Fréttablaðið - 07.10.2009, Blaðsíða 8
8 7. október 2009 MIÐVIKUDAGUR
Tebollur
með rúsínum og með súkkulaðibitum
Íslenskur gæðabakstur
ný
tt
*
M
.v
. 1
5
0
þ
ú
su
n
d
k
r.
in
n
le
n
d
a
ve
rs
lu
n
á
m
án
u
ð
i,
þ
.a
. 1
/3
h
já
s
am
st
ar
fs
að
ilu
m
. /
S
já
n
án
ar
á
w
w
w
.a
u
ka
kr
on
u
r.i
s.
66 rósir á ári
fyrir Aukakrónur
Þú getur keypt ilmandi rauða rós á sex daga fresti hjá Blómaverkstæði Binna, Blómalist
eða Sjafnarblómum Selfossi fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt
– eða eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna.
*
AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
n
n
),
k
t.
4
71
0
0
8
-2
0
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
3
16
10% afsláttur
www.apotekarinn.is
Daníel Ásgeirsson
sérfræðingur í lyfl ækningum og nýrnasjúkdómum
opnar hinn 26. október n.k. stofu í
Læknasetrinu, Þönglabakka 6, 109 Reykjavík.
Tímapantanir í síma 535 7700.
FJÖLMIÐLAR Óskar Magnússon,
útgáfustjóri Morgunblaðsins,
skoðaði tölvupóst blaðamanns sem
hætti á blaðinu undir lok septemb-
er. Blaðamannafélag Íslands hefur
verið upplýst um málið. Það verður
kært til Persónuverndar.
Málið virðist eiga upphaf að
rekja til þess að Ragnhildur Sverr-
isdóttir, umsjónarmaður sunnu-
dagsútgáfu Morgunblaðsins, hætti
í liðinni viku og sendi þá samstarfs-
mönnum kveðju í fjöldapósti. Sama
dag birtist kveðjubréf Ragnhildar
á dv.is.
Blaðamaðurinn sem um ræðir
hefur ekki stigið fram undir nafni.
Samkvæmt heimildum hafði Óskar
Magnússon samband við blaða-
manninn daginn eftir að Ragnhild-
ur sendi bréf sitt. Mun blaðamann-
inum segjast svo frá að Óskar hafi
sagst hafa lesið tölvupóst hans í því
skyni að komast að því hver hefði
sent kveðjubréf Ragnhildar úr húsi.
Hafi þá Óskar jafnframt sagst hafa
lesið fyrri bréf blaðamannsins og
uppgötvað að hann hafi boðið DV
afrit af könnun um lestur á ein-
staka hlutum
Morgunblaðsins.
Mun blaðamað-
urinn hafa játað
að hafa sent DV
slíkt boð enda
þótt hann hafi
aldrei sent könn-
unina.
Frásögn Ósk-
ars af atburða-
rásinni er önnur.
Ekki náðist tal af honum í gær en
í samtali við mbl.is kveðst Óskar
ekki hafa ætlað að afhjúpa hver
hefði áframsent kveðjubréf Ragn-
hildar. Tilgangurinn með skoðun á
tölvupóstinum hafi verið að athuga
trúnaðarbrot starfsmannsins sem
hafi boðið DV áðurnefnda könn-
un til birtingar. Póstur annarra
starfsmanna væri ekki til skoðun-
ar. Hann fagnaði því að Persónu-
vernd tæki málið til skoðunar.
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, bendir á að sam-
kvæmt reglum Persónuverndar
sé óheimilt að skoða einkatölvu-
póst nema brýna nauðsyn beri til
svo sem vegna tölvuveiru eða sam-
bærilegs tæknilegs atviks. „Þegar
tölvupósts- eða netnotkun er skoðuð
skal þess gætt að gera starfsmanni
eða nemanda fyrst grein fyrir því
og veita honum færi á að vera við-
staddur slíka skoðun,“ segir í regl-
unum.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, for-
maður Blaðamannafélags Íslands,
segir stjórn félagsins ekki hafa
rætt tölvupóstsmálið formlega. „En
því er ekki að neita að ef fulltrúar
eigenda lesa tölvupóst starfsmanna
þá hlýtur það að setja samband
heimildarmanna og blaðamanna í
mikið uppnám,“ segir Þóra Krist-
ín og bætir við að heimildarmenn
verði að geta treyst því að trúnað-
ur ríki milli þeirra og blaðamanna.
„Það verður því að kryfja þetta mál
til mergjar og ég fagna því að við-
komandi blaðamaður ætli að kvarta
til Persónuverndar og fá skorið úr
um réttarstöðu sína.“
Blaðamenn Morgunblaðsins
munu nú bíða átekta eftir frekari
skýringum yfirmanna sinna.
gar@frettabladid.is
Útgáfustjóri las yfir
póst blaðamanns
Útgáfustjóri Morgunblaðsins segist hafa skoðað tölvupóst blaðamanns til að
kanna hvort hann hafi lekið trúnaðarmálum. Formaður Blaðamannafélagsins
segir samband við heimildarmenn í uppnámi. Kryfja þurfi málið til mergjar.
ÓSKAR
MAGNÚSSON
Heimilt er að skoða upplýsingar um netvafur, tengingar
og gagnamagn starfsmanns eða nemanda liggi fyrir
rökstuddur grunur um að hann hafi brotið gegn gildandi
lögum og reglum eða fyrirmælum vinnuveitanda eða
skólayfirvalda. Sé tilefni skoðunar grunur um refsiverðan
verknað skal óska atbeina lögreglu.
Þegar tölvupósts- eða netnotkun er skoðuð skal þess
gætt að gera starfsmanni eða nemanda fyrst grein fyrir
því og veita honum færi á að vera viðstaddur slíka skoð-
un. Þetta á þó ekki við sé þess enginn kostur s.s. vegna
alvarlegra veikinda starfsmanns. Geti starfsmaður ekki
verið viðstaddur skoðunina sjálfur skal veita honum færi
á að tilnefna annan mann í sinn stað.
Við starfslok skal starfsmanni gefinn kostur á að eyða
eða taka afrit af þeim tölvupósti sem ekki tengist starf-
semi vinnuveitandans. Tölvupósti nemenda skal eytt við
námslok en áður skal veita hæfilegan frest til töku afrita.
Óheimilt er að skoða upplýsingar um netnotkun starfs-
manns eða nemanda eftir starfs- eða námslok, nema
að uppfylltum sömu skilyrðum og greinir í 1.-3. mgr. eða
annað leiði af lögum.
HEIMILD: PERSÓNUVERND.
REGLUR UM RAFRÆNA VÖKTUN
LÖGREGLUMÁL Lögregla fer með eft-
irlit með útlendingum hér á landi og
tekur í tilviki EES-borgara ákvörð-
un um frávísun þeirra, ef tilefni til
afskipta rís innan sjö sólarhringa
frá komu til landsins.
Þetta segir Ragna Árnadóttir
dómsmálaráðherra, spurð hvort
tilefni sé til að rýmka heimildir
Útlendingastofnunar til brottvís-
unar erlendra brotamanna geri lög-
regla formlegar, rökstuddar tillög-
ur um tiltekna einstaklinga.
„Verði tilefni til afskipta síðar er
það Útlendingastofnun sem getur
frávísað eða brottvísað viðkom-
andi,“ segir dómsmálaráðherra.
„En það er alltaf lögreglan sem
rannsakar mál og sendir rann-
sóknarniðurstöður sínar og gögn
til Útlendingastofnunar þegar
mál er nægjanlega upplýst til að
ákvörðun megi undirbúa eða taka.“
Ragna segir Útlendingastofnun og
lögreglu hafa almennt samráð um
meðferð mála eftir því sem rann-
sókn og málsmeðferð í refsivörslu-
kerfinu vindi fram.
„Þegar um EES-borgara er að
ræða eru gerðar ríkar kröfur til
þess að fullvíst sé að af viðkom-
andi einstaklingi stafi ógn, sem að
minnsta kosti yrði þá jafnan til þess
að ástæða væri til að gefa út ákæru
en eðli brots skiptir einnig máli við
ákvörðun um brottvísun.“ - jss
RAGNA ÁRNADÓTTIR Útlendingastofnun
og lögregla hafa almennt samráð um
meðferð brottvísunarmála.
Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um brottvísanir erlendra brotamanna:
Rannsóknir á hendi lögreglu