Fálkinn - 25.10.1965, Blaðsíða 34
• Aitna
melka
MELKA skyrtan er sænsk úrvalsframleiðsla —
melka
Austurstræti 14 — Sími 12345.
Laugavegi 95 — Sími 23862.
Framh. af bls. 25.
ið varpaði skuggum á veggina
og Marius var búinn að taka
upp vínflösku.
í sama mund og hann var
að skera kjúklinginn, og ég var
að byrja að segja honum
gamansama sögu frá starfi
mínu, heyrði ég hann reka upp
hátt vein. Það glumdi í borð-
inu þegar hann missti hnífinn
úr höndunum.
Ég horfði undrandi á hann
og mér til mikillar hrellingar
sá ég, að hann greip um augað,
í þetta sinn vinstra augað.
— Guð minn góður. Það er
að byrja aftur!
Ég stökk á fætur og stumr-
aði yfir honum. Ráðskonan
kom hlaupandi út úr eldhús-
inu til að vita hvað hafði gerzt.
Við komum honum í rúmið
og ég gaf honum taugaróandi
meðul. En það liðu margar
klukkustundir þar til hann féll
í svefn. Ég var hjá honum alla
nóttina og gerði allt sem í mínu
valdi stóð til að bægja hönd-
inni frá auganu, sem hann
stanzlaust reyndi að grípa í,
eins og hann vildi rífa það úr.
Og alla nóttina var hann
með óráði og kallaði í sífellu
á Önnu.
Það var ekki fyrr en undir
morgun að andardráttur hans
varð reglulegur og ég gat
sleppt hendi hans.
Dauðþreyttur fór ég inn í
herbergið mitt kastaði mér upp
í rúm og sofnaði samstundis.
Þegar ég vaknaði, var fyrsta
hugsun min að gæta að Mari-
usi. Ég stökk á fætur og gekk
inn til hans, en um leið og
hann opnaði dyrnar, sá ég, að
ég gat ekki gert neitt framar.
Ég sá skugga hans hreyfast
á veggnum, og það brakaði i
bitanum í loftinu. Ég heyri
þetta hljóð ennþá, og ég hugsa
að ég heyri þetta hljóð allt mitt
líf, því að það verður aldrei
hægt að útskýra það sem ég
sá þegar lögreglan var búin að
skera hann niður og leggja
hann á gólfið.
Þegar ég beygði mig yfir
hann til að sjá andlit hans,
féll sólargeisli þvert yfir enni
hans yfir augað og áfram niður
með andlitinu.
Ég beygði mig nær og sá
hár eins og skínandi gull —
eitt hár, sem var svo fagurt
að í samanburði við það var
gull eins og ryð. ★ ★
Veitið heimili yðar og fjöl-
skyldu aukið öryggi með
þeirri fjölþættu heimilis-
vernd, sem Allt — í — eitt
heimilistrygging Ábyrgðar
tryggir.
200 þús. króna trygging
kostar aðeins frá kr. 400.00
í steinhúsi.
Bindindisfólk fær hvergi
hagkvæmari heimilistrygg-
ingu en hjá.
ÁBYRGÐP
Skúlagötu 63, Reykjavík.
Símar 17455 og 17947.
trúlofunarhringar
HVERFISGÖTL 16
SÍMI 2-1355
34
FALKINN