Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 12

Stúdentablaðið - 01.04.1999, Blaðsíða 12
12 Þankar háskólanema í bundnu máli rsli( í ljódasamkeppni Torfhildar, Mímis og Stúdentablaðsins voru kynnt á ljóðakvöldi þann 13. apríl sl. Dómnefndina skipuðu Kristján Amason, dósent við Heimspekideild, Bima Bjarna- dóttir, meistaranemi í íslensku og Andri Snœr Magnason, skáld. Sigurður Harðarson, hjitkmnarfræðinemi hlaut fyrstu og önnur verðlaun: fjórar liækur Neon-seríunnar og fría áskrift af bókum Neon-seríunnar í ar og Neiv York þríleik, eftir Paul Auster, Gler- borgina, Drauga og Lokað herbergi í útgáfu Bjarts. Jóhannes Dagsson, heimspekinemi, hlaut þriðju verðlaun, fyrsta og annað bindi bóka Marccls Proust, I leit að glötuðurn tíma í útgáfu Bjarts, fyrir Ijóðið Atriði 1. Svanur Kristbergsson, heimspekinemi, hlaut fjórðu verðlaun fyrir Ijóðið Hinsti morgunn en bókaforlagið Bjartur gaf eiimig þau verð- laun, Góðu Islendinga eftir Huldar Breið- fjörð og Vargatal eftir Sigfús Bjartmarsson en þeir voru báðir tilnefndir til íslensku bók- menntaverðlaunanna l'yrir verk sín. FÆDDUR/ENDURFÆDDUR Taikist mér að skrifa mér leið inní hjarta þitt va-ri höfundurinn í raun sú persóna sem óx og dafnaði fljótandi í glerbúri tárfylltu gegnsatju svo nektin blasti við vammlaus og brosandi útávið Innávið síaöist liertur sársaukinn í saltbragðinu (gefur þeim náttblindu sjón í skammdegi andans) fæddur á björtu dögunum sem einnig geta kennt okkur gráta Eg birtist einsog barn nývakið tátiplandi í humátt að heiminum Sigurður Harðarson Handan Handan liandan minningana yfir hugarflæðinu hvar unnur vinnur á siðfestugrjóti livar útsogið hringlar í ímyndunarvölum geisar stormur Undan ótölduin vindstigum smávirkra bellibragða mannlegra samskipta hrekst gríman kennd af liringnum af vansköpuðu sjálfinu lærð Pannig lielst lífið í glæðumun fínustu angar rótfestunnar -- þegar teknir að sviðna við bamsaldur Sigurður Harðarson Atriði 1 Dauðinn er kominn á grænan fólksbíl, með reyklituðum rúðum. Við lilið hans situr atvinnulaus engill Þeir keyra hratt út úr bænum, og það er launhált Jóhannes Dagsson Set Innan við augun taka að myndast jökulgrá lónin svo köld og kyrrstæð og drekkjandi. Purkandi út sérstöðuna þur til að endingu slokknar á skjánum Jóhannes Dagsson Hinsti morgunn í aðfalli sökkvandi stundar martröð sendinna augna á enda martröð án enda Svanur Kristbergsson Nú Við kt góða á íslandi num fyrir þá sem vilja sjá sem mest af landinu. Þeir eru fáanlegir sem hringferð um landið allt og einnig sem hringferð um þjóðveg 1. nOtfflffCTtfflhenta þeim vel sem vilja ferðast frjálsir og fara þangað sem hugurinn girnist hverju sinni. Tímamiðarnir eru fáanlegir með gildistíma frá einni og upp í fjórar vikur TÍMAMIÐl: tÍMAMIBI: 4VIKUR Hringmíðarnir Tímamiðarnir 'SSsSíslp Ferðaskrifstofa BSÍ Vatnsmýrarvegi 10 101 Reykjavík sími:562 3320 og 55 22300 fax: 552 9973 travel@bsi.is bsi.is þegar við heyrum ekki lengur óm af ómi bresti brests þegar allt hefur brugðist þá kemur ekkert og bregður nýju Ijósi á lífsneistaim eða klukknasöng í blómum nú fellur út Svanur Kristbergsson

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.