Fréttablaðið - 08.10.2009, Blaðsíða 4
4 8. október 2009 FIMMTUDAGUR
www.ob.is
Halldór Pálmar Halldórsson líffræð-
ingur er forstöðumaður Háskólaset-
urs Suðurnesja en vinnur ekki hjá
Náttúrufræðistofu Reykjaness eins og
missagt var í blaðinu í gær.
LEIÐRÉTTING
ALÞINGI Fyrsta umræða um fjár-
lög fer fram á Alþingi í dag. Við-
búið er að hart verði tekist á um
áform ríkisstjórnarinnar um
niður skurð og tekjuöflun enda
hefur frumvarpið vakið hörð við-
brögð víða í þjóðfélaginu.
Samkvæmt starfsáætlun
Alþingis verður önnur umræða
um fjárlög 10. desember og þriðja
umræða fimm dögum síðar.
Í starfsáætluninni er gert ráð
fyrir 90 hefðbundnum þingfundar-
dögum, 14 nefndadögum og 13
kjördæmadögum.
Jólaleyfi er áformað 17. desem-
ber og þinghald á nýju ári 18.
janúar. 4. júní hefst sumarleyfi.
Tveggja vikna þinghald er áætlað
í septemberbyrjun. - bþs
Starfsáætlun Alþingis:
Fyrsta umræða
fjárlaga í dag
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
28°
16°
22°
13°
13°
18°
21°
24°
11°
14°
28°
14°
21°
33°
8°
21°
28°
10°
Á MORGUN
15-28 m/s, hvassast
sunnan til.
LAUGARDAGUR
10-23 m/s, hvassast
suðaustan til. Lægir síðdegis.
5
4
3
3 -1
1
-2
2
2
6
-4
10
10
10
8
6
5
3
3
6
15
13
77
4
3
4
8
6 3
4
6
VONSKUVEÐUR Í
NÓTT OG Á MORGUN
Í nótt og á morgun
verður mjög kröpp
lægð suður af
landinu og má búast
við austan stormi
víða um land, sýnu
hvassast sunnan og
suðvestan til. Þessu
fylgja hlýindi og væta,
einkum sunnan til og
vestan. Á laugardag
verður hvasst fyrir há-
degi en horfur eru á
að smám saman lægi
þegar líður á síðdegið
og kvöldið.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
BANDARÍKIN, AP Stuðningur Banda-
ríkjamanna við áform Baracks
Obama í heilbrigðismálum hefur
aukist, þótt enn sé þjóðin klofin í
afstöðu sinni til málsins.
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun segjast fjörutíu prósent
fylgjandi en fjörutíu prósent and-
víg áformunum. Þetta er nokkur
breyting frá því í síðasta mán-
uði, þegar 49 prósent voru and-
víg hugmyndum demókrata um
almennar heilbrigðistryggingar.
Demókratar hafa áratugum
saman reynt að fá þingið til að
samþykkja að allir Bandaríkja-
menn njóti heilbrigðistrygginga.
- gb
Heilbrigðisfrumvarp Obamas:
Stuðningur al-
mennings vex
NOREGUR, AP Á morgun verður til-
kynnt hverjir hljóta friðarverð-
laun Nóbels þetta árið. Að venju
eru ýmsar getgátur um niður-
stöðuna, en óvenjulega mikill
samhljómur er í getgátunum í
þetta skiptið. Flestir spá því að
kínverskir andófsmenn hreppi
hnossið.
Síðustu misseri hafa íbúar í
Tíbet og Xinhua viðrað andstöðu
sína gegn kínversku stjórninni
með afdrifaríkum hætti.
Um þessar mundir eru tuttugu
ár liðin frá atburðunum á Torgi
hins himneska friðar í Peking,
þegar stjórnvöld sendu herinn til
að brjóta á bak aftur mótmæla-
hreyfingu lýðræðissinna. - gb
Friðarverðlaun Nóbels:
Kínverskt andóf
líklegt til sigurs
REBIYA KADEER Leiðtogi útlægra úígúra
gæti hlotið friðarverðlaunin.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
vi l l að áformaður orku-,
umhverfis- og auðlindaskattur
leggist ekki á fyrirtæki á lands-
byggðinni. Slíkir skattar hafi
enda slæm áhrif.
Jón upplýsti um þessa skoðun
sína á Alþingi í gær.
Einar K. Guðfinnsson Sjálf-
stæðisflokki innti Jón eftir
afstöðu hans til málsins.
Jón svaraði því til að hann
hefði við kynningu málsins í
ríkis stjórn lagt áherslu á að horft
yrði til þess að þetta íþyngdi
ekki atvinnulífi og byggðum á
landsbyggðinni þar sem áhrif af
sértækum sköttum kynnu að hafa
margföld áhrif.
Hitt væri annað mál að stjórnin
stæði frammi fyrir gati á fjárlög-
um sem væri afleiðing stjórnar-
stefnu Sjálfstæðisflokksins á
undanförnum áratug. Ekki væri
sársaukalaust að leysa úr þeim
málum. „En ég vil standa vörð
um atvinnulífið á landsbyggðinni
og að þar njóti menn jafnræðis,“
sagði Jón að lokum.
Í fjárlagafrumvarpinu er gert
ráð fyrir að nýr orku-, umhverfis-
og auðlindaskattur afli ríkissjóði
allt að sextán milljarða króna á
næsta ári. Eftir er að útfæra hug-
myndina. - bþs
Jón Bjarnason vill að landsbyggðinni verði hlíft við nýjum skattaáformum:
Orkuskattur nái ekki út á land
JÓN BJARNASON vill standa vörð um
atvinnulífið á landsbyggðinni.
FJÖLMIÐLAR Breytingar verða gerð-
ar á dreifingu Fréttablaðsins í lok
október. Eftir breytingarnar verður
frídreifing blaðsins á höfuðborgar-
svæðinu og á suðvesturhorninu,
Borgarnesi, Akranesi, Árborg og
Reykjanesi, og Akureyri. Á öðrum
stöðum mun Fréttablaðið fást í
lausasölu á kostnaðarverði.
Fréttablaðið verður því aðgengi-
legt hringinn í kringum landið
í fyrsta skipti frá stofnun árið
2001.
Að sögn Ara Edwald, útgáfu-
stjóra Fréttablaðsins, er ástæðan
fyrir þessum breytingum fyrst og
fremst sú að auglýsingamarkað-
urinn hefur dregist svo saman að
hann stendur ekki undir jafn stóru
upplagi og áður.
„Við erum tilneydd til að rifa
seglin vegna efnahagsástandsins.
Miklar verðhækkanir á dagblaða-
pappír á alþjóðlegum mörkuðum
og mjög óhagstætt gengi krónunn-
ar valda okkur að auki erfiðleikum
við að gefa blaðið út í eins stóru
upplagi og við
kjósum.“
Ari bendir á
að sterk staða
Fréttablaðsins
á auglýsinga-
markaðinum
tryggi eftir sem
áður að mögu-
legt sé að halda
úti öflugu blaði
sem þjónusti les-
endum á fjölbreyttan hátt.
„Það er hagkvæmast fyrir
okkur að dreifa blaðinu á þéttbýlis-
stöðunum á suðvesturhorninu
og á Akureyri. Sá stóri og tryggi
lesendahópur sem við höfum á
þessum svæðum stendur í raun
undir rekstri blaðsins. Við finnum
hins vegar vel fyrir því að eftir-
spurnin eftir Fréttablaðinu er mjög
mikil í hinum dreifðari byggðum
landsins. Að bjóða blaðið á kostn-
aðarverði er leið okkar til að mæta
þessari eftirspurn því að sjálfsögðu
viljum við að blaðið sé lesið sem
víðast.“
Söluaðilar munu fá hvert blað
afhent á 33 krónur stykkið og
leggja sjálfir á þann kostnað sem
fellur til vegna flutningsins.
„Við fáum aðeins greitt fyrir
pappírinn, annar kostnaður við
útgáfuna er án endurgjalds eftir
sem áður. Í þeim tilfellum þar sem
blaðið fer inn í fyrirliggjandi dreif-
ingarkerfi söluaðila fá lesendur það
á einfalda kostnaðarverðinu.“
Þegar hefur verið gengið frá
samningum við N1 um að bjóða
viðskiptavinum sínum Fréttablaðið.
Fleiri sölustaðir munu bætast í hóp-
inn á næstu vikum og verða kynntir
jafnóðum í blaðinu. Þeim sem hafa
áhuga á að taka blaðið til dreifingar
á landsbyggðinni er bent á að setja
sig í samband við Pósthúsið í síma
585 8300.
Áfram verður hægt að fá Frétta-
blaðið í fullri áskrift utan dreifing-
arsvæðis. Kostar það 2.890 krónur
á mánuði eða frítt í rafrænni áskrift
í tölvupósti, auk þess sem blaðið er
aðgengilegt á Vísi.is.
Breytingar á dreif-
ingu Fréttablaðsins
Breytingar verða gerðar á dreifingu Fréttablaðsins í lok mánaðarins. Blaðinu
verður áfram dreift frítt á þéttbýlisstöðum á suðvesturhorninu og á Akureyri.
Á öðrum stöðum á landinu mun blaðið fást í lausasölu á kostnaðarverði.
FRÉTTABLAÐIÐ Breyting verður á dreifingu Fréttablaðsins í lok mánaðarins. Því verð-
ur þó dreift áfram lesendum á suðvesturhorninu og á Akureyri að kostnaðarlausu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSTÓLAR Tveir pólskir karl-
menn skulu sæta gæsluvarð-
haldi og einangrun til 26. októ-
ber. Þeir voru gómaðir þegar
þeir reyndu að smygla til lands-
ins tæplega 6.000 e-töflum.
Hæstiréttur staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjaness þessa efnis.
Mennirnir, sem eru á þrítugs-
aldri, voru handteknir þegar
þeir komu með flugi frá Varsjá.
Annar var með 2.647 töflur
faldar í niðursuðudós og hinn
3.348 töflur. - jss
Úrskurður Hæstiréttar:
E-töflusmyglar-
ar í einangrun
ARI EDWALD
SÁDI-ARABÍA, AP Abdúlla, kon-
ungur Sádi-Arabíu, hefur rekið
áhrifamikinn fræðiklerk úr hinu
valdamikla æðstaráði múslima-
klerka í landinu.
Klerkurinn brottrekni, Sheik
Saad bin Naser al-Shethri, gagn-
rýndi í síðasta mánuði fyrirkomu-
lag í nýjum vísinda- og tækni-
háskóla, sem Abdúlla konungur
opnaði nýverið, en í þeim skóla
sitja kvenkyns og karlkyns nem-
endur saman í tímum.
Klerkurinn sagði þetta fyrir-
komulag bæði syndsamlegt og af
hinu illa, ásamt því að gera karl-
kyns nemendum erfiðara að ein-
beita sér að náminu. - gb
Fræðiklerkur í Sádi-Arabíu:
Rekinn úr ráði
múslimaklerka
GENGIÐ 07.10.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,4011
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,23 124,83
197,13 198,09
182,73 183,75
24,545 24,689
21,912 22,042
17,759 17,863
1,4095 1,4177
197,10 198,28
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR