Fálkinn - 25.10.1965, Síða 22
Þýzkur byggingaverkfræðingur, Dieter Schmid að nafni, varð
fyrstur Þjóðverja til að byggja sér hús, sem er nálega allt úr
gerviefnum. Hann býr sjálfur í húsinu ásamt eiginkonu og
börnum. Þetta nýja byggingarefni leiddi hann út í að skapa
ný form, sem féllu yfirvöldum ekki meir en svo í geð, og
hann fékk ekki leyfi til að reisa húsið nema á afviknum stað. ,
Hann reisti húsið á stálrörum og bílskúrinn, sem er undir
húsinu, er ekki staðsettur þarna í því augnamiði að bera
húsið uppi. Schmid vann að þessu verkefni árum saman, og
flutti mótin á staðinn og bjó húshlutana til úr polyleit gler-
trefjum og steinull. Eftir 18 mánuði gat hann flutt inn. Út-
gjöldin námu um 60 þús. mörkum (600 þús. ísl kr.).
Stofan er á suðurhlið. Að innan er 1002 deilt niður með skáp
veggjum og plötum í fjögur herbergi, 2 baðherbergi, eldhús
og geymslu. Rafmagnshitun í gólfi eyðir litlum straum og
gerviefnin einangra hitann vel.
Á norðurhlið er eldhúsið. Útveggi þarf ekki að mála eða
múrhúða. Innveggir „svitna“ ekki og eru lyktarlausir. Ef
þessi hús væru verksmiðjuframleidd yrði hægt að ganga frá
öllum hlutum f verksmiðjunni og flytja þá síðan á lóðina.
22
FALKINN