Fálkinn


Fálkinn - 25.10.1965, Side 39

Fálkinn - 25.10.1965, Side 39
SENN ER KOMINN TÍMI TIL AÐ HUGSA FYRIR JÓLUNUM, OG HÉR ER MYNSTUR AÐ JÓLADIÍK: ☆ JÓLAREFILL Saumið í fallega rautt javaefni hin gamalkunnu tákn jólanna — jólatrén með tendruðum ljósum og stjörnum i toppinum, sveitakirkju, bjöllum og fjöldanum öllum af jólasveinum. Refill- inn getur verið stuttur eða langur, fer það eftir geðþótta hvers og eins, kirkj- urnar eru hafðar fyrir endunum og jóla- sveinarnir meðfram hliðunum, jólatréð er haft fyrir miðju langhliðanna og snúa allir jólasveinarnir sér í áttina að þvi. Fallegast er að sauma í efni með þráðaþéttleikanum loxlo þráðum á hvern cm. Saumaður er krosssaumur með hvítu, gulu, grænu og bláu áróra- garni. Fallegra er að hafa 2 litbrigði af grænu og bláu og hafa stóru trén t. d. heldur dekkri en þau sem jólasveinarn- ir halda á. Kögrið að lokum refilinn á öllum hliðum. VIABER - VINBER - VINBER Varla er hægt að bera fjölskyldunni betri eftirrétt en fallega klasa af svalandi, safaþrungnum vínberjum, en vínberin bragðast vel á margan hátt. Hér koma nokkrar tillög- ur um notkun þeirra. Leggið litla klasa af vel- skoluðum vínberjum kringum sunnudagssteikina. Það gleður augað — og smakkast vel, eða kljúfið vínberin langs- um, takið kjarnana úr, setjið þau svo út í steikarsósuna, eða veltið þeim upp úr eggja- hvítu, dýfið þeim ofan í sáldr- aðan flórsykur og notið þau siðan sem skraut á kökur og ábætisrétti, eða kljúfið og takið kjarnana úr vínberjunum og blandið þeim í hvaða hráa grænmetis- salat, sem fram er borið, eða berið þau fram með osti, eða kljúfið stór vínber og klemmið þau svo aftur saman utan um kúlur úr t. d. gráð- ostkremi, eða kljúfið og útsteinið ber- in og blandið þeim í epli- eða perur í í sykurlegi, eða leggið hálf, steinalaus vínber í löginn ásamt vanillu- bráð og smjörsteiktri brauð- mylsnu í skál og skreytið með þeyttum rjóma. — Þetta verður heimsins bezta triflé, eða blandið vínberjunum í rjómaröndina, rétt áður en hún er fullhlaupin, eða kljúfið og takið steinana úr vínberjunum, blandið þeim i majonnes og setjið þetta svo i skinkukramarhús, eða blandið þeim ásamt an- anasbitum og söxuðum hnetu- kjörnum í þeyttan rjóma og berið þetta svo fram á möndlu- botni. FALKINN 39

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.