Fálkinn - 25.10.1965, Síða 9
TÚBMsiu n tln b úðirna r
Grensásvegi — Nóatúni sími 21901 Aðalstræfi sími 24026
annars helzt að leggja þig/‘
bætti hann svo við.
Ég fann að hann hafði
alveg á réttu að standa.
Það er eiginlega kominn
tími til að ég fengi ljósmóð-
urina og það eins og skot.
,,Hringdu,“ sagði ég og
stundi. „Hringdu eins og
skot.“
Siggi hringdi á Ijósmóður-
ina. Siggi sagði henni að
flýta sér, Siggi hringdi í
lækninn og þá meira að
segja tvo, Siggi setti vatn
yfir í þrem pottum og stór-
um katli, Siggi setti hreint
á rúmin, og ég sat þarna
í stólnum og beið og brosti
eins og álka.
„Hún er að koma,“ sagði
Siggi hughreystandi. „Þau
eru að koma, leiðrétti hann
sig svo.
„Vertu bara rólegur,"
sagði ég.
„Rólegur?" sagði Siggi.
„Ég er rólegur. Vert þú bara
róleg.“
„Róleg,“ sagði ég. „Ég er
róleg.“
Og þarna sátum við bæði;
ég á stólnum mínum og
Siggi á stólnum sínum. Ég
reyndi að halda niðri í mér
andanum í þeirri von að tím-
inn þangað til ljósmóðirin
kæmi yrði styttri ef ég and-
aði ekki nema í annað hvert
skipti.
Siggi sat á stólbrúninni
og kreppti hnefana um arm-
ana.
„Hvernig líður þér?“
spurði hann.
„Mér?“ svafaði ég. „Mér
líður stói'kostlega.“
„Illa eða vel?“
„Hla.“
„Það er gott veður í kvöld,
finnst þér það ekki líka,“
spurði Siggi til að skipta um
umræðuefni svo ég hefði
um eitthvað annað að hugsa.
,Jú, það er gott veður,“
sagði ég.
„Það er bara hlýtt úti,“
sagði Siggi.
„Já, það hefur vei'ið hlýtt
í marga daga,“ sagði ég.
„Kannski verður heitt á
morgun líka,“ sagði Siggi og
rödd hans titraði heilmikið.
Ég beið þangað til mér
■tókst að svara rólega:
„Ég er ekki viss um það.
Ætli það rigni ekki á
morgun?“
„Það var samt heitt í gær,“
sagði Siggi.
„í gær?“ spuxði ég.“ „Já,
í gær. Það var heitt í gær.“
Siggi spratt á fætur.
Framh. á bls. 36
fjögurra hreyfla flugvél “
sjúkraflug
18410 “”"^18823
FLUGSYN
FALKINN
9