Fálkinn - 04.10.1965, Page 32
Fangarnir stukku af múrnum niður á pallinn, sem seig
hægt niður. Af pallinum stukku þeir niður á fjaðradýn-f
ur og síðan hlupu þeir út í bílana.
IVIEBST ARAVERK
Lesendur dagblaðanna muna eflaust eftir póstráninu mikla,
sem framið var í Englandi í fyrra. Þó vakti kannski enn meiri
athygli þegar einum póstræningjanum, Ronald Biggs, tókst
að flýja um miðjan dag úr Wandsworth fangelsinu í London.
Samkvæmt frásögn Scotland Yard gekk flóttinn þannig fyr-
ir sig:
Föstudaginn 9. júlí kl. 15: í Wandsworth fangelsinu í miðri
London fylgja fjórir vopnaðir verðir fjórtán föngum út í garð-
inn. í skugga sjö metra hás múrs ganga þeir þrjá hringi.
Á sama tíma kemur akandi óvenjulega hár flutningabíll
hinum megin við múrinn. Vagninn stanzar og upp úr þakinu
lyftist pallur, knúður af vökvalyftu, upp að efri rönd múrsins.
Á pallinum standa þrír menn.
Kl. 15.05: Þrjú höfuð, með grímu úr nylonsokkum, koma
í ljós. Einn kallaði niður í garðinn: ,,Allt í lagi, strákar.“
Hinir beindu byssuhlaupunum að fangavörðunum fjórum:
„Standið þið kyrrir! Hreyfið ykkur ekki!“
Þrátt fyrir aðvörunina, hljóp einn varðanna að næsta að-
vörunarhnapp. Hvell hringing kvað við í öllu fangelsinu.
Tíu fangar köstuðu sér á verðina og afvopnuðu þá.
Á meðan höfðu grímuklæddu mennirnir komið fyrir stiga
og reipi niður í garðinn.
Biggs, póstræninginn, klifraði upp og þrír aðrir fangar not-
uðu tækifærið, á meðan hinir gættu varðanna.
Handan múrsins kom sautján ára drengur á mótorhjóli.
Hann kallaði upp yfir sig: „Árás!“ Áhöfn bílsins réðist á
hann og lokaði hann inni í kofa, þar til allt var yfirstaðið.
Á meðan stukku fangarnir fjórir af múrnum yfir á vökva-
knúna pallinn, sem seig hægt niður innan í hinum fimm metra
háa flutningabíl. Þeir yfirgáfu síðan flutningabílinn og hluþu
að þrem einkabílum, sem voru nálægir með hreyflana í
gangi.
Nokkrum sekúndum síðar voru bílarnir horfnir, en eftir
stóð flutningabíllinn með innbyggða pallinum.
Einn furðulegasti flótti, sem sögur fara af, hafði heppnazt.
ÞETTA ER
hinn heimsfrægi hljómsveitarstjóri, Herbert
von Karajan. Hann stjórnar Fílharmoníu-
hljómsveitinni í Berlín, og kunnugir segja,
að þær séu ekki skornar við nögl, tekjurnar
sem hann hefur. Já, það eru ekki aðeins
bítilmennin sem moka inn milijónum.
32
FALKINN