Fréttablaðið - 07.10.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 07.10.2009, Blaðsíða 36
16 7. október 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Badmintonfélag Hafnarfjaðar er fimm- tíu ára í dag og af því tilefni stendur stjórn félagsins fyrir sögugöngu. Litið verður við á stöðum sem tengjast sögu félagsins en það var stofnað í Alþýðu- húsinu og fóru æfingar fyrstu árin meðal annars fram í íþróttasölum St. Jósefsspítala og Lækjarskóla. Á laug- ardaginn verður síðan efnt til afmælis- móts í Íþróttahúsinu að Strandgötu auk þess sem afmælishóf verður haldið um kvöldið. Á sunnudag verður svo opinn kynningardagur þar sem þær greinar sem eru æfðar undir merkjum félags- ins verða kynntar. „Við stofnuðum borðtennisdeild í vor og býður Badmintonfélag Hafnarfjarð- ar nú eitt félaga upp á æfingar í öllum spaðaíþróttunum en þær eru badmin- ton, tennis, skvass og borðtennis,“ segir Hörður Þorsteinsson, formaður félags- ins til átján ára. En það er ekki það eina markverða sem hefur gerst á afmælisár- inu. „Í tilefni af afmælinu héldum við Ís- landsmeistaramót í mars og eigum bæði Íslandsmeistara í badminton og skvassi en badmintonkonan Erla Hafsteinsdótt- ir hampaði fyrsta Íslandsmeistaratitlin- um okkar í meistaraflokki.“ Félagið er því á góðri siglingu þótt Hörður segi mikla samkeppni ríkja um iðkendur. „Það er erfitt að keppa við boltaíþróttirnar sem er nær eingöngu fjallað um í fjölmiðlum og því eðlilegt að börnum og fullorðunum detti ekki í hug að byrja að æfa. Þetta gerir okkur sem viljum bjóða upp á fjölbreyttar íþróttir erfitt fyrir og höfum við þurft að beita aðferðum eins og að gefa börn- um í fjórða bekk badmintonspaða til að koma íþróttinni á framfæri.“ En víkjum aðeins að sögu þessa rót- gróna félags. Það var sem fyrr segir stofnað í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði og mættu 57 áhugasamir badmintonið- kendur á stofnfundinn. Árni Þorvalds- son, sem í framhaldinu var kosinn fyrsti formaður félagsins, sagði við það tæki- færi: „… að nokkrir félagar hefðu hafið æfingar í badminton fyrir um það bil ári og þótt íþróttin svo ánægjuleg að sjálfsagt hefði þótt að gefa sem flestum tækifæri til að iðka hana.“ Ekki gekk þó þrautalaust að halda félaginu gangandi fyrstu árin. Lítil sem engin aðstaða var í bænum sem leiddi til þess að félagið lá í dvala um skeið en með tilkomu Íþrótta- hússins við Strandgötu gjörbreyttust að- stæður. Starf félagsins hefur verið í örum vexti undanfarin ár og eru félagsmenn nú rúm- lega 250. Formenn þess hafa einungis verið sex frá upphafi og hefur Hörður, sem einnig er framkvæmdastjóri Golf- sambands Íslands, gegnt starfinu lengst. Hann hóf sinn badmintonferil árið 1972 og fór fljótlega að þjálfa. Hann færði sig svo yfir í skvassið en tók við formennsku félagsins árið 1991 þegar dætur hans byrjuðu að æfa. „Ég hef setið uppi með þetta síðan þótt börnin séu löngu hætt,“ segir hann og hlær. „Í dag leggjum við fyrst og fremst áherslu á barna- og ungl- ingastarf en erum líka með æfingar fyrir fullorðna enda bjóðum við upp á íþrótt- ir sem henta öllum aldurshópum,“ segir Hörður og hvetur Hafnfirðinga og aðra áhugasama til að koma og kynna sér starfsemina á sunnudag. vera@frettabladid.is BADMINTONFÉLAG HAFNARFJARÐAR: ER FIMMTÍU ÁRA Í DAG Á góðri siglingu þótt erfitt sé að keppa við boltaíþróttirnar BORÐTENNISDEILD KOMIÐ Á FÓT Fyrr á afmælisárinu var stofnuð borðtennisdeild innan félagsins og er það nú eina íþróttafélagið sem býður upp á æfingar í öllum spaðaíþróttunum fjórum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON NIELS BOHR FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1885 „Það er erfitt að spá, sér- staklega um framtíðina.“ Niels Bohr var danskur eðlis- fræðingur. Hann var einn af frumherjum skammtafræð- innar og varpaði ljósi á bygg- ingu frumeinda. Hann hlaut Nóbelsverðlaun árið 1922. MERKISATBURÐIR 1391 Birgitta Birgisdóttir er tekin í dýrlingatölu. 1571 Orrustan við Lepanto í Grikklandi átti sér stað. 1828 Konungur gefur út úr- skurð um það að kirkju- dyr skuli opnast út. 1879 Þýskaland gerir hernaðar- bandalag við Austurrísk- ungverska keisaradæmið. 1893 Skipstjóra- og stýrimanna- félagið Aldan er stofnað. 1954 Minjasafn Reykjavíkur er stofnað. Síðar var því skipt í Árbæjarsafn og Borgar- skjalasafn. 1992 Tekin voru í notkun flóð- ljós á Laugardalsvelli í Reykjavík. 2001 Bandaríkin hefja árás á Afganistan. Söngleikurinn Cats, eftir tónskáldið Sir Andrew Lloyd Webb- er, var frumsýnd- ur þennan dag árið 1982 á Broadway. Söngleikurinn hafði verið frumsýnd- ur ári áður í West End í London en Tre- vor Nunn leikstýrði báðum verkum og Gillian Lynne stýrði danshluta þeirra. Söngleikurinn gekk í ein 21 ár í West End en í átján ár á Broadway sem er met. Leikkonan Marlene Danielle tók þátt í Broadway-sýningunni öll þau átján ár sem hún var á fjölunum. Cats vann til fjölda verðlauna, þar á meðal til Laurence Olivier- verðlaunanna og Tony-verðlaunanna sem besti söng- leikurinn. Þá hefur Cats verið settur ótal sinnum upp í öðrum löndum og hefur verið þýdd- ur á yfir tuttugu tungumál. Árið 1998 var hann tek- inn upp og sýndur í sjónvarpi. Söngleikurinn er byggður á bókinni Old Poss- um´s Book of Practical Cats eftir T.S. Eliot. Mem- ories er sennilega frægasta lagið úr söngleiknum. ÞETTA GERÐIST: 7. OKTÓBER 1982 Kettir frumsýndir á Broadway Unglingar úr félagsmiðstöðvunum Buskanum og Þróttheimum í Voga- og Langholtshverfi standa fyrir minning- argöngu um Helga Hóseasson í dag. Safnast verður saman á horni Lang- holtsvegar og Skeiðavogs klukkan 19.30 og leggur gangan af stað klukk- an 20.00. Gengið verður að gatnamót- um Langholtsvegar og Holtavegar og verður mínútuþögn við hornið þar sem Helgi stóð löngum og mótmælti. Að því loknu verður boðið upp á kaffi og kakó í félagsmiðstöðinni Þróttheimum við Holtaveg. Gengið til minningar um Helga HELGI HÓSEASSON Unglingar í Voga- og Langholtshverfi standa fyrir minningar- göngu um Helga í dag. Menningar- og sögutengd ganga í boði Grindavíkur- bæjar og Saltfiskssetursins verður farin sunnudaginn 11. október og hefst klukk- an 13. Gangan hefst við Hraun austan Þórkötlustaðahverfis með vígslu á sjöunda sögu- skiltinu sem sett er upp í Grindavík. Genginn verð- ur hringur meðal annars að fiskgörðum í Slokahrauni, strandstað Cap Fagnets, Tyrkjadys og hinum forna kirkjustað. Ómar Smári og Sigrún Franklín sjá um fræðsluna. Gangan tekur um einn til tvo klukkutíma með fræðslu- stoppum. Gengið í hrauni og grasi. Gangan er liður í við- burða- og menningardagskrá Saltfisksetursins og Grinda- víkurbæjar. Í lok göngu verður heitt á könnunni. Gengið um Hraun í Grindavík GENGIÐ VIÐ GRINDAVÍK Menningar- og sögutengd ganga verður farin sunnudaginn 11. október. MOSAIK Elskulegi faðir minn, tengdafaðir og afi, Hans Arreboe Clausen Kársnesbraut 33, Kópavogi, andaðist að morgni hinn 6. október. Michael Clausen Heiða Sigríður Davíðsdóttir og afabörn. Blindrabókasafn Íslands hefur efnt til samkeppni um nýtt nafn og lógó fyrir safnið. Í verðlaun eru 25.000 krónur fyrir nafn og sama upphæð fyrir lógó eða kjörorð. Viður- kenningarskjöl fylgja. Nýja nafnið og lógóið eiga að vera í senn grípandi og kynningarvæn. Önnur skil- yrði eru ekki sett, en auðvelt þarf að vera að útfæra merk- ið í ólíkum litum. Öllum er heimil þátttaka og skulu tillögur sendar í tölvupósti á netfangið lena@ bbi.is eða í lokuðum umslög- um merktum Blindrabóka- safni Íslands, Nafnasam- keppni, Digranesvegi 5, 200 Kópavogi. Skilafrestur er til hádegis föstudaginn 6. nóv- ember. Auk tillögunnar þarf að koma fram nafn, heimili og símanúmer höfundarins. Efnt til nafna- samkeppni HLUSTAÐ Blindrabókasafn Íslands leitar að nýju nafni og lógói.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.