Fréttablaðið - 07.10.2009, Síða 43
MIÐVIKUDAGUR 7. október 2009 23
N1-deild kvenna
Stjarnan-Valur 17-18 (10-10)
Mörk Stjörnunnar (skot): Elísabet Gunnarsdóttir
4 (5), Harpa Sif Eyjólfsdóttir 4 (10), Alina Famas-
an 4/3 (12/4), Aðalheiður Hreinsdóttir 3 (6),
Þórhildur Gunnarsdóttir 1 (1), Þorgerður Anna
Atladóttir 1 (5).
Varin skot: Florentina Stanciu 13/1 (18/3)
Hraðaupphlaup: 3 (Harpa Sif, Elísabet, Þór-
hildur)
Fiskuð víti: 4 (Elísabet 2, Þorgerður Anna, Jóna)
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk Vals (skot): Hrafnhildur Skúladóttir 7/2
(15/3), Íris Ásta Pétursdóttir 3 (7), Ágústa Edda
Björnsdóttir 3 (8), Hildigunnur Einarsdóttir 1 (1),
Katrín Andrésdóttir 1 (2), Kristín Guðmundsdóttir
1 (2), Rebekka Skúladóttir 1 (4), Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 1 (4)
Varin Skot: Berglind Íris Hansdóttir 20/1 (17/3),
Sunneva Einarsdóttir 0 (1/1)
Hraðaupphlaup: 2 (Rebekka, Íris Ásta)
Fiskuð víti: 3 (Ágústa Edda, Katrín, Anna Úrsúla)
Utan vallar: 4 mínútur
KA/Þór-Fram 24-29
Fylkir-Haukar 23-25
Víkingur-HK 21-28
ÚRSLIT
Komdu og gerðu frábær kaup
PRÚTT
SALA
Timbursala
BYKO Breid
d
miðvikudag
, fimmtudag
, föstudag o
g laugardag
að seljast
A
FÓTBOLTI Tveir ungir enskir knatt-
spyrnumenn hafa verið hand-
teknir síðustu tvo daga, annar
þeirra á æfingu með Aston Villa.
Isaiah Osbourne, leikmaður Villa,
var handtekinn á æfingu liðsins í
dag grunaður um að hafa átt þátt
í því að skipuleggja rán.
Osbourne er 21 árs gamall og á að
baki fjölmarga leiki með félag-
inu. Hann lék til að mynda með
Aston Villa þegar liðið mætti FH
í UEFA-bikarkeppninni í fyrra.
Hinn knattspyrnumaðurinn sem
var handtekinn heitir Jose Baxter
og er sautján ára leikmaður hjá
Everton.
Baxter var handtekinn í gær
ásamt tveimur öðrum mönnum
þegar lögregla stöðvaði bifreið
sem þeir voru í. Í bílnum fannst
kannabis og falsaðir peninga-
seðlar.
Öllum hefur verið sleppt úr lög-
regluhaldi en móðir leikmanns-
ins hefur sagt í samtali við enska
fjölmiðla að sonur sinn sé alsak-
laus í þessu máli. - esá
Enska úrvalsdeildin:
Tveir leikmenn
handteknir
OSBOURNE Í leik með Aston Villa á
undirbúningstímabilinu. NORDIC PHOTOS/AFP
HANDBOLTI „Ég er gríðarlega
ánægður með að fara héðan með
sigur þar sem þetta var hörkuleik-
ur. Þessi lið þekkjast náttúrlega
mjög vel og þess utan var leyfð
mikil harka og við vorum hepp-
in með að fá svona gott dómara-
par [Anton Gylfa Pálsson og Hlyn
Leifsson] sem skilur út á hvað leik-
urinn gengur og mér fannst þetta
frábær skemmtun,“ sagði Stefán
Arnarsson, þjálfari Vals, í viðtali
við Fréttablaðið eftir 17-18 sigur
Vals gegn Íslands- og bikarmeist-
urum Stjörnunnar en leikurinn fór
fram í Mýrinni í Garðabæ.
Fyrri hálfleikur einkenndist af
sterkum varnarleik beggja liða og
markverðirnir Florentina Stanc-
iu hjá Stjörnunni og Berglind Íris
Hansdóttir hjá Val létu mikið til
sín taka. Talsvert var um feila og
tapaða bolta hjá báðum liðum og
sóknarleikurinn var fremur stirð-
ur á löngum köflum í fyrri hálf-
leiknum enda var tiltölulega lítið
skorað en staðan var jöfn, 10-10, í
hálfleik. Það er skemmst að segja
frá því að seinni hálfleikurinn var
æsispennandi frá upphafi til enda
þar sem liðin skiptust á að taka
forystuna.
Stjörnustúlkur virtust vera
með þetta í hendi sér snemma í
seinni hálfleik þegar þær skor-
uðu þrjú mörk í röð og komust í
14-12 en Valsstúlkur voru ekki á
því að gefast upp. Gestirnir náðu
að klóra sig aftur inn í leikinn
með grimmri framliggjandi vörn
og Berglind Íris var frábær fyrir
aftan hana. Staðan var jöfn 16-16
þegar fimm mínútur lifðu leiks og
mikil spenna í loftinu eftir fimm-
tíu og fimm mínútna bardaga.
Valsstúlkur náðu þá að skora
tvö mörk á skömmum tíma en
Stjörnustúlkur svöruðu að bragði
og minnkuðu muninn niður í eitt
mark og fengu svo tækifæri til
þess að jafna með síðustu sókn
leiksins en þá tók Berglind Íris
sig til og varði frá Þorgerði Önnu
Atladóttur en það var tuttugasta
varða skot landsliðsmarkvarðar-
ins í leiknum. Niðurstaðan varð
sem segir 17-18 sigur Vals.
Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörn-
unnar, var eðlilega svekktur með
að tapa leiknum.
„Það er fínt að fá ekki á sig nema
átján mörk en að skora bara sautj-
án er náttúrlega skandall,“ sagði
Atli.
Þrátt fyrir lítið skor var leikur-
inn skemmtilegur og gefur sterkar
vísbendingar um þá hörðu baráttu
sem mun verða í toppbaráttunni í
vetur. omar@frettabladid.is
Hart tekist á í Mýrinni
Valur vann Stjörnuna 17-18 í miklum baráttuleik í fyrstu umferð N1-deildar
kvenna í gærkvöldi. Grimmur varnarleikur og góð markvarsla var í fyrirrúmi.
GRIMMUR VARNARLEIKUR Það var hart tekist á í leik Stjörnunnar og Vals í fyrstu
umferð N1-deildar kvenna í gærkvöldi. Hér fær Stjörnustúlkan Þorgerður Anna
Atladóttir óblíðar móttökur frá Valsstúlkunum Kristínu Guðmundsdóttur og Írisi Ástu
Pétursdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Portsmouth tilkynnti í
gær að félagið hefði borgað leik-
mönnum laun fyrir september-
mánuð.
Í fyrrakvöld var hins vegar
greint frá því að Sulaiman Al
Fahim hafi selt 90 prósenta hlut
félagsins til viðskiptajöfurs frá
Sádi-Arabíu.
Al Fahim keypti Portsmouth í
ágúst síðastliðnum en tókst ekki
að útvega það fjármagn sem
þurfti til að reka félagið.
Nú er það Ali Al-Faraj sem á
langstærsta hluta félagsins og
hann gerði það að sínu fyrsta
verki að borga leikmönnum van-
goldin laun. - esá
Birtir til hjá Portsmouth:
Leikmenn
fengu borgað