Fréttablaðið - 07.10.2009, Side 22

Fréttablaðið - 07.10.2009, Side 22
 7. október 2009 MIÐVIKUDAGUR2 Gísli G. Jónsson torfærukappi ætlaði sér að aka bifreið sinni rúmlega 200 metra yfir vatn í þýskum skemmtiþætti. Gísl i Gunn- ar Jónsson tók þátt í þýska skemmtiþætt- inum Wet- ten dass um helgina. Þátt- urinn, sem sýndur er á sjónvarpsstöð- inni ZDF, er gríðarlega vinsæll í Þýskalandi. Í hverjum þætti eru tekin fyrir nokkur áhættuatriði og fá heiðursgestir þáttarins að veðja um hvort atriðin takist eða mistak- ist. Þáttarstjórnandinn Thomas Gottschalk fékk á laugardaginn til sín marga fræga gesti, en þeirra á meðal voru Nelly Furtado og Witn- ey Houston. Það voru þó ekki þær sem veðjuðu á atriði Gísla heldur leikarinn Sebastian Koch úr Das Leben der anderen. Áhættuatriði Gísla fólst í því að hann átti að aka torfærubif- reið sinni rúm- lega 200 metra yfir manngert stöðuvatn. Þar sem útsend- ingin fór fram að kvöldi til var svæðið flóðlýst. Mikil spenna ríkti áður en Gísli gaf í. Í fyrstu leit út fyrir að Gísli myndi hafa það yfir, bíllinn flaut vel en allt í einu fór hann að vagga og að lokum sökk bíllinn og Gísli varð að bregðast hratt við til að sökkva ekki sjálfur niður í áttatíu metra djúpt vatnið. Leikarinn Sebastian Koch hafði veðjað á að Gísla tækist ætlunarverkið og þurfti hann því að leysa þrautir í sjónvarpssal. Gísli endaði í kafi Gísli Gunnar reyndi að aka torfærubifreið svipaðri þessari yfir manngert vatn. „Markmiðið er að bjóða upp á þjónustu sem ekki er völ á annars staðar í Reykjavík,“ segir David Robertson, sem rekur hjólasmíða- stofuna og verkstæðið Kría Cycles á Hólmaslóð úti á Granda. Ásamt því að bjóða upp á alhliða hjólavið- gerðir, fyrir allar tegundir hjóla, sérhæfir Kría sig í að smíða ný hjól frá grunni og endurbyggja gömul hjól. Að sögn Davids gengur aðferða- fræði Kríu út á að halda hlutun- um eins einföldum og framarlega er kostur. Liður í því er að hjólin sem smíðuð eru á þeirra vegum séu í grunninn eingíra eða með innbyggðum öxulgírum. Að mati Davids henta slík hjól íslenskum aðstæðum vel vegna minna við- halds. David fæddist í bænum Ton- bridge í Englandi. Hann starfaði sem arkitekt í London og einnig hér á Íslandi þar til hann missti starfið í kjölfar kreppunnar. Til Íslands fluttist hann snemma árs 2007 og á hér konu og barn. Hann segist alltaf hafa haft áhuga á reiðhjólum. „Í London er miklu betra að hjóla en treysta á stopular almenningssamgöng- ur. Að keyra bíl í London getur til dæmis verið afar sársaukafull reynsla,“ segir hann og hlær. „Ég ætlaði mér alltaf að verða atvinnu- hjólreiðamaður, en fékk svo meiri áhuga á hlaupum og náði nokkuð langt í þeirri íþróttagrein. Um leið og ég flutti til Íslands fór mig að langa til að smíða hjól.“ David opnaði Kría Cycles í vor. „Sumarið gekk vel, sérstaklega þegar tekið er með í reikninginn hversu nýtt fyrirtækið er. Margir Íslendingar líta á það að hjóla sem eitthvað sem eingöngu er hægt að gera á sumrin, en sú er alls ekki raunin. Auðvitað koma dagar þar sem ekki er sniðugt að hjóla um í snjó og frosti, en þeir þurfa ekki að vera svo margir,“ segir David. Auk einfaldleikans leggur David mikið upp úr útliti reiðhjól- anna. „Það er engin ástæða til að líta eingöngu á reiðhjól sem far- artæki. Góð reiðhjól geta verið virkilega flott, og það er eitt af því sem ég vil ná fram hér á stof- unni,“ segir David Robertson. kjartan@frettabladid.is Einfaldleiki framar öllu Bretinn David Robertson hefur rekið hjólasmíðastofuna og verkstæðið Kría Cycles á Hólmaslóð í hálft ár. Hann vill minna Íslendinga á að hjólreiðar eigi ekki bara að stunda á sumrin. Hjólasmíðastofan reynir að útvega alla þá hluti í hjól sem ekki eru fáanlegir á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LEIÐBEINANDI í æfingaakstri sækir um leyfi til lögreglustjóra í heimabyggð viðkomandi. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Þetta hjól er smíðað frá grunni úr nýjum hlutum, með léttri stálgrind. Hjólið er eingíra, og segir David það allt annars konar reynslu að hjóla á slíku hjóli. Mjög haldgóður og sérstaklega þægilegur spangarlaus íþróttahaldari í D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH,J skálum á kr. 10.950,- SPLUNKUNÝR ÍÞRÓTTAHALDARI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.