Fréttablaðið - 07.10.2009, Blaðsíða 21
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Ég hef mjög gaman af veiðum,
en kemst þó ekki í hálfkvisti við
þessa léttbiluðu veiðimenn. Ég
myndi segja að ég væri öllu frem-
ur venjulegur áhugamaður,“ segir
Benedikt Einarsson lögfræðingur.
Í haust fór hann á hreindýraveið-
ar og skaut kú á Austurlandi.
Benedikt hefur farið á rjúpna-
og gæsaveiðar í gegnum tíðina og
skýtur rjúpu í jólamatinn hvert ár
en hann er alinn upp í stangveiði.
Hann prófaði hins vegar að veiða
hreindýr í fyrsta skipti í sumar
og segir að hann hafi lengi langað
til að prófa. „Mér fannst ég verða
að prófa þetta en það má segja að
þetta snúist allt um spennuna
rétt áður en maður tekur í gikk-
inn. Þær sekúndur eru mikið kikk
og ég sé ekki eftir að hafa reynt
þetta. Hins vegar verður að segj-
ast að hreindýraveiðar komast
ekki í hálfkvisti við rjúpna- eða
gæsaveiði.“
Á hreindýraveiðum er mikið
keyrt, alveg þangað til veiði-
menn þefa uppi dýrin og Benedikt
segir að það hafi ekki tekið lang-
an tíma í haust en hann og æsku-
félagi hans og veiðifélagi, Hilm-
ar Geirsson, fengu kúna á fyrsta
degi veiðanna.
„Ég fékk lánaðan riffil, þeir
eru svo rosalega dýrir. Við erum
vön að hafa hreindýrakjöt í mat-
inn annan í jólum og svo rjúpu
á aðfangadag. Það fullnægir
ákveðnu frummannseðli að koma
heim með dýrið og snæða bráð-
ina. Virðing fyrir bráðinni víkur
hins vegar aldrei úr huganum
og er algjört lykil atriði. Ég skýt
til að borða og það er mikilvægt
að haga veiðum þannig að dýrið
þjáist sem minnst. Eins og mér
finnst gaman að skjóta, hef ég
ekkert sérstaklega gaman af því
að aflífa særða rjúpu eða gæs,“
segir Benedikt og segir að hafður
verði sami siður í ár og síðustu ár
– að hafa rjúpu á borðum. Annað
séu helgispjöll.
juliam@frettabladid.is
Virðing fyrir bráðinni er
veiðimanni efst í huga
Benedikt Einarsson lögfræðingur er alinn upp í stangveiði og fer reglulega á rjúpna- og gæsaveiðar.
Hann prófaði að veiða hreindýr í fyrsta skipti í haust en hann hitti kúna fyrir á fyrsta degi ferðalagsins.
Benedikt Einarsson lögfræðingur ásamt æskufélaga sínum, Hilmari Geirssyni, á „svæði sjö“ í haust með kú sem hann felldi.
MYND/ÚR EINKASAFNI
LANDMANNALAUGAR eru vinsælar meðal baðglaðra
ferðamanna. Þess ber þó að geta að nokkuð hefur borið á
sundmannakláða meðal baðgesta seinni hluta sumars og í
haust. Það eru kláðabólur sem sundlirfur sníkjudýra í fuglum
valda eftir að hafa smogið gegnum húð manna.
smur- bón og dekkjaþjónusta
sætúni 4 • sími 562 6066
BREMSUVIÐGERÐIR
BREMSUKLOSSAR
SPINDILKÚLUR
ALLAR PERUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAFGEYMAÞJÓNUSTA
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
Opið: má-fö. 12-18,
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is