi. „Hvað er það?“
„Ég á við að þú vinnir þér inn
aukapeninga með því að sofa
hjá hinum og þessum?"
„Já,“ sagði hún og brosti. „Ég
er hóra."
„Hvers vegna vildirðu mig?“
„Af því þú lízt vel á mig,“
sagði hún. „Þú horfa á mig alltaf.
Þú kemur borða alltaf. Þess
vegna.“
„Þú hefðir getað tekið Ijós-
hærða ameríkanann," sagði Chi-
ang. „Hann horfir líka alltaf á
þig. Þú hefðir jafnvel getað átt
talsverð viðskipti við bjórþamb-
arana. Það hefðu ekki verið nein
smá viðskipti."
„Ó, nei!“ sagði hún eins og
hana hryllti við þeirri hugmynd.
„Enga ameríkana. Þeir drekka
sig fulla. Þeir berjast. Koma af
stað vandræðum. Nei, nei! Ekki
Japana heldur."
„Hvers vegna ekki?“
„Þeir þekkja mig allir. Þeir
allir vinir mínir. Ég aðeins vera
með Kínverjum."
„Hvers vegna Kínverjum?"
„Af þvi — þið tala ekki mikið.
Þið hræddir um að verða til
minnkunar. Þess vegna. Ertu
kvæntur í alvöru?"
„Þú spurðir mig um það áður.“
„Já. Ég vil vera viss.“
„Ég er kvæntur," sagði Chiang.
„Og á þrjú börn.“
Aika þrýsti handlegg hans
aftur. „Gott. Ég líka vel þig.“
„I þinni atvinnugrein kemur
sér bezt að geðjast vel að öll-
um,“ sagði Chiang með kald-
hæðni i rómnum, en nærri sam-
stundis sá hann eftir að hafa
sagt það. Aika virtist ekki kippa
sér upp við þetta. Hún sagði
vingjarnlega: „Ég geðjast vel
þig. Bara þig.“
Framh. í næsta blaði.
• Kvenþjódin
Framh. af bls. 39.
og 4 umf. sl. með koksgráu.
Fellt af.
Ermar: Fitjið upp 56 1. á
prj. nr. 2V2 með koksgráu og
prjónið 5 cm brugðningu, 1 sl.,
1 br. sett á prj. nr. 3 og prjónuð
1 umf. með hvítu, aukið jafnt
út svo 80 1. séu á. Mynstrið
prjónað. Merkið við 2 1. á undir-
erminni og aukið út um 1 1.
beggja vegna við þessar 1. í 5.
hverri umf., þar til 120 1. eru
á. Prjónað beint þar til erma-
lengdin er 54 cm (Athugið að
sömu tölur eiga við allar stærð-
ir). Endið þar sem stendur vel
á með mynstrið og prjónið að
lokum 1 umf. slétta, 1 umf.
brugðna og 4 umf. sl. með
koksgráu. Fellt af.
Frágangur: Allt pressað á
röngunni nema brugðningar.
Merkið því næst fyrir erma-
vídd í báðum hliðum á boln-
um. Saumið tvisvar í vél í
kringum merkinguna, klippt
upp úr. Beygið dökka kantinn
inn að röngu að aftanverðu á
bolnum um brugðnu umferð-
ina og tyllið. Saumið svo saman
axlirnar, á þann hátt að taka
í 1 brugðna 1. frá hvorri hlið,
látið hálsmálið vera 25 cm
breitt. Að síðustu eru ermarn-
ar saumaðar í frá réttunni tekið
til skiptis í 1. frá brugðnu umf.
og 1. fyrir innan vélsauminn á
bolnum, 4 sléttar umf. eru síðan
lagðar yfir sárið á röngunni og
fest niður, svo ekki sjáist á
réttunni.
Skýringatáknin ...........
á mynsturteikningu...........
□ = hvítt nr. 501,
sé Dale Heilon garn
notað.
O = grátt nr. 4,
sé Dale Heilon garn
notað.
X = koksgrátt nr. 12.
sé Dale Heilon garn
notað.
ENDURNÝJUM
SÆNGUR OG KODDA
FLJOT afgreiðsla
HÖFUM EINNIG
EINKASÖLU
A REST-BEST
KODDUM
Póstsendum
um land allt.
DÚN-
0G FIÐUR-
HREINSUNIN
VATNSSTtG 3
(örfá skref
frá Laugavegi)
Sími 18740.
UNDRAPÚÐINN
sem festir tanngóminn, drcgur úr
eymslum, lim-
ist við góminn,
þarf ekki að
gkipta (laglega.
S N U G er sérstaklega mjúkur
plastic-púði, sem sýgur góminn
fastan, þannig að þér getið talað,
borðað og hlegið án taugaóstyrks.
S N U G er ætlað bæði efri- og
neðrigóm. — Þér getið auðveld-
lega sjálf sett púðann á, hann
situr fastur og hreinsast um leið
og tennurnar. — S N U G er skað-
laus tannholdi og gómnum. Endist
lengi og þarf ekki að skipta dag-
lega.
Heildsölu-
birgðir:
J. 0. Möller
& Co.
Kirkjuhvoli,
sími 16845.
42 FÁLKINN